Fyrirtæki – Pólland
FyrirtækjaferðirSoftwareOne – Wroclaw, Pólland
Við hjá SoftwareOne áttum frábæra ferð til Wroclaw í Póllandi og getum svo sannarlega mælt með þessum áfangastað. Borgin er falleg, með ríka sögu, glæsilegan arkitektúr, líflegt mannlíf og frábært úrval veitingastaða og verslana. Það kom mörgum á óvart hversu hagstætt verðlagið var á mat og drykkjum.
Hótelið var mjög gott, þjónustan til fyrirmyndar og staðsetningin einstaklega hentug. Við nutum fjölbreyttrar dagskrár, meðal annars matartúrs, sögutúrs, golfs, kajakferðar og fórum á Vertigo Jazz Club sem stóð upp úr sem skemmtileg upplifun.
Matarupplifunin var einnig eftirminnileg, sérstaklega á veitingastöðunum Lwia Brama og CAMPO Modern Grill sem við mælum eindregið með.
Heilt yfir var þetta einstaklega vel heppnuð ferð þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi.
Fyrirtæki Um ferðina
SoftwareOne fór í vel heppnaða fyrirtækjaferð til Wroclaw í Póllandi þar sem falleg borg, hagstætt verðlag og fjölbreytt dagskrá slógu í gegn. Hópurinn naut meðal annars matartúrs, sögutúrs, golfs og kajakferðar. Góðir veitingastaðir, frábært hótel og heimsókn á Vertigo Jazz Club fullkomnuðu ferðina þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi.
Þjónusta Tripical í þessari ferð
- Hótel
- Flug
- Dagskrá
Svipaðar ferðir
Viltu skipuleggja fyrirtækjaferð?
Við hjálpum þér að skipuleggja ógleymanlega ferð fyrir hópinn þinn frá A til Ö.
Hafðu sambandNæstu skref
- Við hlustum á óskir ykkar
- Við gerum tillögu að ferð sem passar ykkar hóp
- Þið fáið skýrt verðtilboð og ráðgjöf
- Við sjáum um allt – þið njótið ferðarinnar
Aðrar umsagnir frá hópum Tripical
Skoða allar umsagnir
Í lok júlí ákváðum við systkini ásamt mökum 12 saman til Gdansk Póllandi í viku, höfðum samband við Tripical sem sá um að panta flug, rútu…

Ferðin okkar gekk mjög vel. Hótelið var dásamlegt – staðsetningin verður varla betri. Það var hreint, nútímalegt og ég myndi hiklaust mæla með því fyrir alla.…

Ótrúlega mikil ánægja með dásamlega ferð – Eirvík og Progastro til Gdansk Við höfðum samband við Tripical í lok janúar varðandi árshátíðarferð erlendis og vissum að…

Starfsmannafélag GRST kom sátt heim úr ferð til Gdansk á vegum Tripical. Við bókuðum ferð með frekar skömmum fyrirvara en þeir gátu útvegað okkur góða valkosti…
Við höfum hjálpað hundruðum fyrirtækja og skóla að skapa eftirminnilegar ferðir.
Yfir 80 hópar hafa ferðast með Tripical.


