Pólland er land ævintýra, með sínar fornu borgir og fjölskrúðugu sögu. Hin undurfagra Kraká er lýsandi dæmi um þetta. Borgin stendur við bakka árinnar Vistulu, og sögu hennar má rekja allt aftur til sjöundu aldar. Fornar sagnir lýsa því hvernig Kraká óx og dafnaði, eftir að íbúar hennar náðu að fella mikinn dreka sem reglulega skellti sér þangað í borgarferð og drap mann og annan. Hvað sem hæft er í þeim skrautlegu lýsingum, er það staðreynd að goðsagnakennt og seiðmagnað andrúmsloft svífur yfir þessari mögnuðu borg.
Kraká var höfuðborg Póllands til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Borgin gegnir í dag mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku löndin í heild. Íbúafjöldi er 760.000, en hafa ber í huga að um það bil 8 milljónir búa í 100 km radíus í kringum borgarmörkin.
Wawel kastalinn er eitt af stærri nafnspjöldum borgarinnar, sem og gamli bærinn með sínum aldagömlu kirkjum og áhugaverðu söfnum. Þá má ekki gleyma hinu mikla Rynek Główny, sem er hvorki meira né minna en stærsta markaðstorg Evrópu. Gamli bærinn í Kraká er eitt af friðarsvæðum UNESCO. Þetta er ekki að ástæðulausu og við mælum hiklaust með skoðunarferð þangað. Þar má finna hundruði veitingastaða og helling af börum og klúbbum. Borgin er af mörgum talin ein sú fallegasta í Evrópu og situr alla jafna á toppnum yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan arkitekúr barrokktímans gerir Kraká að afar sérstökum og fallegum stað.
Saga Kraká fléttar saman sorgir og gleði. Fyrrum gyðingahverfi borgarinnar, Kazmierz, stendur sem minnisvarði yfir hræðilega atburði heimsstyrjaldarinnar síðari, en þess má geta að ein af verksmiðjum Oscars Schindlers, sem bjargaði lífi fjölmargra gyðinga og samnefnd bíómynd byggir á, var einmitt starfrækt í Kraká, og þar má finna safn sem segir sögu hans.
Borgin er þekktust fyrir glæsileika sinn, stórbrotna sögu og menningu, en meiri ró er yfir næturlífi hennar. Kraká er fullkomin borg til þess að slaka á, ganga í rólegheitum um götur og hverfi og leyfa skilningarvitunum að draga þig frá hversdagslegum hugsunum og amstri, yfir í hér og nú.
Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Flestir Íslendingar þekkja eitthvað til Póllands, en við hjá Tripical viljum þar bæta um betur og hvetjum fólk til að ferðast og skoða þetta fallega land, ásamt því að kynna sér magnaða sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna í sjó.
Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918, en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu í valinn. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru þá töluvert frábrugðin frá því fyrir stríð, fyrrum pólsk svæði í austri tilheyrðu nú Sovétríkjunum og í staðinn fékk Pólland stór landssvæði frá hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista ríkti allt þar til henni var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.
Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, tengjast þrjár pólskar borgir, og eru oft nefndar Þríborgin (e. Tricity). Þetta eru Sopot, Gdynia, og Gdansk sem er þeirra stærst og þekktust. Gdansk er fjórða stærsta borg landsins og staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsum bæjarins. Saga Gdansk er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands í upphafi seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum frá Kalda stríðinu svokallaða. Einræðishyggja kommúnista varð til þess að í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar kviknaði hin svonefnda Solidarity hreyfing, en hún átti sinn þátt í falli kommúnismans í Austurblokkinni, falli Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.
Afar öflugt menningar- og listalíf er að finna í Gdansk, en götur borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta markaði, listasýningar og aðra skemmtilega viðburði stóran hluta sumarsins.
Sopot er vinsæll áfangastaður, ekki síst fyrir strendur sínar, en bærinn er staðsettur sunnan við Eystrasaltið, milli Gdynia og Gdansk og með íbúafjölda í kringum 40.000. Þar er mikið úrval af ýmis konar heilsulindum sem bjóða upp á fjölbreyttar spa meðferðir og dekur. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á haf. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.
Um aldir var Gdynia lítið þorp við Eystrasaltið, þar sem lögð var stund bæði á landbúnað og sjávarútveg. Í byrjun 20. aldar tók ferðamannastraumur þangað að aukast til muna, og íbúafjöldi jókst í kjölfarið. Þegar Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var ákvörðun tekin um að byggja þar höfn og í dag hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja. Borgin hýsir auk þess stærstu kvimyndahátíð landsins, Gdynia Film Festival.
Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta þéttbýli landsins. Varsjá stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. Þar búa um 1,75 milljónir, sem gerir hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er líflegur staður og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu, auk þess sem hún hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum.
Vegna sögu sinnar hefur Varsjá verið nefnd Fönixarborgin, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil átök, stríðsdeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina fór borgin í gagngerar endurbætur og uppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% hennar við jörðu. Gamli miðbæjarkjarninn er afar glæsilegur og býr yfir mikilli sögu, en hann var listaður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið (Plac Zamkowy), dómkirkjan (St. John’s Archcathedral), markaðstorgið (Old Town Market Square – Rynek Starego Miasta), sem og aðrar litríkar hallir og kirkjur.
Næststærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Hún var höfuðborg landsins til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku nágrannalöndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Þá hefur Kraká endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins, eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.
Eftir innrásina í Pólland í upphafi seinni heimstyraldarinnar varð Kraká gerð að höfuðborg þýsku nasistastjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, þeirra þekktust er Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðlýstur af UNESCO. Borgin er oft nefnd sem ein sú fallegasta í Evrópu, og situr víða á toppi lista yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barokk arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en ólíkt Varsjá varð borgin ekki fyrir teljandi skemmdum í stríðinu. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.
Frábær staðsetning, í hjarta Kraká og við torgið fræga, Rynek Główny.
Þarna er að finna veitingastað, verönd, frábær böð og heita potta á hæð sem lítur út eins og lúxus spa.
Margt að sjá og skoða í næsta nágrenni. Gamli bærinn er frábær staðsetning fyrir ferðamenn sem áhuga hafa á mat og sögu.
Sjáðu meira um hótelið hér.
Nútímalegt 4-stjörnu hótel, staðsett í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá markaðstorginu í gamla bæ Kraká. Ekki skemmir heldur fyrir að aðal verslunarmiðstöð borgarinnar er einnig rétt hjá, þar sem gera má afar góð kaup.
Sjáðu meira um hótelið hér.
Hotel Wyspiański býður upp á björt herbergi með nútímalegri hönnun á góðu verði, en er þó aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá fallega markaðstorginu í Kraká. Á hótelinu er veitingastaður þar sem gestir geta notið góðra veitinga, eða gleymt sér yfir drykk á barnum.
Það þarf kannski ekki að taka það fram einu sinni enn, en gamli bærinn er bara svo fallegur í Kraká. Þess vegna er svo gaman að vera á hóteli á því svæði!
Sjáðu meira um hótelið hér.