Ótrúlega mikil ánægja með dásamlega ferð – Eirvík og Progastro til Gdansk

14.05.2026

Ótrúlega mikil ánægja með dásamlega ferð – Eirvík og Progastro til Gdansk
Við höfðum samband við Tripical í lok janúar varðandi árshátíðarferð erlendis og vissum að við hefðum ekki mikinn tíma til stefnu því ætlunin var að fara þá um vorið. Öll samskipti varðandi skipulag voru einstaklega þægileg, öllu svarað um hæl og ekki leið á löngu þar til búið var að plana ferðina. Við fengum góðar upplýsingar varðandi veitingastaði, hvað væri hægt að gera á svæðinu og fararstjóra sem var okkur innan handar ef eitthvað myndi bjáta á. Ferðin gekk algerlega smurt fyrir sig og góðar minningar úr henni munu lifa lengi.
Við fengum mjög góða þjónustu hjá Tripical og getum algerlega mælt með þeim!