Hópferð til Varsjá - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin okkar

Hópferð til Varsjá

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
Land:
Pólland
Gjaldmiðill:
Pólskt Slot

Þú verður að sjá Varsjá!

Ólíkt flestum pólskum borgum státar Varsjá ekki bara af einu torgi umkringdu fallegum arkitektúr, þar eru mörg torg, af öllum stærðum og gerðum, með einstökum byggingum allt í kring. Þar er því auðvelt að gleyma sér á röltinu og njóta þess sem fyrir augu ber.

Varsjárborg hefur gengið í gegnum róstursama tíma og verið skotmark í árásum og sprengjuregni. Verst varð hún úti í seinni heimsstyrjöldinni. Þegar henni lauk var ekki mikið eftir af miðbænum, og þurftu þeir sem eftir lifðu að byggja allt upp frá grunni. Áhersla var lögð á að halda sömu mynd og fyrir stríð, og rétt að hafa í huga, að margar byggingar eru frá því eftir seinna stríð, þrátt fyrir að líta út fyrir að vera aldagamlar.

Eftir uppbygginguna hefur Varsjá nútímavæðst mikið, og skemmti- og veitingaflóran þar er af mörgum talin sú besta í Póllandi. Eins og annars staðar í landinu er verðlag líka afar hagstætt, bæði á veitingum, drykkjum og fatnaði, sem og í leigubílum á milli staða.

Stalín er ekki hér

Eins og sjá má á myndum ægir hér saman hinum ýmsu byggingarstílum, allt eftir því hvenær í sögunni húsin risu. Eftir seinni heimsstyrjöld varð Pólland um árabil á vissan hátt hluti af Sovétríkjunum, og þar ríkti einræðiskenndur stalínkommúnismi allt til ársins 1989. Þetta sést vel sums staðar í Varsjá, þar sem yfirbragð er nokkuð ,,austantjaldslegt“, og minnir á þann kalda tíma sem nú er að baki.

Fyrri tíma byggingar standa sjarmerandi um alla borg, tignarlegar kirkjur og hallir, en þar á milli rísa nýstárlegir skýjakljúfar til himins. Gamli miðbærinn er vinsælasti hluti borgarinnar, en þar má sjá falleg pastellituð hús, kaffi- og veitingastaði, að ógleymdu minnismerkinu af hafmeyjunni, sem er tákn borgarinnar.

Göngum, göngum

Það er vinsælt að fá sér göngu um eldri götur borgarinnar, skoða í búðir og bása þar sem ýmis konar varningur fæst til sölu. Fyrir þá sem hafa gaman af antíkvörum, gömlum húsgögnum og húsmunum er margt spennandi að sjá. Hér má til dæmis finna glæsilegar kristalljósakrónur á góðu verði, og  svo ótalmargt fleira.

Flottir almenningsgarðar

Í Varsjá eru margir gróðursælir almenningsgarðar og sumir þeirra rekja aldur sinn langt aftur í tímann. Garðarnir eru staðsettir víðs vegar um borgina, og finna má nokkra slíka miðsvæðis. Sjón er sögu ríkari.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Fjölbreyttar byggingar
  • favorite
    Æðislegur miðbær
  • favorite
    Menning og saga Varsjár
  • favorite
    Framandi veitingastaðir

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 3 nætur á hóteli í miðbæ Varsjár
  • 20 kg innritaður farangur
  • Morgunmatur

Ekki innifalið

  • Kommúnistaávarpið
  • Okurverð
  • Útskýring á algengasta orði pólskrar tungu: Kurva!

Frítt skemmtiatriði með í ferðina!🎉

Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.

Skoða frítt skemmtiatriði!

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Pólland

Land sem vert er að skoða!

Flestir Íslendingar þekkja eitthvað til Póllands, en við hjá Tripical viljum þar bæta um betur og hvetjum fólk til að ferðast og skoða þetta fallega land, ásamt því að  kynna sér magnaða sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna í sjó.

Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918, en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu í valinn. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru þá töluvert frábrugðin frá því fyrir stríð, fyrrum pólsk svæði í austri tilheyrðu nú Sovétríkjunum og í staðinn fékk Pólland stór landssvæði frá hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista ríkti allt þar til henni var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi íbúa: 38.634.007
  • Stærð að flatarmáli: 312.679 km²
  • Opinbert tungumál: Pólska
  • Gjaldmiðill: Pólskt Slot 
  • Hitastig: 19°-30° yfir sumartímann
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

Þríborgin: Gdansk, Sopot og Gdynia

Gdansk

Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, tengjast þrjár pólskar borgir, og eru oft nefndar Þríborgin (e. Tricity). Þetta eru Sopot, Gdynia, og Gdansk sem er þeirra stærst og þekktust. Gdansk er fjórða stærsta borg landsins og staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsum bæjarins. Saga Gdansk er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands í upphafi seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum frá Kalda stríðinu svokallaða. Einræðishyggja kommúnista varð til þess að í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar kviknaði hin svonefnda Solidarity hreyfing, en hún átti sinn þátt í falli kommúnismans í Austurblokkinni, falli Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.

Afar öflugt menningar- og listalíf er að finna í Gdansk, en götur borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta markaði, listasýningar og aðra skemmtilega viðburði stóran hluta sumarsins.

Sopot

Sopot er vinsæll áfangastaður, ekki síst fyrir strendur sínar, en bærinn er staðsettur sunnan við Eystrasaltið, milli Gdynia og Gdansk og með íbúafjölda í kringum 40.000. Þar er mikið úrval af ýmis konar heilsulindum sem bjóða upp á fjölbreyttar spa meðferðir og dekur. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á haf. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.

Gdynia

Um aldir var Gdynia lítið þorp við Eystrasaltið, þar sem lögð var stund bæði á landbúnað og sjávarútveg. Í byrjun 20. aldar tók ferðamannastraumur þangað að aukast til muna, og íbúafjöldi jókst í kjölfarið. Þegar Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var ákvörðun tekin um að byggja þar höfn og í dag hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja. Borgin hýsir auk þess stærstu kvimyndahátíð landsins, Gdynia Film Festival. 

Varsjá

Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta þéttbýli landsins. Varsjá stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. Þar búa um 1,75 milljónir, sem gerir hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er líflegur staður og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu, auk þess sem hún hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum.

Vegna sögu sinnar hefur Varsjá verið nefnd Fönixarborgin, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil átök, stríðsdeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina fór borgin í gagngerar endurbætur og uppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% hennar við jörðu. Gamli miðbæjarkjarninn er afar glæsilegur og býr yfir mikilli sögu, en hann var listaður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið (Plac Zamkowy), dómkirkjan (St. John’s Archcathedral), markaðstorgið (Old Town Market Square – Rynek Starego Miasta), sem og aðrar litríkar hallir og kirkjur.

Kraká

Næststærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Hún var höfuðborg landsins til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku nágrannalöndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Þá hefur Kraká endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins, eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.

Eftir innrásina í Pólland í upphafi seinni heimstyraldarinnar varð Kraká gerð að höfuðborg þýsku nasistastjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, þeirra þekktust er Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðlýstur af UNESCO. Borgin er oft nefnd sem ein sú fallegasta í Evrópu, og situr víða á toppi lista yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barokk arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en ólíkt Varsjá varð borgin ekki fyrir teljandi skemmdum í stríðinu. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.

Hótelin okkar

  • add Hilton Warsaw Hotel 5 Stjörnur

    Hilton Warsaw Hotel *****

    Sönn 5 stjörnu upplifun. Hótelið er staðsett í fjármálahluta borgarinnar og nálægt fjölda safna, búða og veitingastaða. Það er um 20-25 mínútna ganga að kjarna miðbæjarins frá hótelinu.

    Í öllum herbergum er flatskjár, wi-fi, sturta og bað.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Novotel Warszawa Centrum 4 Stjörnur

    Novotel Warszawa Centrum ****

    Hótelið býður upp á 360 gráðu útsýni yfir Varsjá. Það er staðsett í hjarta borgarinnar, þar sem finna má fjölda búða og veitingastaða.

    Öll herbergin hafa flatskjá, wi-fi, bað með sturtu eða baði og hárblásara.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Hampton by Hilton Warsaw City Center 3 Stjörnur

    Hampton by Hilton Warsaw City Center ***

    Hótelið er staðsett í hjarta Varsjá og örskammt frá verslunarmiðstöðinni Tarasy.

    Öll herbergin hafa flatskjá, wi-fi og bað með sturtu eða baði.

     

    Sjáðu meira um hótelið hér.

Verð frá 119.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Fiskislóð 31d, 2.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT