Pólland - Tripical

Pólland

Sjá myndir

Pólland

Land sem vert er að skoða!

Flestir Íslendingar þekkja eitthvað til Póllands, en við hjá Tripical viljum þar bæta um betur og hvetjum fólk til að ferðast og skoða þetta fallega land, ásamt því að  kynna sér magnaða sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna í sjó.

Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918, en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu í valinn. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru þá töluvert frábrugðin frá því fyrir stríð, fyrrum pólsk svæði í austri tilheyrðu nú Sovétríkjunum og í staðinn fékk Pólland stór landssvæði frá hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista ríkti allt þar til henni var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi íbúa: 38.634.007
  • Stærð að flatarmáli: 312.679 km²
  • Opinbert tungumál: Pólska
  • Gjaldmiðill: Pólskt Slot 
  • Hitastig: 19°-30° yfir sumartímann
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

Þríborgin: Gdansk, Sopot og Gdynia

Gdansk

Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, tengjast þrjár pólskar borgir, og eru oft nefndar Þríborgin (e. Tricity). Þetta eru Sopot, Gdynia, og Gdansk sem er þeirra stærst og þekktust. Gdansk er fjórða stærsta borg landsins og staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsum bæjarins. Saga Gdansk er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands í upphafi seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum frá Kalda stríðinu svokallaða. Einræðishyggja kommúnista varð til þess að í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar kviknaði hin svonefnda Solidarity hreyfing, en hún átti sinn þátt í falli kommúnismans í Austurblokkinni, falli Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.

Afar öflugt menningar- og listalíf er að finna í Gdansk, en götur borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta markaði, listasýningar og aðra skemmtilega viðburði stóran hluta sumarsins.

Sopot

Sopot er vinsæll áfangastaður, ekki síst fyrir strendur sínar, en bærinn er staðsettur sunnan við Eystrasaltið, milli Gdynia og Gdansk og með íbúafjölda í kringum 40.000. Þar er mikið úrval af ýmis konar heilsulindum sem bjóða upp á fjölbreyttar spa meðferðir og dekur. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á haf. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.

Gdynia

Um aldir var Gdynia lítið þorp við Eystrasaltið, þar sem lögð var stund bæði á landbúnað og sjávarútveg. Í byrjun 20. aldar tók ferðamannastraumur þangað að aukast til muna, og íbúafjöldi jókst í kjölfarið. Þegar Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var ákvörðun tekin um að byggja þar höfn og í dag hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja. Borgin hýsir auk þess stærstu kvimyndahátíð landsins, Gdynia Film Festival. 

Varsjá

Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta þéttbýli landsins. Varsjá stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. Þar búa um 1,75 milljónir, sem gerir hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er líflegur staður og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu, auk þess sem hún hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum.

Vegna sögu sinnar hefur Varsjá verið nefnd Fönixarborgin, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil átök, stríðsdeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina fór borgin í gagngerar endurbætur og uppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% hennar við jörðu. Gamli miðbæjarkjarninn er afar glæsilegur og býr yfir mikilli sögu, en hann var listaður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið (Plac Zamkowy), dómkirkjan (St. John’s Archcathedral), markaðstorgið (Old Town Market Square – Rynek Starego Miasta), sem og aðrar litríkar hallir og kirkjur.

Kraká

Næststærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Hún var höfuðborg landsins til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku nágrannalöndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Þá hefur Kraká endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins, eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.

Eftir innrásina í Pólland í upphafi seinni heimstyraldarinnar varð Kraká gerð að höfuðborg þýsku nasistastjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, þeirra þekktust er Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðlýstur af UNESCO. Borgin er oft nefnd sem ein sú fallegasta í Evrópu, og situr víða á toppi lista yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barokk arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en ólíkt Varsjá varð borgin ekki fyrir teljandi skemmdum í stríðinu. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.

Pólland

Fræðsluferð til Gdansk í Póllandi

Gdansk í Póllandi er forn og fögur, og af mörgum talin fallegasta hafnarborg Evrópu. Í gegnum tíðina hefur þar ýmislegt gengið á, og tíminn  á köflum leikið hana grátt. En ekkert bítur á Gdansk, hún stendur í dag sem kröftug...
Pólland

Fræðsluferð til Kraká

Goðsagnakennd miðaldaborg! Pólland er land ævintýra, með sínar fornu borgir og fjölskrúðugu sögu. Hin undurfagra Kraká er lýsandi dæmi um þetta. Borgin stendur við bakka árinnar Vistulu, og sögu hennar má rekja allt aftur til sjöundu aldar. Fornar sagnir lýsa...
Pólland

Hópferð til Varsjá

Þú verður að sjá Varsjá! Ólíkt flestum pólskum borgum státar Varsjá ekki bara af einu torgi umkringdu fallegum arkitektúr, þar eru mörg torg, af öllum stærðum og gerðum, með einstökum byggingum allt í kring. Þar er því auðvelt að gleyma...
Pólland

Hópferð til Gdansk

Hafnarbakki hlaðinn merkilegri sögu Hafnarborgin Gdańsk stendur eins og lítið ríki við Eystrasaltið í norður hluta Póllands. Borgin er staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsunum. Saga bæjarins er afar merkileg, en þann 1. september árið 1939 hófst þar orustan...
Pólland

Hópferð til Kraká

Goðsagnakennd miðaldaborg! Pólland er land ævintýra, með sínar fornu borgir og fjölskrúðugu sögu. Hin undurfagra Kraká er lýsandi dæmi um þetta. Borgin stendur við bakka árinnar Vistulu, og sögu hennar má rekja allt aftur til sjöundu aldar. Fornar sagnir lýsa...