Við hjá Starfsmannafélagi HS Veitna fengum Tripical til að skipuleggja fyrir okkur árshátíðarferð sem farin var vorið 2022. Eftir að hafa verið í COVID rugli frá ársbyrjun 2019, tókum við bjartsýnina á þetta og fórum á fund Tripical á haustmánuðum 2021 og fengum þau til að skipuleggja árshátíðarferð vorið eftir.
Eftir stuttan tíma komu þau með nokkrar tillögur sem þau lögðu fyrir okkur og fyrir valinu varð 5 daga ferð til Dubrovnik í Króatíu, hótelið „Hotel Croatia Cavtat“ var litlu þorpi öskot frá flugvellinum. Þvílíkur dásemdarstaður.
Boðið var uppá skipulagðar skoðunarferðir í gamla bæinn Dubrovnik og Konavle svæðið algjörlega frábærar ferðir í alla staði.
Veislan sjálf var haldin utandyra á veitingastað hótelsins niður við höfnina í Cavtat, við fluttum með okkur veislustjóra (Bjarna töframann) sem hélt uppi stuðinu allt kvöldið og stemmingin, maturinn og veðrið maður lifandi!
Ferð sem erfitt verður að toppa, starfsmenn og makar þeirra héldu heim eftir 5 nætur á yndislegu hóteli, með frábærri aðstöðu, skemmtilegu starfsfólki og geggjuðum fararstjórum sem sáu til þess að allt gengi eins og vel smurð vél.
Við vorum tæplega 150 sem fórum í þessa ferð og getum hiklaust mælt með Tripical til að sjá um ferðir af öllum stærðum og gerðum.
Takk kærlega fyrir okkur
Páll Marcher Egonsson, fyrrverandi forseti Starfsmannafélags HS Veitna
HS Veitur
Um ferðina
Starfsmannafélag HS Veitna fékk Tripical til að skipuleggja árshátíðarferð vorið 2022. Undirbúningur hófst haustið 2021, eftir langt hlé vegna COVID, og félagið lýsir ferðinni sem einni sem erfitt verður að toppa.
Við áttum ógleymanlega og einstaklega vel heppnaða árshátíðarferð til Split í Króatíu. Ferðin heppnaðist frábærlega í alla staði og hópurinn kom heim alsæll eftir dásamlega daga…
Besta árshátíðarferð sem við höfum farið og höfum við farið víða! – RJC ehf. Ég get hiklaust mælt með Tripical þegar kemur að skipulagningu ferðar. Tripical…
Frábær þjónusta hjá Tripical og ferðin stóðst allar væntingar okkar Við viljum koma á framfæri einlægri ánægju með frábæra þjónustu Tripical í tengslum við árshátíðarferð…
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.
Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.