60 ára afmælisferð Rafverkstæðis IB ehf til Split.
Við erum alsæl með Split velheppnuð ferð hjá okkur og það var fínt að hafa ekki allt of mikla dagskrá fyri hópinn veðrið var svo gott í september . Við vorum 22 í hópnum frá 20- 60 ára
Árshátíðarkvöldverðurinn var á Dvor veitingarstaðurinn var upp á tíu og frábær upplifun og þjónustan framúrskarandi.
Gönguferðin á sunnudeginum var alveg frábær upplifun og hún var einstök og skemmtileg. Vínsmökkunin var líka velheppnuð lítíð og krúttlegt veitingahús.
Gleymum ekki Gordon rútubílsstjóra hann var frábær og stóðst allt hjá honum
Matarupplífun fyrsta kvöld í Split á Amphora hótelinu var vonbrigði. Mælum við alls ekki með því að hópar fara í kvöldmat á hótelinu. En morgunmaturinn var fínn. Hótelið stóðst aðrar væntingar td varðandi herbergin og snyrtimennsku. Góð aðstaða er til að sóla sig við neðri sundlaugarpallinn. Mælum með spa þjónustunni við vorum mörg sem nýttum okkur hana.
Tripical veitti okkur mjög góð persónulega þjónustu varðandi allt sem varðar dagskrá og skipulag ferðarinnar.
Rafverkstæði IB ehf
Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir

