Vinnuvernd – Árshátíðarferð til Split | Umsögn - Tripical

Vinnuvernd – Króatía

Fyrirtækjaferðir
  • Áfangastaður Króatía
  • Hópastærð 60 manns
  • Ferðatími May 2026
  • Þjónusta Tripical Hótel, Flug, Dagskrá

Við áttum ógleymanlega og einstaklega vel heppnaða árshátíðarferð til Split í Króatíu. Ferðin heppnaðist frábærlega í alla staði og hópurinn kom heim alsæll eftir dásamlega daga í sól, fallegu umhverfi og góðri stemningu.

Split reyndist fullkominn áfangastaður fyrir fyrirtækjaferð. Þar er stutt í fallega náttúru, strönd, sólbað, góða veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu

Hótelið var frábært í alla staði. Morgunmaturinn var virkilega góður og almennt voru veitingastaðirnir á hótelinu geggjaðir. Eina undantekningin var kvöldmaturinn fyrsta kvöldið á Spalatum, einum af veitingastöðum hótelsins, sem stóðst því miður ekki væntingar. Árshátíðarkvöldverðurinn var á Port74 á hótelinu og var æðislegur matur og geggjað umhverfi. Bátsferðin var sömuleiðis ógleymanlegur hluti af ferðinni.

Þegar við vorum búin að bóka ferðina þá fór Play í gjaldþrot. Tripical brást mjög vel við og hafði strax samband við okkur og hóf undirbúning á nýjum leiðum til þess að ferðin yrði að veruleika.

Takk kærlega fyrir okkur!

Vinnuvernd

Um ferðina

Vinnuvernd fór í árshátíðarferð til Split í Króatíu. Hópurinn naut sólar og stemningar, árshátíðarkvöldverðurinn var á Port74 og bátsferðin eftirminnileg. Þegar Play fór í gjaldþrot eftir bókun brást Tripical strax við og undirbjó nýjar leiðir.

Þjónusta Tripical í þessari ferð

  • Hótel
  • Flug
  • Dagskrá

Aðrar umsagnir frá hópum Tripical

Skoða allar umsagnir
Rafverkstæði IB Fyrirtækjaferðir

Króatía 30 manns September 2025

60 ára afmælisferð Rafverkstæðis IB ehf til Split.   Við erum alsæl með Split velheppnuð ferð hjá okkur og það var fínt að hafa ekki allt…

RJC Fyrirtækjaferðir

Króatía 30 manns May 2025

Besta árshátíðarferð sem við höfum farið og höfum við farið víða! – RJC ehf. Ég get hiklaust mælt með Tripical þegar kemur að skipulagningu ferðar. Tripical…

Félagsbústaðir Fyrirtækjaferðir

Króatía 40 manns May 2025

Frábær þjónusta hjá Tripical og ferðin stóðst allar væntingar okkar   Við viljum koma á framfæri einlægri ánægju með frábæra þjónustu Tripical í tengslum við árshátíðarferð…

Heimar Fyrirtækjaferðir

Króatía 130 manns April 2025

Dásamleg árshátíðarferð til Split   Tripical aðstoðaði okkur hjá Heimum að skipuleggja dásamlega ferð til perlunnar Split í Króatíu. Ég vil sérstaklega þakka Björgu fyrir liðlegheit…

Við höfum hjálpað hundruðum fyrirtækja og skóla að skapa eftirminnilegar ferðir.

Yfir 80 hópar hafa ferðast með Tripical.

Hafðu samband