Fyrirtækjaferð til Split

Split: Rómversk saga, sjávarsíða og eyjar við adríahaf. Sérsniðin fyrirtækjaferð með Tripical.

  • Áfangastaður Króatía
  • Hópastærð 180–1,000 manns
  • Tímabil Allt árið
  • Lengd ferðar 4 dagar / 3 nætur
  • Gjaldmiðill Evra

Um ferðina

Áfangastaður sem kemur á óvart

Í Split er forn saga hluti af nútímaborginni, með Diocletianusarhöllina við líflega hafnargöngu. Það besta við ferðina er að hægt er að njóta staðarins saman án þess að þurfa að fylla hverja stund af dagskrá. Umhverfið skapar sjálft stemninguna og býður upp á skemmtilega blöndu af uppgötvunum og samveru.

Upplifunin á staðnum

Það er einstakt að ganga um Diocletianusarhöllina og sjá borgarlífið í kringum fornminjarnar. Hafnargangan, eyjarnar og dalmatísk matargerð gera Split að frábærri blöndu af sögu og strandlífi. Dagskrána má laga eftir því hvort þið viljið leggja meiri áherslu á menningu, matargerð eða frjálsan tíma. Þarna skapast góð tækifæri til að setjast niður saman, spjalla og njóta þess að vera í öðru umhverfi. Það eru einmitt þessar óformlegu stundir sem gera ferðina oft jafn skemmtilega og skipulagða dagskráin.

Gerum ferðina að ykkar ferð

Það sem gerir góða fyrirtækjaferð eftirminnilega er oft samveran sjálf. Hægt er að skipuleggja einn eða tvo sameiginlega hápunkta og gefa starfsfólkinu svigrúm þess á milli. Þannig verður ferðin bæði félagsleg og þægileg.

Skipulagið með Tripical

Við hjá Tripical hjálpum ykkur að gera hugmyndina að ferð. Flug, hótel, dagskrá og sameiginlegar upplifanir eru skipulagðar eftir óskum hópsins.

Hápunktar ferðar

  • Fjölbreyttar byggingar
  • Æðislegur miðbær
  • Menning og saga
  • Stutt vegalengd frá flugvelli
  • Tærasti sjór Evrópu

Gerum fyrirtækjaferðina til Split að ykkar ferð – fáið sérsniðna tillögu að dagskrá og skipulagi frá Tripical.

Innifalið

  • Flug fram og til baka
  • Rútur til og frá flugvelli og á áfangastaði
  • 3 nætur á 4* hóteli með morgunverði
  • 20kg innritaður farangur og 8 kg í handfarangur
  • Fararstjórn

Ekki innifalið

  • Hádegis- eða kvöldverður
  • Stress
  • Vont veður
  • Þjórfé

Hótelin okkar

  • Le Meridien Lav Split 5 ⭐ Le Meridien Lav hótel er staðsett í Podstrana, 8 km suður af Split. Hótelið sem opnaði 2017 er með með 800 metra langa strandlínu,…
    Le Meridien Lav hótel er staðsett í Podstrana, 8 km suður af Split. Hótelið sem opnaði 2017 er með með 800 metra langa strandlínu, landslagshannaða garða og þaðan er útsýni yfir borgina og eyjarnar í kring.   Á hótelinu eru 4 veitingastaðir allt frá króatískum og miðjarðarhafs mat yfir í  skemmtilegan grillmat á ströndinni.
    Við smábátahöfnina eru verslanir, barir og  veitingahús.
     
    Herbergin eru að meðaltali 30fm og eru með lofthæðarháa glugga sem opnast út á stórar svalir, 40″ snjallsjónvarp,Wi-Fi og háhraðanettengingu, hágæða húsgögn, sérstýrða loftkælingu, hárþurrku, mínibar og öryggishólf. 
    Hótelið er með heilsulind á heimsmælikvarða sem inniheldur gufuböð, eimböð, nuddpott, nagla-og fótsnyrtingarstofur, djúpslökunarherbergi,  líkamsrækt og dásamlega infinity sundlaug.  Mikið úrval meðferða er í boði í heilsulindinni, 
    Einnig er mikið í boði á hótelinu eins og tennisvelli, vatnasport, hjól og bátsferðir.
    Á hótelinu er næturklúbbur sem hægt er að leigja undir hópinn.
  • Amphora Hotel 4 ⭐ Amphora Hotel er staðsett við ströndina og býður upp á 3 sundlaugar með sundlaugarbar, sólbekkjum og sólhlífum. Það er staðsett í Split og er…
    Amphora Hotel er staðsett við ströndina og býður upp á 3 sundlaugar með sundlaugarbar, sólbekkjum og sólhlífum. Það er staðsett í Split og er með 2 veitingastaði, bar og heilsulind og vellíðunaraðstöðu.
    Öll herbergin eru nútímalega og glæsilega innréttuð og státa af setusvæði með TV, loftkælingu, minibar, skrifborði og svölum. Sérbaðherbergið er með sturtu, hárþurrku og ókeypis snyrtivörum. Baðsloppur og inniskór eru í boði fyrir gesti. Hótelið býður upp á líkamsræktarstöð og sólarhringsmóttöku. Æðislegur morgunverður er í boði á hverjum morgni.
    Áhugaverðir staðir í nágrenni Amphora Hotel eru meðal annars Znjan-ströndin, Duilovo-hundaströndin og Trstenik.
  • AC Hotel by Marriott Split 5 ⭐ AC Hotel by Marriott Split er staðsett í Split, í innan við 2,5 km fjarlægð frá Bacvice-ströndinni og býður upp á bar, reyklaus herbergi…
    AC Hotel by Marriott Split er staðsett í Split, í innan við 2,5 km fjarlægð frá Bacvice-ströndinni og býður upp á bar, reyklaus herbergi og ókeypis WiFi. Áhugaverðir staðir í nágrenninu eru til dæmis styttan Grgur Ninski, Fornleifasafnið í Split og torgið Narodni Trj. Gestir geta nýtt sér heilsulind og vellíðunaraðstöðu með innisundlaug, líkamsræktarstöð og gufubaði ásamt veitingastað.
    Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með skrifborði, katli, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu. Herbergin eru með fataskáp.
    Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á hverjum morgni á gististaðnum.

Umsagnir

Skoða allar umsagnir
Við áttum ógleymanlega og einstaklega vel heppnaða árshátíðarferð til Split í Króatíu. Ferðin heppnaðist frábærlega í alla staði og hópurinn kom heim alsæll eftir dásamlega daga í sól, fallegu umhverfi…

Vinnuvernd

Fyrirtækjaferðir – Króatía

Lesa umsögn frá Vinnuvernd
60 ára afmælisferð Rafverkstæðis IB ehf til Split.   Við erum alsæl með Split velheppnuð ferð hjá okkur og það var fínt að hafa ekki allt of mikla dagskrá fyri…

Rafverkstæði IB

Fyrirtækjaferðir – Króatía

Lesa umsögn frá Rafverkstæði IB
Besta árshátíðarferð sem við höfum farið og höfum við farið víða! – RJC ehf. Ég get hiklaust mælt með Tripical þegar kemur að skipulagningu ferðar. Tripical voru fljót að svara…

RJC

Fyrirtækjaferðir – Króatía

Lesa umsögn frá RJC

Algengar spurningar

  • Hvers vegna ætti fyrirtækjahópur að velja Split?

    Split býður fyrirtækjahópum tækifæri til að sameina sögulega miðborg og Adríahafið. Hægt er að móta ferðina út frá því hvort hópurinn vill sameiginlega afþreyingu, góða veitingastaði eða meiri frítíma.

  • Hvaða upplifanir er hægt að skipuleggja í Split?

    Meðal hugmynda að dagskrá eru göngu um Diocletianusarhöll og bátsferð. Tripical getur kannað framboð og sett saman dagskrá sem hentar fjölda þátttakenda og ferðatíma.

  • Hvernig er best að skipuleggja samveru starfsfólks í Split?

    Hópurinn getur kynnst Dalmatíuströndina og njóta sögulega miðborg og Adríahafið. Sameiginleg upplifun yfir daginn og góður kvöldverður geta skapað jafnvægi milli dagskrár og frjáls tíma.

  • Er hægt að halda árshátíð eða sameiginlegt kvöld í Split?

    Já. Tripical getur kannað veitingastaði og hentuga staði fyrir sameiginlegan kvöldverð eða árshátíðarkvöld í Split. Endanlegt fyrirkomulag, staðsetning og framboð ráðast af hópastærð, dagsetningum og fjárhagsramma.

  • Hvað sér Tripical um í fyrirtækjaferð til Split?

    Tripical getur skipulagt flug, gistingu, samgöngur, veitingar og afþreyingu eftir þörfum. Fyrirtækið fær sérsniðna tillögu þar sem tekið er mið af dagsetningum, hópastærð, óskum og fjárhagsramma.

Um áfangastað

Króatía er einn af sterkari áfangastöðum Tripical fyrir hópa með fallegum strandborgum, góðu loftslagi og fjölbreyttri afþreyingu.

Skoða Króatía

Tilboð í ógleymanlega ferð?

Hafðu samband og við sendum þér sérsniðið tilboð fyrir þinn hóp.

Fá tilboð fyrir þinn hóp