Lögfræðingafélag Íslands – Fræðsluferð til Varsjár og Krakár - Tripical

Lögfræðingafélag Íslands – Pólland

Fræðsluferðir
  • Áfangastaður Pólland
  • Hópastærð 60 manns
  • Ferðatími September 2025
  • Þjónusta Tripical Hótel, Flug, Dagskrá

Lögfræðingafélag Íslands fór í 60 manna fræðsluferð til Varsjá og Kraká í Póllandi í september 2025 og leitað var til Tripical með skipulag og undirbúning ferðarinnar.

Það kom skemmtilega á óvart hversu góðan tíma sérfræðingar ferðaskrifstofunnar gáfu sér í samtöl, fundarhöld og ýmislegt sem laut að gerð dagskrár og undirbúningi ferðarinnar.

Vefsíða var sett upp fyrir ferðina okkar og þar kom fram með mjög skýrum hætti dagskrá ferðar, tímasetningar, tengiliðir fyrir einstakar ferðir og viðburði. Jafnframt fengum við frábærar tillögur um skoðunarferðir sem okkur hefði aldrei hugkvæmst. Stöðugt komu þau okkur á óvart með viðbótarupplýsingum, s.s. með lista yfir kaffihús, veitingastaði, söfn o.fl. og jafnvel fjarlægðir frá hótelinu okkar.

Það mátti svo greinilega merkja faglegan metnað hjá okkar sérfræðingum hjá Tripical og mikinn áhuga á að kynna fyrir hópnum sem bestu upplýsingar um land, þjóð og menningu. Óhætt er að segja að ferðalangar hafi komið ánægðir úr förinni og við getum svo sannarlega gefið Tripical okkar bestu einkunn.

–

Margrét

Lögfræðingafélag Íslands

Loftmynd af Aðaltorginu í Kraká með Klæðahöllinni
Lögfræðingafélag Íslands

Um ferðina

Lögfræðingafélag Íslands fór með 60 manna hóp í fræðsluferð til Varsjár og Krakár í september 2025. Tripical sá um skipulag og setti upp vefsíðu með dagskrá, tímasetningum og tengiliðum, auk tillagna um skoðunarferðir.

Þjónusta Tripical í þessari ferð

  • Hótel
  • Flug
  • Dagskrá

Aðrar umsagnir frá hópum Tripical

Skoða allar umsagnir
Fyrirtæki Fyrirtækjaferðir

Pólland 25 manns

SoftwareOne – Wroclaw, Pólland Við hjá SoftwareOne áttum frábæra ferð til Wroclaw í Póllandi og getum svo sannarlega mælt með þessum áfangastað. Borgin er falleg, með…

Fjölskylda til Gdansk

Pólland 20 manns July 2026

Í lok júlí ákváðum við systkini ásamt mökum 12 saman til Gdansk Póllandi í viku, höfðum samband við Tripical sem sá um að panta flug, rútu…

Leikskólinn Múlaborg Fræðsluferðir

Pólland 40 manns April 2026

Ferðin okkar gekk mjög vel. Hótelið var dásamlegt – staðsetningin verður varla betri. Það var hreint, nútímalegt og ég myndi hiklaust mæla með því fyrir alla.…

Eirvík og Progastro Fyrirtækjaferðir

Pólland 30 manns April 2026

Ótrúlega mikil ánægja með dásamlega ferð – Eirvík og Progastro til Gdansk Við höfðum samband við Tripical í lok janúar varðandi árshátíðarferð erlendis og vissum að…

Við höfum hjálpað hundruðum fyrirtækja og skóla að skapa eftirminnilegar ferðir.

Yfir 80 hópar hafa ferðast með Tripical.

Hafðu samband