Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar búa í kringum 450.000 manns, en hátt í 1 milljón í héraðinu öllu. Auld Reekie eins og borgin heitir á skosku (og þýðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Edinborg býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar liggja bókstaflega saman hlið við hlið miðaldabyggingar og nýtískubyggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr. Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana. Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.
Edinborgarkastali er mest heimsótti staður af ferðamönnum í Skotlandi og þekktastur af köstulum svæðisins. Hann er þó langt frá því sá eini. Fyrir þá sem hrífast af þessum mögnuðu miðaldarbyggingum, er óvíða jafn mikið sem gleður augað og hér. Hægt er að finna forna kastala í ýmsum stærðum og gerðum, standa á svölum þar, horfa yfir Hálendið og ímynda sér að maður sé staddur í Braveheart. “They may take away our lives, but they’ll never take our freedom!”
Miðpunktur menningarlífsins í Edinborg er Edinborgarfestivalið, sem haldið er árlega í borginni og býður upp á endalaust magn af leiksýningum af ýmsu tagi, í stærstu leikhúsum og allt niður í minnsta kráarkjallara. Hátíðin er orðin heimsþekkt og dregur að sér hundruði þúsunda gesta hvaðan æva að. Sem dæmi má nefna að árið 2015 seldust um 2.3 milljónir miða á þá 50.000 viðburði sem í boði voru. Edinborg skipar sér þannig í fararbrodd skoskrar menningar og Skotar afar stoltir af vinsældum hátíðarinnar.
Í skosku borgunum Edinborg og Glasgow eru fleiri græn svæði en í nokkurri annari borg á Bretlandseyjum. Nýjar kannanir yfir græn svæði borga, sýna að Edinborg er á toppi listans, með 49% af grænum svæðum.
Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Sekkjapípan sigrar kannski aldrei keppnina um hljómbesta hljóðfærið. En skoska þjóðin kemst langt í keppninni um skemmtilegustu og vinalegustu gestgjafana. Eru Skotar allsberir undir pilsunum? Þarftu ekki bara að kíkja í heimsókn og tékka á því?
Skosk náttura er ævintýri líkust. Stundum ekki ósvipuð Íslandi, en gróðurfar er sælla, Skotland er grænt, tré eru há, víðáttan mikil. Hér svífa gylltir ernir yfir vötnum og otrar busla á ám. Svæði þar sem þú sérð gyllta örnin svífa yfir vötn og fjöll á norðursvæði landsins og Otra sulla og busla í ám. Og svo auðvitað Loch Ness skrýmslið…
Í Skotlandi eru kastalar mjög margir og allir hafa þeir sín sérkenni og yfir þeim hvílir mikil saga.
Einhvern tíma var hlegið að breskri matargerð og hún kölluð ýmsum miður smekklegum nöfnum. En þess háttar heyrir fortíðinni til! Veitingastaðir í Skotlandi hafa hrist af sér gamalt leiðindarorðspor, þar er víða boðið upp á ferskt staðbundið hráefni, nýveiddan fisk, og kjöt og grænmeti beint frá býli. Ekki er verra að skella í sig eins og einum einföldum viskí til að bæta meltinguna.
Edinborg, höfuðborg Skotlands, er líflegur og heillandi áfangastaður sem laðar að sér gesti alls staðar að úr heiminum. Með sína ríku sögu, töfrandi byggingarlist og fjölskrúðugt menningarlíf hefur Edinborg eitthvað fyrir alla.
Eitt vinsælasta aðdráttarafl hennar verður að teljast Edinborgarkastali, sögulegt virki sem á rætur sínar að rekja til 12. aldar. Gestir geta skoðað kastalann og fræðst um heillandi fortíð hans, þar á meðal hlutverk hans í sjálfstæðisstríðum Skotlands og uppreisn Jakobíta.
En Edinborg státar einnig af fjölmörgum söfnum og galleríum, svo sem Skoska þjóðlistasafninu, Þjóðminjasafni Skotlands og Konunglega grasagarðinum.
Þar að auki er borgin fræg fyrir hátíðir sínar, þar á meðal Edinburgh International Festival, Edinburgh Fringe Festival og Royal Edinburgh Military Tattoo. Þessir viðburðir draga til sín listamenn og áhorfendur alls staðar að úr heiminum, og gera Edinborg að heljarinnar suðupotti sköpunar og skemmtunar.
Hvort sem þú hefur áhuga á sögu, menningu eða skemmtun þá er Edinborg frábær áfangastaður sem er vel þess virði að heimsækja.
Stærsta eyjan við Skotlandsstrendur og þriðji vinsælasti ferðamannastaður landsins (á eftir Edinborg og Loch Ness vatninu). Þar hefur haldist byggð allt frá miðri steinöld og í dag búa þar rúmlega 9 þúsund manns.
Hér finnurðu töfrandi landslag, og einstakt dýralíf, en gullernir, krónhirtir og lax eru meðal dýra sem búa á og við eynna. Það má þó alveg gera ráð fyrir að skoska þokan láti sjá sig og bregði hulu yfir útsýnið. Það er allt í lagi, þú ferð bara og skoðar einhvern af fjölmörgum kastölum eyjunnar og færð þér svo mat og drykk á góðum veitingastað í bænum.
Aberdeen er orkuborg og þekkt undir nafninu Granítborgin, eftir undirstöðu borgarinnar og svæðinu í kring. Ekki langt frá er hin yfirgefna Rubislaw Quarry náman, sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Á björtum sumardegi má sjá borgina glitra af endurkasti granítsins. Aftur á móti geta dagarnir verið heldur lágskýjaðir og stundum erfitt að átta sig á hvar byggingarnar enda og himininn tekur við. Viðurnefni borgarinnar á þó líka að nokkru leyti við um íbúanna, sem þykja grjótharðir.
Aberdeen hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu ár, ekki síst vegna stórfellds olíuiðnaðar í Norðursjó. Fjármagnið sem honum fylgir hefur hækkað verðlag, sem þykir nú jafn hátt þar og í Lundúnum.
Aberdeen er orðin lúxusborg. Nýtísku hótel, veitingastaðir og klúbbar hafa risið upp, sem og fjölbreyttari afþreying og skemmtun. Hér eru líka að sjálfsögðu söfn sem vert er að skoða, og aldagamlar byggingar. Og það sem mörgum finnst mikilvægast af öllu: Risamoll! Hér er hægt að versla vel og mikið!
Þetta hótel er á besta stað sem hægt er að velja sér, í gamla bænum. Alveg hjá göngugötunni Princes Street og rétt hjá Edinborgar kastalanum.
Það er bar, veitingastaður og flott líkamsræktarstöð á hótelinu.
Sjáðu meira um hótelið hér.
Nútímalegt 3-stjörnu hótel, staðsett í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá gamla bæ Edinborgar.
Gamli bærinn er frábær staðsetning fyrir ferðamenn sem hafa áhuga á mat, veitingastöðum og sögu.
Sjáðu meira um hótelið hér.
Haymarket Hub Hotel er staðsett við gamla bæinn og rétt hja Edinborgar kastalanum. Rétt hjá hótelinu er hinfræga verslunargata Princes Street, þar sem má finna úrval af hvers kyns búðum til að gera góð kaup.
Á hótelinu má finna flottan bar og veitingastað.
Sjáðu meira um hótelið hér.