Centralbros

Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir
  • Hópastærð 60 manns
  • Ferðatími May 2026
  • Þjónusta Tripical Dagskrá, Fararstjórn, Flug, Hótel, Veitingastaðir

Við áttum dásamlega helgi í Portugal, Algarve, með vinnufélögum & mökum.

Ferðin gekk öll smurt fyrir sig & allir endurnærðir eftir frábæra upplifun í suður Portugal. Rúturferðir til og frá staða voru allar samkvæmt plani.

Hótelið okkar, Marriott golf resort & spa, var glæsilegt. Virkilega fallegt, snyrtileg & rúmgóð herbergi. Maturinn virkilega fínn og morgunmaturinn með þeim betri sem við höfum fengið á hótelum erlendis, ferskleiki og úrval framúrskarandi.

Flottur golfvöllur sem einhverjir úr hópnum spiluðu á & getum mælt með.

Svæðið í kring og old town Albufeira hentar mjög vel fyrir svona helgi, ekki of stórt og því aldrei langar vegalengdir sem þurfti að ferðast.

Fallegur miðbær, strendur & nóg af góðum veitingastöðum að velja úr.

Heilt yfir virkilega velheppnuð ferð að öllu leiti og getum við svo sannarlega mælt með þessu svæði & Tripical til að aðstoða við plön á slíkri ferð.

 

Takk fyrir okkur.

Centralbros

Um ferðina

Hópur frá Centralbros fór í helgarferð til Albufeira á Algarve-ströndinni í suðurhluta Portúgals í byrjun maí 2026, ásamt mökum. Gist var á Marriott golf resort & spa og rútuferðir til og frá staðnum voru skipulagðar.

Í gamla bænum í Albufeira er stutt í strendur, veitingastaði og golfvöll, og svæðið hentar vel fyrir styttri hópferðir þar sem vegalengdir eru litlar.

Þjónusta Tripical í þessari ferð

  • Dagskrárgerð og skipulag
  • Fararstjórn og aðstoð á staðnum
  • Flug og flugvallaraðferð
  • Hótel
  • Veitingastaðir og kvöldverður

Aðrar umsagnir frá hópum Tripical

Skoða allar umsagnir
Ísloft Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Pólland 45 manns September 2026

Frábær ferð hópsins okkar til Wroclaw, góð skipulagning varðandi flug og rútuferðir hjá Tripical, stóðst væntingar. Skemmtum okkur konunglega!

Læknastöðin – Orkuhúsinu Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Svartfjallaland 110 manns September 2026

Við fórum í stórkostlega árshátíðarferð til Svartfjallalands með Tripical og vorum nú annað skiptið í röð í þeirra höndum, enda skipulagið og utanumhaldið frábært. Við höfum…

Sjúkraþjálfun Íslands Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Tékkland 100 manns October 2026

Við hjá Sjúkraþjálfun Íslands fórum í árshátíðarferð til Prag á vegum Tripical og gætum ekki verið ánægðari með upplifunina! Skipulag alveg frá fyrsta degi var algjörlega…

Við höfum hjálpað 1.000+ hópum að skapa eftirminnilegar ferðir.

Yfir 90 hópar hafa gefið okkur umsögn.

Hafðu samband