Nú styttist óðum í ferðina og kominn tími til að hefja undirbúning.
OPNUNARPARTÝ – 29.05.2024
Opnunarpartýið verður á uppáhaldsstaðnum okkar, Soco Pool Lounge Bar, allur staðurinn er alveg prívat fyrir ykkur. Þar koma fram íslenskar stjörnur sem halda uppi fjörinu. Músík, dans, ljós, fjör, opinn bar í eina klst (kokteill, sangría, bjór, gos og vatn), öryggisgæsla og íslensku fararstjórarnir til taks á svæðinu. Frá 21:00 til 24:00
TOGAPARTÝ – 04.06.2024
Fátt skemmtilegra en að vefja um sig hvítu laki og líða eins og rómönskum keisaraynjum og keisurum, dansandi inn í nóttina. Partýið verður haldið á Soco Pool Lounge Bar. Plötusnúður og endalaust fjör. Lak innifalið og opinn bar í eina klst (kokteill, sangría, bjór, gos og vatn)! Frá 21:00 til 24:00
Það sem er innifalið:
Ferð í vatnsrennibrautargarð – 01.06.2023
Heimsókn í vatnsrennibrautagarðinn Aqualand El Arenal. Garðurinn er stútfullur af spennandi skemmtun, tilbúnum ám og vötnum, alls kyns rennibrautum og sundlaugum. Brottför frá hóteli kl. 12:00 og heimakoma kl 18:00.
Verslunarferð til Palma – 03.06.20234
Rútuferð til Palma,þar sem öllum gefst frjáls tími til að ganga um borgina, setjast á kaffihús, ganga um götur og t.d. versla, versla, versla! Brottför frá hóteli kl. 12:00.
Catamaran snekkjupartý með léttum veitingum- Siglt frá Palma ⚓️ – 03.06.2024
Siglum um hafið bláa og stoppum í fallegum flóa þar sem gefst tækifæri til að hoppa út í sjó og synda. Njótum samverunnar og tónlistar um borð. Siglt frá kl.17:00 til ca. kl. 21:00.
VERÐ Á SKEMMTIPAKKA: 19.990 kr.