Skip to content
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Gestgjafaumsókn
Tripical
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Gestgjafaumsóknir
  • Blogg
  • Um Tripical
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin Okkar

Fyrirtækjaferðir til Brighton

Lengd ferðar:
4 dagar
Gjaldmiðill:
Enskt pund

Gott frí í höfn – velkomin til Brighton!

Brighton er enskur strandbær í klukkutíma fjarlægð með lest frá London, og mjög vinsæll fyrir dagsferðir frá höfuðborginni. Þar er löng strandlengja, mjög áhugaverður skemmtigarður og margar fallegar 18. aldar byggingar. Brighton er auk þess þekkt fyrir mjög fjörugt næturlíf, fjölmörg listagallerý eru í bænum og  fjölbreytt úrval verslana.

Stór hluti af aðdráttarafli bæjarins eru byggingar og garðar frá Viktoríutímanum. Má þar nefna Metropole hótelið (núna Hilton Grand Hótel), Vesturhöfnina (West Pier) og Brighton Palace höfnina (Brighton Palace Pier). Brighton tók góðan vaxtarkipp á 20. öldinni og færðist smám saman í það horf sem bærinn er nú.

Brighton er mjög vinsæll ferðamannastaður. Þar ríkir vinaleg og friðsamleg afstaða til samkynhneigðra og borgin oft nefnd óopinber höfuðborg samkynhneigðra í Englandi. Verslunarhverfin þykja nútímaleg,  þau eru öðruvísi og töff, og tónlistar- og listasenan er einstaklega lifandi og skemmtileg. Þess má geta að Brighton hefur líka verið kölluð mest hip og kúl borg Bretlands, sem og hamingjuríkasti staðurinn að búa á.

Í faðmi fallegra trjáa

Í Brighton er að finna dásamlegan garð, sem er vinsæll áningarstaður gesta, og í honum miðjum hin einstaka bygging The Royal Pavilion, fyrrum bústaður konungsfjölskyldunnar, sem einnig er vert að skoða. Garðinum er haldið í 18. aldar stíl, og hópur sjálfboðaliða sér um að halda honum í góðu standi. Þeir veita gestum einnig upplýsingar um staðinn, sögu hans og þær plöntur sem þar er að finna. Einstakur staður til að liggja í grasinu, njóta fullkominnar afslöppunar og hlaða batteríin.

Fiskiþorparómantík

Brighton’s Lanes er eitt fallegasta og um leið sögufrægasta hverfi borgarinnar. Þröngar götur frá þeim 18. aldar fiskibæ sem Brighton var forðum, blandast hér skemmtilega við nútímalegar smáverslanir og kaffihús. Stórgóð blanda af því gamla og nýja.

Hægt er að bóka ferðir um svæðið með úrvals leiðsögn, þar sem gestir geta meðal annars upplifað eftirfarandi:

  • einstakt andrúmsloft og stemmingu fyrri tíma
  • byggingarlist og sögu 18. aldar í Englandi
  • lífið í klassískum enskum fiskibæ

Leiðarvísar

Þegar Brightonbúar eru spurðir til vegar, er líklegt að þeir noti kennileiti til að vísa þér á réttan stað. Klukkuturninn (Clocktower) er vinsælt kennileiti, en hann stendur sunnan við lestarstöðina við enda Queen’s Road, efst á West Street. Þaðan liggur Western Road til vesturs, sem er stór verslunargata, og North Street til austurs. Ef þú gengur hálfa leið niður North Street, ertu með The Lanes samliggjandi á hægri hönd og North Lane á vinstri hönd. Ef þú gengur North Street til enda kemurðu að Royal Pavilion garðinum til vinstri. Gatan endar svo á opnu svæði við sjávarsíðuna, Old Steine, þar sem finna má Palace Pier. Auðvelt er að rata til Kemptown þaðan, sem og að fallegum almenningsgarði sem kallaður er The Level. Svo er auðvitað alltaf bara hægt að Gúggul Mappa, ef maður er í vafa.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Falleg bryggja
  • favorite
    Æðislegur miðbær
  • favorite
    Fallegir garðar
  • favorite
    Góður bjór

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 3 nætur á hóteli í miðbæ Brighton
  • 20kg innritaður farangur
  • Morgunmatur

Ekki innifalið

  • Heimsókn til Nick Cave, sem á einmitt heima í Brighton.
  • Cate Blanchett tekur heldur ekki á móti gestum.
  • Heimsókn til John Erwin, fisksala í miðbænum. Topp náungi, en ekki mikið fyrir gestagang.

Skemtileg staðreynd um Brighton

Adolf elskaði Brighton

Heimildir segja að í seinni heimsstyrjöldinni, hafi það verið skýr fyrirmæli frá Adolf Hitler, að alls ekki mætti henda sprengjum á Brighton, og alls alls ekki hinar konunglegu byggingar þar. Sjálfur hafði hann hugsað sér að nýta höllina sem sumarbústað við ströndina þegar hann hefði sigrað stríðið.

Brighton

Brighton

Sjávarbær á suðurströnd Englands, 75 km suður af London. Íbúatala: 289.200.

Til eru heimildir um bæinn, þá undir nafninu Brighthelmstone úr Dómsbók frá árinu 1086. Bærinn stækkaði mikið og dafnaði í kringum miðaldir, en varð fyrir áföllum síðar með árásum fjandríkja og vegna slæms veðurfars. Með bættum lestarsamgöngum varð staðurinn æ vinsælli áfangastaður, auk þess að vera mikilvægur hafnarbær fyrir skip á leið til Frakklands. Þá jukust vinsældir þegar sjóböð urðu algengari sem aðferð til bættari heilsu.

 

Bretland

England

Almennar upplýsingar:

Fjöldi fólks: 65.640.000

  • Stærð að flatamáli: 242,495 km²
  • Opinbert Tungumál: Enska
  • Gjaldmiðill: Breskt pund / 1GPB = 140kr
  • Hitastig: 7°-20°
  • Tímabelti: 0-1 tímum á undan Íslandi

Íbúatala á Bretlandi er í kringum 65 og hálf milljón. Bretlandi og íbúum þess má skipta í fjóra parta sem eru eftirfarandi:

  • England er stærst og fjömennast Bretlandseyja.
  • Skotland liggur norðan við England, næst stærst Bretlandseyja. Skotar tala flestir ensku, en þó með sínum sterka hreim. Einnig er skosk gelíska töluð á einstaka svæði.
  • Wales liggur vestan við England. Walesverjar eiga sitt eigið keltneska tungumál, sem yfirleitt er kallað Waleska. Flestir í Wales tala þó einnig ensku.
  • Norður-Írland er hluti af Írlandi og liggur vestan við England. Þar er töluð írska, sem er keltneskt tungumál, en einnig enska.

Englendingar eru mjög blönduð fjölmenningarþjóð og þannig hefur það verið um aldir. Eins og víða annars staðar má þar finna fólk sem er óvinveitt erlendum gestum, en landið er þó þekkt fyrir að vera eitt af vinsamlegri löndum gagnvart útlendingum og rasismi er þar t.a.m. í miklu lágmarki samanborið við ýmsar aðrar þjóðir. Reglan hér er: Brostu, vertu kurteis, og ekki riðjast. Þá eru þér allir vegir færir á Bretlandseyjum öllum.

Þótt oft sé gert grín að enskri matargerð og því haldið fram að hún sé alls ekki góð, eiga Englendingar nokkra fræga rétti sem matreiddir eru víða um heim. Þar má nefna Beef Wellington og Steak and Kidney Pie, og svo auðvitað gamla góða samlokan! England er þó í dag svo fjölmenningarlegt samfélag að auðvelt er að hafa upp á stöðum sem bjóða upp á fyrsta flokks rétti hvaðan æva að úr heiminum. Hér eru æðislegir indverskir og ítalskir veitingastaðir, og auk þess endalaust úrval af asískum stöðum.

Hótelin Okkar

  • add The Grand Brighton 4 🌟

    The Grand Brighton ****

    Eitt af fallegri hótelum Brighton, byggt í hinum gamla stíl Viktoríutímans, í bland við nútíma arkitektúr. Hótelið er á frábærum stað, alveg við ströndina og í 10 mínútna fjarlægð frá Brighton bryggjunni.

    Herbergin eru öll innréttuð með hágæða húsgögnum sem voru sérvalin inn í hvert einasta herbergi. Á hverju herbergi má finna Wi-fi og flatskjá.

    Hótel Spa-ið er einstaklega flott og nýtur mikilla vinsælda á meðal hótelgesta.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Hilton Brighton Metropole 4 🌟

    Hilton Brighton Metropole ****

    Þetta hótel hefur verið byggt í gömlum antík stíl, en með nútímalegu ívafi í hönnun. Það stendur við stöndina og mjög nálægt verslunargötunum frægu “The Lanes.”

    Það eru 2 góðir veitingastaðir á hótelinu, bar sem býður upp á fantagóðan G&T, og líkamsrækt með innisundlaug og Spa.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

     

  • add Ibis Brighton City Centre 3 🌟

    Ibis Brighton City Centre ***

    Staðsett í miðbæ Brighton og í 12 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Hótelið er nútímalegt og bíður upp á “hip” stemmingu. Herbergin eru öll nýtískuleg með Wi-fi, hárblásara og sjónvarpi.

    Það má finna fjölda veitingastaða og kráa í næsta nágrenni. Fullkomið hótel fyrir fólk sem vill kynnast miðbæ Brighton.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

Verð frá 79.000 kr.

Fyrirspurn um ferð

Tripical

Borgartúni 8, 105 Reykjavík

+354 519 8900

hallo@tripical.com

Gott að vita

Skilmálar

Algengar spurningar

Hafa samband

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Balí
  • Búlgaría
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Rússland
  • Skotland
  • Srí Lanka
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn
  • More Networks
Share via
Facebook
Twitter
LinkedIn
Mix
Email
Print
Copy Link
Powered by Social Snap
Copy link
CopyCopied
Powered by Social Snap