Fræðsluferð til Helsinki og Tallinn

  • Áfangastaður Finnland
  • Hópastærð 20–200 manns
  • Tímabil Allt árið
  • Lengd ferðar 5 dagar / 4 nætur
  • Gjaldmiðill Evra
Sjá myndir

Um ferðina

Tveir staðir, ein ferð

Helsinki og Tallinn bjóða kennarahópum einstakt tækifæri til að bera saman tvö ólík samfélög í einni ferð. Finnsk áhersla á jafnræði og vellíðan og eistnesk reynsla af stafrænum lausnum skapa spennandi umræðugrundvöll. Það sem gerir þessa ferð sérstaka er að kennarahópurinn getur rætt tvær ólíkar nálganir á menntun á meðan upplifunin er enn fersk. Það er mikill munur á því að lesa um erlend skólakerfi og að heyra sjónarmið þeirra sem starfa í þeim. Hópurinn getur valið sameiginlega spurningu, til dæmis hvernig styðja megi vellíðan nemenda, og skoðað hana frá tveimur sjónarhornum.

Fræðsla sem nýtist áfram

Kanna mætti skólaheimsóknir í báðum borgum og ræða hvernig tækni, kennsluhættir og samstarf birtast í daglegu skólastarfi. Það er líka dýrmætt að geta rætt upplifanir dagsins við samstarfsfólkið yfir góðum kvöldverði. Slíkar samræður eru oft upphafið að hugmyndum sem nýtast áfram í skólanum.

Borgin utan skólastofunnar

Ferjusigling yfir Finnska flóann, norræn hönnun Helsinki og miðaldagötur Tallinn gefa ferðinni óvenjulega fjölbreytni. Ferðin gefur líka tækifæri til að styrkja tengsl innan hópsins og njóta nýs umhverfis saman. Á ferðinni milli borganna gefst líka góður tími til að bera saman hugmyndir. Hvað vakti mesta athygli í Helsinki? Hvað var öðruvísi í Tallinn? Slík samtöl geta orðið verðmætasti hluti starfsþróunarinnar.

Skipulag ferðarinnar

Tripical aðstoðar við að skipuleggja flug, gistingu, samgöngur og fræðsludagskrá eftir óskum hópsins. Skólaheimsóknir og faglegar kynningar eru alltaf háðar staðfestingu viðkomandi skóla eða stofnunar.

Hápunktar ferðar

  • Hönnun á heimsmælikvarða
  • Æðislegir miðbærir í báðum borgum
  • Vellíðan í sánu
  • Finnsk og Eistnesk matargerð

Við aðstoðum við flug, gistingu, samgöngur og dagskrá eftir óskum kennarahópsins. Faglegar heimsóknir eru skipulagðar út frá markmiðum hópsins og verða hluti af staðfestri ferð þegar viðkomandi aðilar hafa samþykkt þær.

Innifalið

  • Flug fram og til baka með Icelandair/Finnair
  • 1 nætur á hóteli miðsvæðis Helsinki (Með morgunmat)
  • 3 nætur Tallinn (Með morgunmat)
  • 23 kg innritaður farangur
  • Rútur til og frá flugvelli
  • Ferjan til Tallinn
  • Rútur til og frá Ferry Terminal

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Farastjórn
  • Fræðslupakki (Fræðsluheimsóknir og námskeið)

Dagskrá fræðslu

Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.

Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.

Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!

Hótelin okkar

  • Citybox Helsinki 3* eða sambærilegt - Verð frá: 149.900kr.- á mann í tvíbýli Citybox Helsinki 3*

    Citybox Helsinki 3*

    Citybox Helsinki er staðsett á hrífandi stað í Kallio-hverfinu í Helsinki, í 1,4 km fjarlægð frá dómkirkjunni í Helsinki, í 1,6 km fjarlægð frá aðaljárnbrautarstöðinni í Helsinki og í 1,7 km fjarlægð frá Ólympíuleikvanginum í Helsinki. Þetta 3 stjörnu hótel er með sameiginlega setustofu og loftkæld herbergi með ókeypis WiFi og sérbaðherbergi. Gistirýmið er með sameiginlegt eldhús og farangursgeymslu fyrir gesti.

    Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og einkunn 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com

  • Scandic Helsinki Hub 4* eða sambærilegt - Verð frá: 189.900kr.- á mann í tvíbýli Scandic Helsinki Hub 4*

    Scandic Helsinki Hub 4*

    Scandic Helsinki Hub er staðsett í Helsinki, 1,9 km frá Uunisaare-ströndinni og býður upp á gistirými með ókeypis reiðhjólum, einkabílastæði, heilsuræktarstöð og sameiginlegri setustofu. Meðal aðstöðu á gististaðnum er veitingastaður, herbergisþjónusta, sólarhringsmóttaka og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er 2,1 km frá Hietaranta-ströndinni og innan við 1 km frá miðbænum.

    Öll herbergin á hótelinu eru með flatskjá og öryggishólfi. Herbergin eru með sérbaðherbergi með skolskál og hárþurrku og sumar einingar á Scandic Helsinki Hub eru einnig með setusvæði. Herbergin eru með minibar.

    Gistirýmið býður upp á 4 stjörnu gistirými með gufubaði og verönd.

    Áhugaverðir staðir í nágrenni Scandic Helsinki Hub eru meðal annars Kamppi-verslunarmiðstöðin, Helsinki-rútustöðin og Helsinki-tónlistarmiðstöðin.

    Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og einkunn 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Umsagnir

Skoða allar umsagnir
Við erum í skýjunum með ferðina og munum svo sannarlega mæla með ykkur til að skipuleggja svona ferð. Það var allt uppá 10 og appið sem þið senduð okkur með…

Leikskólinn Bakkaborg

Fræðsluferðir – Finnland

Lesa umsögn frá Leikskólinn Bakkaborg
Langar fyrir hönd allra á Arnarberg að þakka kærlega fyrir okkur! Þetta var frábærlega vel skipulögð ferð og mjög liðleg þjónusta, sérstaklega daginn fyrir brottför 😅 Komu allir gríðarlega sáttir…

Leikskólinn Arnarberg

Fræðsluferðir – Finnland

Lesa umsögn frá Leikskólinn Arnarberg
Frábær, skemmtileg og fræðandi ferð Frábær, skemmtileg og fræðandi ferð. Áslaug og Sólveig voru frábærir  og einstakir fararstjórar sem sýndu okkur mikinn áhuga og voru bara eins og einar af…

Leikskólinn Brekkubær

Fræðsluferðir – Finnland

Lesa umsögn frá Leikskólinn Brekkubær

Algengar spurningar

  • Hvað getur kennarahópur lært í fræðsluferð til Helsinki og Tallinn?

    Áherslan getur verið á samanburð á finnsku og eistnesku skólastarfi. Með því að skilgreina fagleg markmið fyrirfram og ræða upplifanir eftir heimsóknir verður auðveldara að tengja nýjar hugmyndir við eigið skólastarf.

  • Hvaða fræðsludagskrá hentar best í Helsinki og Tallinn?

    Það fer eftir starfsþróunarmarkmiðum hópsins. Við getum kannað skólaheimsóknir, kynningar eða samtöl við fagfólk sem tengjast samanburð á finnsku og eistnesku skólastarfi. Allar slíkar heimsóknir þurfa staðfestingu viðkomandi aðila.

  • Hvernig tengjast Helsinki og Tallinn í einni ferð?

    Borgirnar eru tengdar með ferju yfir Finnska flóann. Ferjutímar eru valdir út frá dagskrá hópsins, svo hægt sé að skipuleggja faglegar heimsóknir og frítíma beggja vegna flóans.

  • Hvað er skemmtilegt að gera í Helsinki og Tallinn utan fræðslunnar?

    Hópurinn getur meðal annars notið ferjusiglingu og gamla bæinn í Tallinn. Sameiginlegur kvöldverður eða borgarrölt gefur líka góðan tíma til að ræða það sem vakti athygli í fræðsludagskránni.

  • Hvernig skipuleggur Tripical fræðsluferð til Helsinki og Tallinn?

    Við aðstoðum við flug, gistingu, samgöngur og dagskrá eftir óskum kennarahópsins. Faglegar heimsóknir eru skipulagðar út frá markmiðum hópsins og verða hluti af staðfestri ferð þegar viðkomandi aðilar hafa samþykkt þær.

Um áfangastað

Finnland hentar vel fyrir fyrirtækja- og fræðsluferðir, með Helsinki sem aðgengilegan áfangastað fyrir íslenska hópa.

Skoða Finnland

Tilboð í ógleymanlega ferð?

Hafðu samband og við sendum þér sérsniðið tilboð fyrir þinn hóp.

Fá tilboð fyrir þinn hóp