Finnland - Tripical

Finnland

Sjá myndir

Finnland

Það er ekki óalgengt að Íslendingar séu teknir fyrir Finna í útlöndum og ansi mörg okkar hafa einhvern tíma fengið spurninguna: ,,Are you from Finland?“ Útlendingum finnst tungumálin okkar hljóma svipað, öll þessi hörðu hljóð í gríð og erg. Svo erum við kannski bara nokkuð áþekk í fasi. Hvað sem veldur þá taka Íslendingar þessum ruglingi yfirleitt ekki nærri sér. Það er nefnilega ekki leiðum að líkjast, Finnar eru frábærir og auk þess er Finnland skemmtilega fjölbreytt og afar fallegt. Ferðalag þangað er því ávísun á mjög góðan félagsskap og dásamlegt umhverfi, heita og góða sánu og fleiri skemmtilegheit.

Saga búsetu í Finnlandi nær aftur til fornalda og hefur mótast af ýmsum menningarlegum, félagslegum og pólitískum þáttum í gegnum aldirnar. Frumbyggjar landsins voru Samar, sem hafa búið í norðanverðu Finnlandi um þúsundir ára. Síðar námu land víkingar bæði frá Rússlandi og Svíþjóð. Á miðöldum var Finnland undir stjórn sænsku krúnunnar og byggð Svía í landinu jókst. Enn í dag er sænskumælandi minnihlutinn enn allstór partur finnskra íbúa. Upp úr 1800 öðlaðist Finnland sjálfræði frá Svíþjóð og finnska varð opinbert tungumál árið 1863. Landið fékk sjálfstæði frá  Rússlandi í kjölfar bolsévikabyltingarinnar snemma á 20. öld, og upplifði verulegan hagvöxt og nútímavæðingu á þeim tíma. Í seinni heimsstyrjöldinni börðust Finnland gegn Sovétríkjunum í tveimur aðskildum átökum og fóru margir Finnar illa út úr þeim hernaði. Eftir stríðið upplifði Finnland hins vegar tímabil uppbyggingar og hagvaxtar, sem stóð allt fram að lokum 20. aldar.  Í dag búa í Finnlandi um 5,5 milljónir, og landið er þekkt fyrir há lífskjör og sterkt félagslegt velferðarkerfi. Landið hefur tiltölulega opna innflytjendastefnu og er heimkynni vaxandi fjölda innflytjenda frá öllum heimshornum.

Finnland er að miklu leyti skógi vaxið, en um 70% af flatarmáli landsins er þakið skóglendi og algengustu trjátegundirnar eru greni og fura. Annað áberandi einkenni eru svo auðvitað öll vötnin. Finnland er þekkt sem land hinna 1000 vatna, þar eru yfir 188.000 vötn, sem þekja tæplega 10% af flatarmáli landsins. Stærst þeirra er Saimaavatn sem er staðsett í austurhluta landsins og er fjórða stærsta stöðuvatn Evrópu. Mörg stöðuvötnin tengjast saman með ám og skurðum, sem gerir þau að mikilvægum hluta af samgöngukerfi landsins. Auk þess eru vötn Finnlands mikilvæg náttúruauðlind fyrir fiskveiðar og afþreyingu og laða að ferðamenn víðsvegar að úr heiminum.

Helsinki

Höfuðborg Finnlands er sannarlega heimsóknar virði, með sitt líflega menningarlíf og töfrandi arkitektúr, og eyjaklasann sem umvefur borgina. Þær telja hátt í 300 og auðvelt að fara í siglingu með ferju og skoða þær. Helsta kennileiti borgarinnar er dómkirkjan, sem rís áberandi hátt og tignarlega í sínum nýklassíska stíl. Þá má líka nefna 18. aldar virkið Suomenlinna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og Temppeliaukio kirkjuna, oft nefnd klettakirkjan. Í Helsinki eru einnig merkileg söfn að sækja, sem dæmi má nefna finnska þjóminjasafnið og samtíma listasafnið Kiasma. Borgin er einnig þekkt fyrir framúrskarandi veitingastaði, kaffihús og bari, sem bjóða upp á bæði hefðbundna finnska matargerð og alþjóðlega rétti.

Helsinki hefur hressa og fjöruga næturlífs senu sem kemur til móts við margvíslegan skemmtanasmekk gesta sinna. Eitt vinsælasta djammsvæðið er Kallio-hverfið, þekkt fyrir vinsæla bari, klúbba og lifandi tónlistarstaði. Þar finnurðu dæmigerðar finnskar krár, töff kokteilbari og brjálaða dansklúbba. Miðbærinn er líka vinsæll til skemmtunar, þar eru einnig vinsælir næturklúbbar og barir.

Aðrir áhugaverðir staðir

Lappland

Lappland er svæði í nyrsta hluta Finnlands og nær yfir heimskautsbaug. Það er þekkt fyrir fallegt náttúrulandslag, víðáttumikla skóga, firði og túndrur. Svæðið hefur um aldir verið heimkynni samískra frumbyggja (einnig nefndir Lappar) og á sér einstaka menningu og sögu.

Í Lapplandi eru veturnir langir og kaldir, og hiti fer oft hressilega niður fyrir frostmark. Á þeim árstíma er svæðið þekkt fyrir töfrandi norðurljósasýningar. Veðrið er mildara á sumrin og hægt að upplifa miðnætursól, þar sem sólin sest aldrei í nokkrar vikur.

Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein í Lapplandi, þar sem gestir koma til að njóta afþreyingar á borð við huskysleða- og vélsleðaferðir, skíða- og hreindýraferðir. Á svæðinu eru nokkur skíðasvæði, þar á meðal Levi, Ylläs og Ruka. Lappland er einnig þekkt fyrir hlutverk sitt í jólaþjóðsögum, þar sem sagt er að þar sé heimili jólasveinsins. Jólasveinaþorpið Rovaniemi er vinsælt aðdráttarafl þar sem gestir geta hitt jólasveininn, séð hreindýrin hans og farið yfir heimskautsbauginn.

Turku

Borgin Turku er staðsett í suðvesturhluta Finnlands, við mynni Aura árinnar og við strendur Eystrasaltsins. Þar búa um 200.000 manns, sem gerir hana að fimmtu stærsta borg landsins. Hún er elsta borg Finnlands, og á rætur að rekja til 13. aldar. Þetta endurspeglast í mörgum sögulegum byggingum og kennileitum. Frægust þeirra er Turku-kastalinn frá 13.öld, sem er vinsæll áningastaður ferðamanna. Turku er lífleg og nútímaleg borg, þar fer fram fjöldi viðburða og hátíðaallt árið um kring, sú vinsælasta er tónlistarhátíð sem fram fer í ágúst og skartar ávallt fremstu klassískum tónlistarmönnum heims.

Saimaa-vatn

Stærsta stöðuvatn Finnlands og þekur yfir 4.000 ferkílómetra svæði, með strandlengju sem spannar yfir 13.000 kílómetra. Vatnið er þekkt fyrir töfrandi umhverfi, þar á meðal fjölmargar eyjar og klettastrendur. Það er einnig mikilvægt náttúrulegt búsvæði fyrir margar tegundir fiska og fugla, þar á meðal Saimaa-hringselinn sem er í útrýmingarhættu, en hann er hvergi að finna nema hér.

Til viðbótar við náttúrufegurð sína er Saimaa-vatn vinsæll ferðamannastaður og býður upp á fjölbreytt úrval af afþreyingu eins og bátasiglingar, fiskveiðar, kajaksiglingar og gönguferðir. Gestir geta líka skoðað bæi og þorp sem liggja á ströndinni, hver með sína einstöku menningu og sögu. Einna vinsælastur þeirra er hinn sögufrægi bær Savonlinna, sem er staðsettur á eyju í Saimaa-vatni og er heimkynni hins fræga Olavinlinna-kastala, miðaldavirki sem byggt var á 15. öld.

Koli þjóðgarðurinn

Þessi þjóðgarður þykir einstaklega fallegur, með stórbrotin klettafjöll, tær stöðuvötn og gróskumikla skóga. Þar er vinsælt að fara í gönguferðir og boðið upp á ýmis konar dýralífsferðir.

Vert er að nefna annan þjóðgarð sem gaman er að skoða, en fyrir utan Helsinki er Nuuksio garðurinn staðsettur og er mjög vinsælt útvistarsvæði.

Álandseyjar

Þessi eyjaklasi þekur yfir 6.000 eyjar og er sjálfstjórnarsvæði Finnlands með einstaka menningu og sögu. Sjóminjasafnið í Mariehamn þykir mjög áhugavert, en vinsælast er að fara í hjólatúr um eyjarnar og skoða meðal annars miðaldarústir Kastelholm-kastalans.

Finnland

Aðventuferðir fyrir hópa til til Helsinki 24. – 27. nóv & 31.nóv – 3.des & 7. – 10.des 2024

Verðin má sjá undir “Dæmi um hótel” flipanum hér að ofan. Fáðu tilboð í þinn hóp með að hafa samband við sölumenn Tripical í fyrirspurnarformi hér til hliðar eða í hallo@tripical.is Helsinki er nútímaleg stórborg umlukin hafi, vötnum og fallegri náttúru....
Finnland

Hópferð til Helsinki

Helsinki er nútímaleg stórborg umlukin hafi, vötnum og fallegri náttúru. Helsinki er borg hönnunar og nýsköpunar með sérstakri samsuðu byggingarstíla. Hljóðlát og vingjarnleg með ýmsum furðulegheitum, finnskri gufu og eitt besta og framsæknasta skólakerfi heims. Við bjóðum upp á margar...
Finnland

Fræðsluferð til Helsinki

Helsinki er nútímaleg stórborg umlukin hafi, vötnum og fallegri náttúru. Helsinki er borg hönnunar og nýsköpunar með sérstakri samsuðu byggingarstíla. Hljóðlát og vingjarnleg með ýmsum furðulegheitum, finnskri gufu og eitt besta og framsæknasta skólakerfi heims. Tripical býður kennurum og öðru...