Fræðsluferð til Dublin - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Fræðsludagskrá

Fræðsluferð til Dublin

Lengd ferðar:
5 dagar / 4 nætur
Land:
Írland
Gjaldmiðill:
Evra

Flugáætlanir 2025

  • 3.-7. september 2025
  • 10.-14. september 2025
  • 17.-21. september 2025
  • 22.-26. október 2025
  • 23.-27. október 2025

Flugáætlanir 2026

  • 22.-26. apríl 2026
  • 29. apríl -3. maí 2026
  • 21.-25. maí 2026
  • 3.-8. júní 2026

Ef engin af áætluðum ferðadagsetningum hentar þér skaltu ekki hika við að hafa samband við sölumenn Tripical: hallo@tripical.is svo við getum rætt aðra valkosti.


Fræðsluferð til Dublin!

Höfuðborg Írlands og órjúfanleg írskri sögu og menningu. Menningarborg stórskálda með glæsilegum dómkirkjum, einstökum hverfum, ótal söfnum og hinum sögufræga Trinity College. Dublin býður upp á líflega tónlist og ríka kráarmenningu með glaðlyndum íbúum þar sem skemmtun er á hverju horni. 

Tripical býður kennurum og öðru starfsfólki skóla upp á fræðandi og skemmtilega kennaraferð og skólaheimsókn til menningarborgarinnar Dublin. Þar munum við kynnast frábrugðnu skólakerfi í glæsilegu umhverfi og fræðast um áhugaverða sögu og menningu ásamt góðum skammti af skemmtun. Í skólaheimsóknum okkar leggjum við alltaf áherslu á að heimsækja áhugaverða skóla sem eru leiðandi í kennslu, hver á sínu sviði.

Við bjóðum upp á margar fræðandi kynnisferðir um borgina og merka staði og erum alltaf tilbúin til að skipuleggja skemmtilega viðbótardagskrá og kynnisferðir eftir séróskum hvers hóps. Við hjá Tripical viljum einnig að makar séu velkomnir með í kennaraferðir okkar og því bjóðum við mökum alltaf upp á sérstaka skemmtidagskrá meðan á skólaheimsóknum stendur svo allir geti notið ferðarinnar sem mest.

Söguleg og stormasöm fortíð

Dublin hefur verið í deiglunni síðan á 9. öld þegar víkingar settust þar að og stunduðu þaðan rán sín um Bretlandseyjar allt fram á 12. öld. Leifar fortíðar víkinga eru nú löngu afmáðar í borginni en Dublin er engu að síður opið sögusafn með miðaldarkastölum og dómkirkjum við hlið fágaðra 18. aldar bygginga þegar Dublin var ein glæsilegasta borg breska heimsveldins og endurspeglaði metnað írsku yfirstéttarinnar. Hvernig Írar misstu síðan völd og áhrif yfir sínu eigin landi er önnur saga og þú munt ekki komast hjá því að fræðast um það í einhverjum af þeim fjölmörgu kynnisferðum og söfnum sem borgin býður upp á.

Pöbbaborg

Dublin er ekki kölluð pöbbaborgin af ástæðulausu. Í borginni er fjöldin allur af börum, veitingastöðum og klúbbum þar sem finna má fjölbreytta stemmingu. Margir vilja meina að Dublinarbúar séu glaðlyndasta fólk sem til er og taka ferðamönnum með opnum huga og af kurteisi. Dublinarbúar eru einnig alþekktir fyrir sína bjórmenningu og Guiness bjórinn er eitt af því sem þeir eru mjög stoltir af ásamt góðu írsku viský. Það er frábært að rölta um miðbæ Dublinar og kíkja á veitingastaði eða verslanir og spjalla við fólkið sem býr í þessari merkilegu borg.

Göngutúr meðfram Liffey

Þeir sem vilja kynnast Dublin vel ættu að byrja á því að rölta niður með ánni Liffey. Hún liggur í gegnum helstu hluta borgarinnar og gefur þeim sem ganga meðfram bakka hennar góða yfirsýn á það sem Dublin býður upp á. Áin skiptir borginni í tvennt, norður og suður hluta.

Fyrirtaks verslunargötur

Það má segja að í Dublin megi finna verslunargötur við allra hæfi. Þar eru tískubúðir sem bjóða upp á allt það nýjasta sem finnst í tískuheiminum. Tvær helstu verslunargötunar eru staðsettar sitthvorum megin við ána og því er auðvelt að eyða heilli helgi að rölta um, versla og njóta mannlífsins.

 

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Sögulegt umhverfi
  • favorite
    Vingjarnlegt heimafólk
  • favorite
    Góðar verslunargötur
  • favorite
    Lifandi kráarmenning

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 4 nætur á hóteli í miðbæ Dublin (Með morgunmat)
  • 20 kg innritaður farangur
  • Rútur til og frá flugvelli

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Fararstjórn (óska ​eftir sérstaklega)
  • Fræðsluheimsóknir og námskeið (óska ​eftir sérstaklega)
  • City Tax er ekki innifalinn í verðinu og greiðist á hótelinu

Verð frá: 139.900kr.- á mann í tvíbýli

Hotel St George by Nina Hotel 3* eða sambærilegt

Hotel St George er staðsett í hjarta miðborginnar í Dublin, efst á O’Connell Street og í innan við 200 metra fjarlægð frá Henry Street. Herbergin eru með ókeypis WiFi og sérbaðherbergi.

Í herbergjunum eru hárþurrkur, símar og te-/kaffiaðstaða. Þau eru sérinnréttuð en eru prýdd upprunalegum séreinkennum byggingarinnar sem er frá Georgstímabilinu. Íbúðirnar eru í innan við 7 mínútna göngufæri frá aðalbyggingunni og þær eru með vel búnu eldhúsi, stofu og borðkrók.

Setustofan er stórglæsileg, með antíkstiga, kristalljósakrónum og marmaralögðum örnum.

Hótelið fær 7.9 í einkunn á booking.com og 9.2 fyrir staðsetningu.

Verð frá: 149.900kr.- á mann í tvíbýli

Dublin Skylon Hotel 4* eða sambærilegt

Dublin Skylon Hotel er fjölskyldurekið hótel sem er staðsett í hjarta þorpsins Drumcondra, við hliðina á mörgum frægum kennileitum í Dublin. National Botanic Gardens, Glasnevin Cemetery & Croke Park Stadium eru í 15 mínútna göngufjarlægð og Dublin City University (DCU) er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð.

Dublin Skylon Hotel er með örugg bílastæði á staðnum fyrir gesti en Dublin Airport og M50 eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Hraðleigubíla-/strætisvagnaleið er staðsett beint fyrir utan hótelið og veitir gestum enn meiri aðgang að miðbæ Dublin.

Glæsilega hönnuð herbergin eru í hæsta gæðaflokki og innifela glæsileg Respa-rúm, öryggishólf fyrir fartölvu, ókeypis WiFi og sérbaðherbergi með Rituals-snyrtivörum. Hreinlæti er afar mikilvægt á Dublin Skylon Hotel. Herbergin eru þrifin á hverjum degi og fersk handklæði eru til staðar þegar gestir dvelja á staðnum.

Gestir geta fengið sér ríkulegan heitan írskan morgunverð eða léttan morgunverð sem er framreiddur á borðið. Skylon Bar & Grill býður upp á klassíska, vinsæla barrétti úr hráefni frá svæðinu. Allir matseðlarnir eru með uppástungur af vínum frá öllum heimshornum, fjölbreyttan kokkteilseðil og gin-gallerí.

Hótelið fær 8.4 í einkunn á booking.com og 8.5 fyrir staðsetningu.

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.

Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.

Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!

Tillaga af dagskrá

  • add Dagur 1
    • Flogið út til Dublin
    • Rúta upp á hótel
    • Innritun á herbergi og andleg upphitun fyrir komandi daga
    • Síðdegisganga með hópnum um miðborg Dublin. Kynnast og hrista hópinn saman.
  • add Dagur 2
    • Morgunmatur á hóteli
    • Skólaheimsókn
    • Sérstök skemmtidagskrá fyrir maka meðan á skólaheimsókn stendur
    • Frjáls tími um kvöldið
  • add Dagur 3
    • Morgunmatur á hóteli
    • Skólaheimsókn eða kynnisferð
    • Sérstök skemmtidagskrá fyrir maka meðan á skólaheimsókn stendur
    • Árshátíðardinner! Sameiginlegur kvöldverður og skemmtun (Ekki innifalið).
  • add Dagur 4
    • Morgunmatur á hóteli
    • Frjáls dagur en margar kynnisferðir í boði sem hægt er að skipulegga.
  • add Dagur 5
    • Morgunmatur á hóteli
    • Frjáls dagur
    • Rúta upp á flugvöll
    • Flogið heim eftir góða ferð og ný kynni við flotta kennara í Dublin

Verð frá 139.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Fiskislóð 31d, 2.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT