Átta daga endurmenntunarferð til Flórens á Ítalíu sem hentar hópum leikskólakennara, skólastjórnendum og grunnskólakennurum yngsta- og miðstigs. Námskeiðið sjálft stendur yfir í sex daga frá mánudegi til laugardags. Innifalið í námskeiðinu eru kynnisferðir um borgina ásamt dagslangri vettvangsferð. Námskeiðið er á vegum Europass Teacher Academy og er haldið reglulega í hverjum mánuði yfir árið. Námskeiðið er styrkhæft.
Á námskeiðinu er fjallað á gagnvirkan hátt um aðferðarfræði Montessori, Reggio Emilia, Waldorf og fleiri þar sem áhersla er lögð á sjálfstæða þekkingarleit barna í skapandi og hvetjandi umhverfi. Hluti námskeiðsins mun fjalla um aðferð Bruno Munari „Að leika með list“ og fjallað verður um námsskrárfrelsi og fjölbreytileika í katalónska skólakerfinu ásamt yfirliti kenninga um jákvæða menntun og jákvæða sálfræði sem leggja áherslu á sjálfstyrkingu og persónuleikaþroska nemenda. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti heimfært þekkingu sína á hagnýtan hátt í eigin kennslu.
Fáar borgir eru svo hentugar að stærð en samt svo yfirfullar af stórfenglegum meistaraverkum bygginga og lista við hvert fótmál. Umgjörð þessarar litlu borgar við bakka Arnó í Toskanahéraði hefur ekki mikið breyst síðan á tímum endurreisnarinnar. Steinlögð stræti með endurreisnarhöllum, miðaldarkapellum, marmarakirkjum og heimsklassa söfnum sem státa af málverkum og höggmyndum eftir Botticelli, Michelango, Donatello og marga fleiri meistara eru algert augnakonfekt og einstök sjónræn upplifun.
Ítalski tískuiðnaðurinn fæddist í Flórens. Heimamenn eins og hönnuðurnir Guccio Gucci og Salvatore Ferragamo opnuðu hátískuverslanir sínar í borginni upp úr 1920 og síðan þá hefur verið verslað með stíl í höfuðborg Toskana. Hátískuhúsin við Via de‘ Tornabuoni og ógrynni sérverslana selja fallega muni af öllum toga í næsta nágrenni við aldagamlar fjölskyldureknar vinnustofur í glæsilegu umhverfi miðaldarstræta.
Hágæða afurðir úr nágrannasveitum og árstíðarbundin matur er nærri því heilagur í Flórens og íbúar borgarinnar eru mjög stoltir af matarhefðum sínum og skyldi þar engan undra. Borgin er umlukin afburða vínræktarhéruðum og er sannkölluð matarveisluparadís. Enda skiptir það máli þar sem Toskanabúar telja það skyldu hvers manns að borða og drekka vel. Hvort sem það er hefðbundin skál af jarðbundinni ribollita, einföld panino frá matarvagni eða léttgrilluð nautasteik á fjölskyldureknum trattoria sem hefur ekki breyst í hundrað ár, þá er það tímalaus og eftirminnileg upplifun að borða í Flórens.
Offering free Wi-Fi and a stylish décor with antique furniture and 19th-century paintings, the NH Firenze Anglo American is just off the banks of River Arno and 800 m from Santa Maria Novella Train Station. You can walk to the Teatro Comunale theatre in 2 minutes.
The elegant rooms have a refined and intimate atmosphere. Each room includes a TV with satellite channels, a minibar, and a private bathroom with hairdryer.
A varied breakfast buffet is served daily. Dinner can be prepared for groups on request.
The NH Firenze Anglo American has a large and bright lobby. Drink are served at the bar or in a wooden-floored, relaxing gazebo. Nearby valet parking is available.
Skoða heimasíðu hótels hér.
Námskeiðið er á vegum Europass Teacher Academy og er haldið reglulega í hverjum mánuði yfir árið. Námskeiðið sjálft stendur yfir í sex daga frá mánudegi til laugardags. Innifalið í námskeiðinu eru kynnisferðir um borgina ásamt dagslangri vettvangsferð. Námskeiðið í Flórens er haldið á Via Sant’Egidio 12, í fimm mínútna göngufjarlægð frá dómkirkju Santa Maria Del Fiore. Námskeiðið er haldið á ensku.
Á námskeiðinu er fjallað á gagnvirkan hátt um aðferðarfræði Montessori, Reggio Emilia, Waldorf og fleiri þar sem áhersla er lögð á sjálfstæða þekkingarleit barna í skapandi og hvetjandi umhverfi. Hluti námskeiðsins mun fjalla um aðferð Bruno Munari „Að leika með list“ og fjallað verður um námsskrárfrelsi og fjölbreytileika í katalónska skólakerfinu ásamt yfirliti kenninga um jákvæða menntun og jákvæða sálfræði sem leggja áherslu á sjálfstyrkingu og persónuleikaþroska nemenda. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti heimfært þekkingu sína á hagnýtan hátt í eigin kennslu.
Ensk lýsing á námskeiði:
During this course participants, will discover the most relevant educational approaches for children that emerged in Europe from the 20th century onwards.
Waldorf (Steiner) education, the Montessori Method and Loris Malaguzzi’s Reggio Emilia approach will be discussed in an interactive way. This will include comparing the different theories and involving participants in an active reflection about their way of teaching and the importance of the child being the protagonist of his/her development. A part of the course will be dedicated to Bruno Munari’s method “Playing with Art”. A short introduction about the alternative Catalan non-directive education panorama will also be included, as well as an overview on Positive Education and Positive Psychology.
The outcome of all of this, is the activation of a thought-provoking learning process. Participants will practice critical and creative thinking skills, inspired by the alternative methods mentioned above. Independence, freedom, creativity, child-centered, respect, global development are the keywords of the course. At the end, participants will have the chance to create a project for their school that incorporates the knowledge acquired, following a Design Thinking process.
Upplýsingar um námskeiðshaldara:
Europass Srl
Via Sant’Egidio 12
50122 Florence, Italy
Netfang: info@teacheracademy.eu
Sími: +39 055 247 9995
Nánari upplýsingar um námskeiðið á vefsíðu Europass Teacher Academy:
https://www.teacheracademy.eu/course/montessori-method/