Gamla bíó
Stórglæsilegur salur með einstökum karakter í hjarta Reykjavíkur.
Gamlabíó er glæsilegur og karakterríkur viðburðarstaður í hjarta Reykjavíkur sem hentar fyrir fjölbreytta viðburði, allt frá árshátíðum og fyrirtækjaviðburðum yfir í móttökur, veislur, tónleika og aðra stærri viðburði. Húsið á sér langa sögu og sameinar klassískt yfirbragð við þá aðstöðu sem þarf til að skapa eftirminnilegan viðburð.
Stóri salurinn býður upp á sveigjanlega uppsetningu eftir stærð og eðli viðburðarins, hvort sem óskað er eftir borðhaldi, standandi móttöku eða blöndu af hvoru tveggja. Góð sviðsaðstaða, LED-skjár, lýsing og hljóðkerfi skapa jafnframt góðar forsendur fyrir ræður, skemmtiatriði, tónlist og aðra dagskrá. Aðgengi er gott og lyfta er í húsinu.
Gamlabíó hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtæki sem vilja halda viðburð í miðborg Reykjavíkur þar sem umgjörðin sjálf verður hluti af upplifuninni. Salurinn tekur á móti bæði minni og stærri hópum og hægt er að aðlaga fyrirkomulag og dagskrá að hverju tilefni.
Tripical aðstoðar við að setja viðburðinn saman frá A–Ö. Við getum séð um allt frá hugmynd og skipulagi yfir í veitingar, skemmtun, tæknimál og framkvæmd. Þannig fáið þið eina heildstæða lausn fyrir viðburð í Gamlabíó sem er sérsniðinn að ykkar hópi, óskum og tilefni.
-
Sæti & borð
Borðasetning eða standard móttaka
-
Aðstaða
Svið, LED skjár, lýsing, hljóðkerfi
-
Aðgengi
Lyftur og aðgengi fyrir alla
Myndir
Sambærilegir staðir
Öll þjónusta


