Flugáætlanir:
4.-9. júní 2025
6.-11. júní. 2025
Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nýju, hér er haf, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, sjálf höfuðborgin Riga.
Á yfirborðinu virðist Riga tiltölulega róleg borg, en ef dýpra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Uppruna Ríga má rekja til upphafs 13. aldar, en hún er ein af elstu evrópskum borgum með opinber borgarréttindi. Fyrir þann tíma höfðu þýskir kaupmenn og trúboðar, undir forystu Alberts von Buxhövden, höslað sér þar völl. Riga blómstraði fljótt sem lykilstaður fyrir viðskipti milli Vestur-Evrópu og Austurríkis og á miðöldum dafnaði hún sem ein af mikilvægustu borgum Hansabandalagsins, sem var öflugt viðskiptabandalag helstu verslunarborga Evrópu. Þennan velmegunartíma má til dæmis sjá á hinum vel varðveitta gamla miðbæ, sem er á skrá UNESCO yfir mikilvæga sögulega staði. Ýmsir byggingarstílar eru frá þessum tíma og hægt að koma auga á gotneskar, endurreisnar- og barrok byggingar og torg. Frá þessum tíma er einnig hin stórkostlega Dómkirkja Riga, en hiklaust má mæla með heimsókn þangað. Hluti af einstökum innviði kirkjunnar er magnað orgelspil frá 19. öld, með tæplega 7000 pípum.
Árið 1621 varð Riga hluti af konungsríki Svíþjóðar og sá tími setur einnig mark sitt á heildarmynd borgarinnar, þar sem sænskra áhrifa gætir víða, til dæmis í hinum glæsilega Riga kastala, sem þjónar í dag sem aðsetur forseta landsins.
Pétur mikli, Rússlandskeisari, batt enda á valdatíma Svía með innrás í borgina árið 1710, hún varð eftir það hluti af rússneska heimsveldinu, og hélt áfram að vaxa sem miðstöð viðskipta og menningar. Sem dæmi um uppbyggingu á 18. öld og 19. öld má benda á Art Nouveau-hverfið og hina mjög svo tignarlegu rússnesku rétttrúnaðarkirkju.
20. öldin var stormasöm í Lettlandi eins og víða annars staðar. Lettar lýstu yfir sjálfstæði árið 1918, en urðu hluti af Sovétríkjunum í kjölfar seinna stríðs, allt til ársins 1991 þegar landið hlaut loks sjálfstæði, meðal annars með aðstoð Íslands, en við vorum – eins og frægt er orðið – með fyrstu þjóðum til að viðurkenna sjálfstæði Lettlands.
Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar. Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, en þeir láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, þar er einnig vinsælt að baða sig upp úr honum.
Ef þú vilt aðeins komast út fyrir borgina er Riga í stuttri akstursfjarlægð frá bænum Jūrmala (49.000 íbúar), sem hefur að geyma töfrandi hvítar strendur. Ef þú ert hins vegar ekki fyrir sjó og strendur, þá má finna dásamlega óspillta bláberjaskóga rétt utan við borgarmörkin.
Í Lettlandi er mikið og fjölskrúðugt menningarlíf, og Lettar státa sig af því að vera nefndir mesta menningarþjóð af öllum nágrannalöndunum sínum. Því til sönnunar má finna afar fjölbreyttar hátíðir og viðburði í borginni allt árið um kring. Einnig má finna ýmis söfn um sögu lands og þjóðar en Lettar fengu sinn skerf af hörmungum í seinni heimstyrjöldinni, þegar um 14% þjóðarinnar lét lífið.
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga, 400 metra frá fallega gamla bænum. Boðið er upp á glæsilegar innréttingar, marga matsölustaði, heilsulindaraðstöðu og rúmgóð herbergi með ókeypis WiFi.
Öll herbergin á Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu. Flest þeirra eru með setusvæði.
Hægt er að njóta fjölbreytts hlaðborðs á veitingastaðnum Esplanade. Barinn í móttökunni á hótelinu er vinsæll samkomustaður allan daginn og er fullkominn staður fyrir rólega viðskiptafundi, fjölskyldusamkomur og móttökur fyrir kvöldverð. Á Skyline Bar geta gestir notið drykkja og útsýnis yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Starfsfólk afgreiðslunnar er við allan sólarhringinn og getur aðstoðað við gjaldeyriskaup eða farangursgeymslu.
Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er staðsett 300 metra frá Frelsisminnisvarðanum. Háskóli Lettlands er aðeins 750 metra frá hótelinu. Flugvöllurinn í Ríga er í 10 km fjarlægð. Lestarstöðin í Riga er í 2 km fjarlægð frá hótelinu.
Hótelið fær 8.7 í einkunn á booking.com og 9.6 fyrir staðsetningu
Fjögurra stjörnu hótel AC Hotel Riga er þægilega staðsett í hinu heillandi Art Nouveau-hverfi í miðbæ Riga. Gestir geta því flúið hávaða miðbæjarins á meðan þeir eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá gamla bænum í Riga og áhugaverðustu stöðum borgarinnar.
AC Hotel Riga er með 239 hótelherbergi og svítur og býður einnig upp á 4 fjölnota ráðstefnuherbergi sem eru staðsett á efri hæð hótelsins og rúma 184 gesti í stærsta fundarherbergi hótelsins.
Gististaðurinn er umkringdur veitingastöðum, kaffihúsum og sælkeraverslunum, söfnum og listagalleríum, byggingum í Art Nouveau-stíl, íþróttaaðstöðu, tónleika- og viðburðavettvöngum.
Hótelið fær 8.5 í einkunn á booking.com og 9.3 fyrir staðsetningu
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Þessi lýsing á Lettlandi er ekki fjarri lagi. Höfuðborgin Riga er í raun eina borg landsins. 54% af landinu eru skóglendi með nærri 12.000 ám, 3.000 stöðuvötnum og fjölmörgum þjóðgörðum. Lettland er réttnefnd náttúruparadís, Lettar leggja mikla rækt við umhverfið og þar ríkja skýr náttúruverndarlög sem koma í veg fyrir óþarfa átroðning. Hér er víðáttan mikil, og svipað og við þekkjum hér á landi eru íbúar vanir góðu persónulegu rými. Kannski er þetta ástæðan fyrir því að þótt Lettar séu afar vinaleg og hlýleg þjóð, eru þau ekki mikið fyrir óþarfa knús og kjass. Bara pæling.
Í um 20 mínútna fjarlægð frá Ríga er afar fín strandlengja, Jūrmala, sem er tilvalinn staður fyrir góða slökun við sjóinn. Á svæðinu í kring má finna spa, nuddstofur og jafnvel drulluböð! Ströndin er skemmtileg að því leyti að við hana liggur fallegur skógur, svo auðvelt er að sameina sólböð og sandkastalasmíði, ásamt hressandi göngu milli hárra trjáa og grænna grunda. Við mælum hiklaust með þessu.
Einstök blanda af nýju og gömlu. Í Riga er mikið af grjóti, en borgin er að stóru leyti, bæði hús, götur og torg, fagurlega byggð úr grjóti. Riga hefur á sér rólegt yfirbragð, en ef kafað er ögn dýpra birtist glaðlegt mannlíf, fjörugir barir og skemmtistaðir. Ekki má heldur gleyma að í borginni eru heimsklassa veitingastaðir, þar sem hægt er að fá dýrindis rétti á mjög sanngjörnu verði. Ef þú elskar góðan mat, gerðu svo vel og borðaðu á þig gat!
Riga er þekkt fyrir heilsulindir sínar, sem hver um sig bjóða upp á ýmsar leiðir til að njóta afslöppunar og dekurs. Við mælum einnig með heimsókn í klassískt lettneskt baðhús. Þá má nefna að Lettar eru mikil bjórþjóð, og nýta þann eðaldrykk ekki bara til drykkju. Í Riga geturðu skellt þér í fínasta bjórbað!
Ef hugur þinn leitar út fyrir borgarmörkin Ríga, og þú ert ekki endilega stemmd/-ur fyrir hvítum ströndum Jūrmala, þá finnurðu líka, rétt fyrir utan borgina, fallegt gróðurlendi og skóga með einstöku göngusvæði.
Lettland er mikið menningarland. Þar eru fjölmörg söfn, auk þess sem hinar ýmsu hátíðir og listviðburðir eru á dagskrá allt árið um kring. Ríga upplifði gullöld sína snemma á 20. öld, þegar Art Nouveau arkitektúr komst í tísku, og mikið er af byggingum í þeim stíl fyrir áhugasama um arkitektúr.
Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.
Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.
Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!