Ef þú hefðir átt leið um Köben á 11. öld, værirðu staddur í rólegum litlum fiskibæ, með latar jórtrandi kýr á víð og dreif í kring. Elstu rituðu heimildir um staðinn eru frá 12. öld, þegar klerkurinn Saxo Grammaticus ritaði örfáar línur um staðinn og kallaði hann þar á dönsku Købmannahavn, sem síðar breyttist í København, en á íslensku helst gamla nafnið og við tölum um Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn er höfuðborg Danmerkur og þar búa um ein milljón manns. Þessi einstaklega vinalega borg er nógu stór til að teljast stórborg, með fjöldan allan af verslunum, mikið menningarlíf og spennandi næturlíf. Um leið er þetta smáborg, örugg og auðvelt að skoða sig um án þess að týnast. Hinum megin við Eyrarsundið er Svíþjóð og Danmörk liggur því eins og brú á milli Skandinavíu og meginlands Evrópu. Hér blandast gömlu ævintýrin saman við nýtískulegan arkitektúr og hönnun á heimsmælikvarða, heitur jazz blandast við ískalt teknó í kjallaraklúbbi. Þér finnst eins og þú hafir séð allt á einum degi, en gætir auðveldlega skoðað þig um og séð nýja hluti svo mánuðum skipti.
Einn frægasti Kaupmannahafnarbúi sögunnar hafði mikil áhrif á flesta gesti borgarinnar í æsku. Ævintýri H. C. Andersen hafa ferðast um allann heim og haft áhrif á menningu hvar sem þau hafa borið niður fæti. Andersen flutti til Kaupmannahafnar sem unglingur og bjó þar allt til æviloka. Sögur hans hafa verið þýddar á yfir 125 tungumál. Finna má þó nokkur söfn tileinkuð þessum merkilega manni í Kaupmannahöfn.
Það er alveg kjörið að byrja heimsókn hingað á því að þramma upp brekkuna að Sívalaturninum, sem er eitt af þekktari kennileitum borgarinnar. Þaðan er mjög gott útsýni um miðborgina. Ef þú vilt meira klifur og enn betra útsýni, þá er bara að rölta niður í Christianshavn og þramma upp hringstigann utanum turn Frelsiskirjunnar sem gnæfir eina 100 metra í átt til himins. Og fyrst þú ert kominn í þennan bæjarhluta, verðurðu að kíkja í Kristjaníu, með öllum sínum skrýtnu húsum og hippastemmingu. Aðrar fallegar byggingar má nefna, hið tilkomumikla Ráðhús og hin stórglæsilega Friðrikskirkja, eða Marmarakirkjan.
Danir eru eins og allir vita mikil bjórþjóð, með sína heimsþekktu lykilframleiðendur Carlsberg og Tuborg. Bjórkrár eru á hverju strái og hægt að velja á milli margra ólíkra tegunda.
Fjögurra stjörnu boutique hótel staðsett í miðbæ Kaupmannahafnar í 17. aldar byggingu í Nyhavn hverfinu og því stutt í öll helstu kennileiti borgarinnar.
Hótelið er steinsnar frá Kongens Nytorv, Amelíuborg er í fimm mínútna göngufæri. Metróstöð er 500 metra frá hótelinu, strætisvagnar staðnmæast fyrir framan hótelið og í móttöku er hægt að fá leigð hjól.
Hotel Skt. Annæ býður upp á ókeypis WiFi og er danskt morgunverðarhlaðborð með mat úr nærumhverfi, útsýni yfir alla borgina frá þakhæð og vinsælan kokteilbar og veitingastaðinn Shrimp.
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.
Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.
Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!