Læknastöðin – Orkuhúsinu – Svartfjallaland

Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir
  • Áfangastaður Svartfjallaland
  • Hópastærð 110 manns
  • Ferðatími September 2026
  • Þjónusta Tripical Hótel, Flug, Dagskrá

Við fórum í stórkostlega árshátíðarferð til Svartfjallalands með Tripical og vorum nú annað skiptið í röð í þeirra höndum, enda skipulagið og utanumhaldið frábært. Við höfum getað treyst öllum upplýsingum frá þeim og allt staðist eins og lagt var upp með.
Hótelið sem við gistum á Maestral Resort & Casino var glæsilegt og staðsetningin og öll umgjörðin frábær fyrir hópefli. Það þarf leigubíl til næstu borgar, en það er allt til alls á staðnum, einkaströnd, margir veitingastaðir og þjónusta í kring.
Starfsfólk Tripical er alltaf aðgengilegt og gefur sér góðan tíma til að aðstoða við allt frá vali á árshátíðarstað og áhugaverðum skoðunarferðum til skipulagningar rútuferða. Fararstjórarnir eiga svo sérstakt hrós skilið – þeir hafa verið hreint út sagt frábærir og ómissandi við að halda utan um ferðina og bregðast við óvæntum uppákomum. Við mælum heilshugar með Tripical!

Læknastöðin – Orkuhúsinu

Um ferðina

Læknastöðin – Orkuhúsinu fór í árshátíðarferð til Svartfjallalands með Tripical, í annað sinn í röð sem hópurinn ferðaðist með Tripical. Gist var á Maestral Resort & Casino, þar sem einkaströnd, veitingastaðir og þjónusta eru á staðnum, og fararstjórar Tripical héldu utan um ferðina frá upphafi til enda.

Þjónusta Tripical í þessari ferð

  • Hótel
  • Flug
  • Dagskrá

Aðrar umsagnir frá hópum Tripical

Skoða allar umsagnir
Eskja Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Svartfjallaland 160 manns September 2025

Í September síðastliðnum forum við Eskju fólk með Tripical til Svartfjallalands í algjörlega stórkostlega ferð. Þetta var í annað sinn sem við nýttum okkur þjónustu Tripical…

Ísloft Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Pólland 45 manns September 2026

Frábær ferð hópsins okkar til Wroclaw, góð skipulagning varðandi flug og rútuferðir hjá Tripical, stóðst væntingar. Skemmtum okkur konunglega!

Sjúkraþjálfun Íslands Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir

Tékkland 100 manns October 2026

Við hjá Sjúkraþjálfun Íslands fórum í árshátíðarferð til Prag á vegum Tripical og gætum ekki verið ánægðari með upplifunina! Skipulag alveg frá fyrsta degi var algjörlega…

Við höfum hjálpað 1.000+ hópum að skapa eftirminnilegar ferðir.

Yfir 90 hópar hafa gefið okkur umsögn.

Hafðu samband