Við hjá Kaupfélagi Skagfirðinga – Byggingavörudeild Verslunin Eyri erum í skýjunum með starfsmannaferðina okkar til Brussel.
Þegar sú hugmynd kom upp að fara í starfsmannaferð erlendis fórum við að leita að ferðaskrifstofum til að aðstoða okkur með ferlið. Höfðum við samband við Tripical og var viðmótið frá þeim frábært, jákvætt, hlýlegt og vildu þau allt fyrir okkur gera.
Þau sáu um að útbúa flottan kynningapakka á ferðum sem komu til greina hjá okkur, eftir að búið var að velja áfangastað sáu þau um að finna flott hótel fyrir okkur til að velja úr. Völdum við frábært hótel Novotel Brussel City Center sem er algjörlega miðsvæðis í Brussel.
Báðum við Tripical einnig um að finna flottan veitingastað fyrir okkur þar sem við gætum verið með fínan sameiginlegan kvöldverð. Það var minnsta málið hjá þeim og borðuðum við á frábærum veitingastað.
Þegar nokkrir dagar voru í brottför fengum við glæsilegan glansbækling frá þeim með áhugaverðum stöðum og veitingastöðum í Brussel sem gaman gæti verið að skoða. Sá bæklingur sló í gegn hjá okkur.
Allt stóðst uppá 10 hjá Tripical, flug, hótel, rútferðir til og frá hóteli sem og veitingstaðurinn fyrir sameiginlega kvöldverðin.
Við mælum með Tripical við skipulagningu á svona ferðum 😊
Takk fyrir okkur
Stjórn Starfsmannafélags Eyrarinnar


