Mælum með þeim alla leið fyrir alla – Brú lífeyrissjóður til Malmö

19.05.2026

Árshátiðarferð starfsmannafélags okkar til Malmö núna í maí 2026, á vegum Tripical var algjörlega frábær í alla staði og lentum við í gær öll með bros á vör og fullan vasa af skemmtilegum minningum.

Við höfðum samband við Tripical síðasta haust uppá hvað væri í boði miðað við okkar vonir og væntingar. Arnór og Erna ( okkar fólk) tóku algjörlega boltann á lofti og hlupu með hann og fóru fram úr okkar björtustu vonum með hugmyndir hvert ætti að fara og hvað ætti að gera og þar fram eftir götunum.

Ávallt pössuðu þau uppá að við værum að velja frábært hótel með góðri staðsetningu sem hentaði öllum og að allt væri tipp topp sem það sannarlega var. Samskiptin við Ernu og Arnór voru einstaklega ljúf og góð (og einstaklega skemmtileg 😉 ) og ekkert nema lausnir af þeirra hálfu ef einhverjar vangaveltur komu upp. Skjót og hnitmiðuð svör þeirra voru til fyrirmyndar.

Mælum með þeim alla leið fyrir alla 😉