Frábær ferð í Kampavínshéraðið í Reims – Lex lögmannsstofa

11.06.2026

Við hjá LEX höfðum samband við Tripical haustið 2025 varðandi tillögur að skemmtilegri árshátíðarferð með um 50-70 manna hóp.

Þau komu með margar flottar hugmyndir, en kampavínshéraðið í Reims, Frakklandi varð fyrir valinu, og sáum við hreint ekki eftir því.

Allt frá fyrsta tölvupósti þar til heim var komið leið okkur eins og við værum í mjög góðum höndum með Tripical.

Undirbúningurinn fyrir ferðina var mjög góður og samskipti við alla sem komu að ferðinni var alveg til fyrirmyndar.

Ég myndi ég sannarlega leita aftur til Tripical við undirbúning og skipulag næstu ferðar.