Þegar fyrirtæki taka þá stórskemmtilegu ákvörðun að halda árshátíð ytra er í raun nauðsynlegt að fá ábyrgan aðila til að halda utan um ferðamálin. Við hjá dk hugbúnaði ehf ákváðum að fá Tripical til aðstoðar við okkar ferð. Allt frá undirbúningi til framkvæmdar ferðar var virkilega vel unnið og til fyrirmyndar. Góð ráðgjöf um staði til að skoða og aðila til að sjá um skemmtanir fyrir okkur svo maður tali nú ekki um árshátíðarstaðinn. Fólk er enn að tala um þessa ferð nú rúmu ári seinna. Hún verður seint toppuð.


