Ég get sannarlega mælt með með Tripical við hópa sem eru á leið í fræðsluferðir eða aðrar ferðir utan landsteinanna – Tónlistarskólakennarar í Rvk til Prag

10.11.2025

Mig langar til að þakka fyrir frábæra þjónustu, sem við fengum hjá Tripical ferðaskrifstofu vegna fræðsluferðar 36 tónlistarskólakennara til Prag 22.-27.október 2025

Við vorum í sambandi við Elías Xu, sölustjóra fræðsluferða sem annaðist bókanir okkar á flugi og hóteli sem og akstur frá flugvelli og á flugvöll.

Hann fann fyrir okkur mjög hagstætt fargjald og annaðist allt umstang í kringum hótel og leigubíla (minivans) fyrir 50 manns af mikilli kostgæfni, þolinmæði, kurteisi og ljúfmennsku. Sjálf annaðist ég skipulagningu dagskrárinnar sjálfrar og var fararstjóri ferðarinnar.

Ég get sannarlega mælt með með Tripical við hópa sem eru á leið í fræðsluferðir eða aðrar ferðir utan landsteinanna.

Fyrir hönd pragfara þakka ég kærlega fyrir frábæra þjónustu og góða samvinnu.

Tengdar ferðir

Tékkland

Fræðsluferð til Prag

Ef engin af áætluðum ferðadagsetningum hentar þér skaltu ekki hika við að hafa samband við sölumenn Tripical: hallo@tripical.is svo við getum rætt aðra valkosti. Fræðsluferð til Prag! Prag er ein fegursta borg Evrópu með aldagamla sögu og stórfenglegan arkitektúr og...
Tékkland

Hópferð til Prag

Perlan við Moldá Prag er miðstöð tékkneskrar menningar og sögu. Miðborgin er einstök upplifun með fjölda vel varðveittra miðaldarstræta og fallegra bygginga sem rekja evrópska listasögu frá gotneskum stíl til módernismans. Prag jafnast fyllilega á við stórborgirnar Róm, París og London...