Vorferð til Dublin 1.-4.05.2026 - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing

Vorferð til Dublin 1.-4.05.2026

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
Land:
Írland
Gjaldmiðill:
Evra

Flug með Icelandair

1.-4. maí 2026

Brottför frá Keflavík: Kl.07:30 – 11:05

Brottför frá Dublin: Kl.14:15 – 15:55

 

Ef þú ert með hóp sem er stærri en 9 manns skaltu hafa samband við sölumenn Tripical: hopar@tripical.is til að fá gott tilboð!


Dublin

Söguleg og stormasöm fortíð

Dublin hefur verið í deiglunni síðan á 9. öld þegar víkingar settust þar að og stunduðu þaðan rán sín um Bretlandseyjar allt fram á 12. öld. Leifar fortíðar víkinga eru nú löngu afmáðar í borginni en Dublin er engu að síður opið sögusafn með miðaldarkastölum og dómkirkjum við hlið fágaðra 18. aldar bygginga þegar Dublin var ein glæsilegasta borg breska heimsveldins og endurspeglaði metnað írsku yfirstéttarinnar. Hvernig Írar misstu síðan völd og áhrif yfir sínu eigin landi er önnur saga og þú munt ekki komast hjá því að fræðast um það í einhverjum af þeim fjölmörgu kynnisferðum og söfnum sem borgin býður upp á.

Pöbbaborg

Dublin er ekki kölluð pöbbaborgin af ástæðulausu. Í borginni er fjöldin allur af börum, veitingastöðum og klúbbum þar sem finna má fjölbreytta stemmingu. Margir vilja meina að Dublinarbúar séu glaðlyndasta fólk sem til er og taka ferðamönnum með opnum huga og af kurteisi. Dublinarbúar eru einnig alþekktir fyrir sína bjórmenningu og Guiness bjórinn er eitt af því sem þeir eru mjög stoltir af ásamt góðu írsku viský. Það er frábært að rölta um miðbæ Dublinar og kíkja á veitingastaði eða verslanir og spjalla við fólkið sem býr í þessari merkilegu borg.

Göngutúr meðfram Liffey

Þeir sem vilja kynnast Dublin vel ættu að byrja á því að rölta niður með ánni Liffey. Hún liggur í gegnum helstu hluta borgarinnar og gefur þeim sem ganga meðfram bakka hennar góða yfirsýn á það sem Dublin býður upp á. Áin skiptir borginni í tvennt, norður og suður hluta.

Fyrirtaks verslunargötur

Það má segja að í Dublin megi finna verslunargötur við allra hæfi. Þar eru tískubúðir sem bjóða upp á allt það nýjasta sem finnst í tískuheiminum. Tvær helstu verslunargötunar eru staðsettar sitthvorum megin við ána og því er auðvelt að eyða heilli helgi að rölta um, versla og njóta mannlífsins.

 

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Sögulegt umhverfi
  • favorite
    Vingjarnlegt heimafólk
  • favorite
    Góðar verslunargötur
  • favorite
    Lifandi kráarmenning

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • Flogið út frá KEF kl. 7:30 og lent að staðartíma í Dublin kl. 11:05
  • Flogið heim kl. 14:15 og lent að staðartíma kl. 15:55
  • 3 nætur á hóteli í Dublin með morgunmat.
  • 23kg innritaður farangur
  • City Tax er innifalinn í verðinu

Ekki innifalið

  • Rútur úti
  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Farastjórn
  • Annað sem ekki er tekið fram sem innifalið

Flug & Hótel

Premier Inn Dublin City North Docklands 3* eða sambærilegt

Holiday Inn Express Dublin City Centre er nútímalegt og stílhreint hótel staðsett á hinni sögufrægu O’Connell Street, beint í hjarta Dublin.

Hótelið er fullkominn valkostur fyrir þá sem vilja vera þar sem allt gerist. Þú ert í göngufæri við Temple Bar, Trinity College og helstu verslunargötur borgarinnar. Hér færðu þægilega gistingu, hágæða þjónustu og ljúffengan morgunverð innifalinn, sem gerir þetta að frábærri bækistöð hvort sem þú ert að skoða menninguna eða njóta lífsins í Dublin.

Hótelið fær 8.7 í einkunn á booking.com og 9.5 fyrir staðsetningu.

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 124.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 179.990 kr

Flug & Hótel

Clayton Hotel Burlington Road 4* eða sambærilegt

Clayton Hotel Burlington Road er eitt af þekktustu og glæsilegustu hótelum Dublinar, staðsett í hinu fágaða Ballsbridge hverfi, í aðeins stuttri fjarlægð frá miðborginni.

Hótelið er samnefnari fyrir gæði og flotta hönnun, hvort sem þú ert í borginni í skemmtiferð eða viðskiptaerindum. Þú færð framúrskarandi þjónustu, aðgang að stórri og flottri líkamsræktarstöð og getur notið dýrindis matargerðar á hinu vinsæla The B Bar eða á veitingastað hótelsins. Með sína líflegu stemningu og rúmgóðu, nútímalegu herbergi er þetta fullkominn staður fyrir þá sem vilja upplifa Dublin með stíl og þægindi í fyrirrúmi.

Hótelið fær 8.6 í einkunn á booking.com og 9.6 fyrir staðsetningu.

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 129.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 179.990 kr

Flug & Hótel

The Morgan Hotel 4* eða sambærilegt

The Morgan Hotel er flott og nýtískulegt lúxushótel staðsett í hjarta Temple Bar hverfisins í Dublin. Hótelið einkennist af fágaðri hönnun þar sem blandað er saman klassískum glæsileika og nútímalegum þægindum, sem gerir það að einum vinsælasta gististað borgarinnar.

Hótelið er þekkt fyrir hinn líflega 10 Fleet Street veitingastað og bar, sem er margverðlaunaður fyrir kokteila og matargerð. Þetta er fullkominn áfangastaður fyrir þá sem leita að stíl, líflegu umhverfi og frábæru aðgengi að öllu því helsta sem Dublin hefur upp á að bjóða, svo sem Trinity College og Grafton Street.

Hótelið fær 8.7 í einkunn á booking.com og 9.5 fyrir staðsetningu.

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 133.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 189.990 kr

Verð frá 124.990 kr.

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 2A, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT