Vorferð til Algarve í Portúgal 1.-4. maí 2026

  • Lengd ferðar 3 nætur / 4 dagar

Um ferðina

Flug með Icelandair – Síðustu sætin!

1.-4. maí 2026

Brottför frá Keflavík: Kl.07:20 – 12:50

Brottför frá Faro: Kl.13:50 – 17:25


Faro

Það hafa kannski ekki margir heyrt um borgina Faro, en hún er þó höfuðstaður Algarve héraðsins í Portúgal og þangað hafa margir Íslendingar farið til að baða sig í sól og sælu. Faro er yndislegur staður, sem býður upp á frábæra blöndu af fornri sögu, menningu og dásamlegri náttúrufegurð.

Allt frá 2. öld fyrir Krist og fram á þá 8. eftir Krist var Faro hluti af ríki Rómverja, og eftir það tóku Múslimar þar völd um nokkurt skeið. Gamli bærinn er umkringdur fornum borgarveggjum sem er þekktur undir nafninu Cidade Velha. Þar eru þröngar steinlagðar götur sem afar gaman er að skoða. Gengið er inn í gamla bæinn gegnum bogahvelfd göng, hin svokölluðu Arco da Vila, sem leiða þig inn í þennan forna og nýja menningarheim. Dómkirkjan er einstaklega falleg blanda af gotneskum og barokk arkitektúr, og turn hennar býður upp á víðáttumikið útsýni. Hér er auðvelt að týna tímanum á sjarmerandi kaffihúsi og í litlum verslunum sem gaman er að glugga í.

Skammt frá Faro eru nokkrar af fallegustu ströndum Portúgals, og með nokkurra mínútna ferjusiglingu frá miðbænum er komið að óspilltum sandlengjum sem eru kjörnar fyrir gott sólbað eða sundsprett í hreinum sjó. Hinn fallegi náttúrugarður Ria Formosa tilheyrir borginni, en þetta er einstaklega fallegt friðað lón sem teygir sig meðfram strandlengjunni, og þar er að finna mikla náttúru- og dýraflóru, ekki síst fjölbreytt fuglalíf. Þar má til dæmis bæði koma auga á flamingóa, og vinkonu okkar Íslendinga, blessaða kríuna. Margar skemmtilegar gönguleiðir eru um garðinn, með fallegum útsýnisstöðum, og boðið er upp á bátsferðir meðfram strandlengjunni sem hiklaust má mæla með.

Mikið úrval er af gæða veitingastöðum, kaffihúsum og krám. Matarsenan í Faro þykir afar fjölbreytt og góð, hér finnurðu til dæmis dásamlega sjávarréttastaði sem bjóða upp á ferskt hráefni, og fyrir þá sem langar að prófa eitthvað ekta portúgalskt má mæla með réttum eins og fiskpottréttinum cataplana.

Ferð til Faro er áhrifarík blanda af spennandi menningarupplifun, töfrandi landslagi, afslöppuðu og þægilegu andrúmslofti, girnilegum mat og góðum drykkjum. Fullkominn staður fyrir hópferðina þína!

Hápunktar ferðar

  • Góður matur!
  • Fallegar byggingar
  • Frábært veður
  • Tær sjór

Innifalið

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • Rútur til og frá flugvelli og á áfangastaði
  • 3 nætur á hóteli með morgunverði í Algarve
  • 23kg innritaður farangur og 10 kg í handfarangur

Ekki innifalið

  • Hádegis- eða kvöldverður
  • Rútur
  • Stress
  • Vont veður
  • Þjórfé

Flug & Hótel

AP Cabanas Beach & Nature 4*

AP Cabanas Beach & Nature er fallegt 4* hótel í Cabanas de Tavira, við Ria Formosa-votlendi. Herbergin eru nútímaleg, mörg með útsýni yfir lónið, og hótelið leggur áherslu á sjálfbærni og rólega stemningu. Gestir njóta sólbaðssvæða og heilsulindar, veitingastaða með ferskum, staðbundnum hráefnum og þaksins með frábæru útsýni. Umhverfisvænn bátur flytur þig beint út á breiða sandströnd Cabanas – hin fullkomna blanda af náttúru, afslöppun og stílhreinum þægindum.

Tavira er heillandi bær í austur-Algarve þar sem hvítmálaðar húsaraðir, rómverska brúin og kyrrlát torglundir speglast í ánni Gilão. Hér mætast sögulegur gamli bærinn, höfnin og endalausar sandstrendur Ria Formosa-eyjanna sem hægt er að kanna með stuttri bátsferð. Notaleg kaffihús, ferskur sjávarréttur og dásamlegt sólsetur gera Tavira að góðum stað fyrir þá sem vilja sanna Algarve-stemningu án ys og þys.

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 134.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 159.990 kr

Flug & Hótel

Crowne Plaza Vilamoura by IHG 5*

Crowne Plaza Vilamoura by IHG er glæsilegt 5* superior strandhótel í hjarta Vilamoura, skref frá sandströndinni og hafnarlífinu við Marina Vilamoura. Rúmgóð og nútímaleg herbergi, spa, útisundlaug og heilsurækt skapa fullkomna blöndu af lúxus og afslöppun. Veitingastaðir með ferskum, réttum og sveigjanleg viðburðaaðstaða gera hótelið að öruggu vali hópa sem vilja fyrsta flokks þjónustu og toppstaðsetningu á Algarve.

Vilamoura er flottur strandbær á miðju Algarve svæðinu, þekktur fyrir glæsilega höfnina, breiðar sandstrendur og fyrsta flokks golfvelli. Hér er líflegt veitinga- og verslunarlíf, strandklúbbar og skemmtilegar hjóla- og gönguleiðir meðfram sjónum. Kvöldin bjóða upp á notalega stemningu við höfnina, spilavíti og frábær sólsetur. Aðeins um 25 mínútur frá Faro-flugvelli – fullkomið fyrir langa helgi. 

Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 172.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 234.990 kr

Umsagnir

Skoða allar umsagnir
Árshátíðarferð HS Veitna var í Cascis í Portúgal. Frábær staður, flott hótel. Fengum við Tripical til liðs við okkur með skipulagningu ferðarinnar. Ferðin var frábær, skipulagið til fyrirmyndar og á…

HS Veitur

Fyrirtækjaferðir – Portúgal

Lesa umsögn frá HS Veitur
★★★★★
Takk fyrir frábæra ferð til Frankfurt Við fórum í ferð til Frankfurt og vorum mjög ánægð með skipulag ferðarinnar. Dagskráin var skemmtileg og hótelið mjög gott. Frankfurt kom okkur skemmtilega…

Bjarg Íbúðafélag

Fyrirtækjaferðir – Þýskaland

Lesa umsögn frá Bjarg Íbúðafélag
★★★★★
SoftwareOne – Wroclaw, Pólland Við hjá SoftwareOne áttum frábæra ferð til Wroclaw í Póllandi og getum svo sannarlega mælt með þessum áfangastað. Borgin er falleg, með ríka sögu, glæsilegan arkitektúr,…

Fyrirtæki

Fyrirtækjaferðir – Pólland

Lesa umsögn frá Fyrirtæki

Um áfangastað

Portúgal er sterkur áfangastaður fyrir árshátíðar- og fyrirtækjaferðir með góðu loftslagi, matarmenningu og fjölbreyttri dagskrá.

Skoða Portúgal

Tilboð í ógleymanlega ferð?

Hafðu samband og við sendum þér sérsniðið tilboð fyrir þinn hóp.

Fá tilboð fyrir þinn hóp