Vorferð til Haag 23.-26.4.2026 - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað

Vorferð til Haag 23.-26.4.2026

Lengd ferðar:
4 dagar/3 nætur
Land:
Holland
Gjaldmiðill:
Evra

Síðustu sæti með Icelandair – Síðustu sætin!

23.-26. apríl 2026

Frá KEF: Kl.07:40 – 13:00

Frá Amsterdam: Kl.14:10 – 15:25

 

Ef þú ert með hóp sem er stærri en 9 manns skaltu hafa samband við sölumenn Tripical: hopar@tripical.is til að fá gott tilboð!


Haag

Hér höfum við hrífandi borg, skreytta gömlum og heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og fjölskrúðugum almenningsgörðum. Þetta er staður sem blómstrar af líflegri menningu, skemmtun og gleði. Hollenska þingið hefur hér aðsetur, sem og Hollandskonungur, Willem-Alexander. Haag er líka þekkt sem dómstólaborg heimsins, þar eru starfræktir Alþjóðadómstóll Sameinuðu þjóðanna (ICJ),  Alþjóða glæpadómstóllinn (ICC), ásamt fjölda annarra alþjóðlegra stofnanna. Haag er þriðja stærsta borg Hollands og þar búa um 500.000 manns, en 700.000 sé héraðið allt tekið með. Ferðamannaiðnaðurinn hefur sótt mikið í sig veðrið síðustu ár, og sífellt fleiri leggja leið sína þangað, enda býr borgin yfir miklum þokka og fegurð.

Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam, sem og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu endurreisnarhúsa frá 17. öld sem algeng eru í landinu, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok- og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endurreisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouveau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, gyllt sandströndin að Norðursjó.
Af nægu er að taka í afþreyingu fyrir forvitna og gleðiþyrsta gesti. Elsta gata borgarinnar er Molenstraat, og hana er gaman að ganga og skoða. Til að fá gott útsýni yfir borgina má til dæmis nefna parísarhjólið The Pier Skyview. Einnig má gera sér glaðan dag á Scheweningen ströndinni, hvort sem er í sandi og sjó, eða á hinum fjölmörgu kaffihúsum og veitingastöðum í grenndinni. Bjórinn í borginni er auðvitað fyrsta flokks, við mælum með heimsókn í Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder, sem er bjórbruggunarstöð staðsett í munkaklaustri.
Þú getur farið í hressandi spíttbátareisu fyrir utan ströndina, leigt þér hjól og skoðað borgina, farið á einn af stærstu útimörkuðum Evrópu, De Haagse Markt, litið inn á söfn, skoðað gamlar glæsilegar byggingar, og fleira og fleira. Góða skemmtun og gangi þér allt í Haag!

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Fallegar byggingar
  • favorite
    Æðislegur miðbær
  • favorite
    Hávaxnir Hollendingar
  • favorite
    Góður matur

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka með Icelandair (Amsterdam)
  • Flogið út kl. 7:40 og lent að staðartíma í Amsterdam kl. 13:00
  • Flogið heim kl. 14:10 og lent að staðartíma í Keflavík kl. 15:25
  • 3 nætur á hóteli miðsvæðis í Haag (Með morgunmat)
  • 23 kg innritaður farangur
  • City Tax er innifalinn í verðinu

Ekki innifalið

  • Rútur úti
  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Farastjórn
  • Annað sem ekki er tekið fram sem innifalið

Flug & Hótel

Holiday Inn Express The Hague - Parliament 3* eða sambærilegt

Holiday Inn Express The Hague – Parliament er nútímalegt og hagnýtt hótel staðsett á kjörnum stað í hjarta stjórnsýslumiðstöðvar Haag.

Hótelið er beint á móti Binnenhof, hinu sögulega þinghúsi Hollands, og í göngufæri við ýmsar alþjóðlegar stofnanir, verslunarsvæði og veitingastaði. Hér færðu öll nauðsynleg þægindi, ókeypis morgunverð og gæða svefn, sem gerir það að frábærum og hagkvæmum valkosti fyrir bæði þá sem eru í viðskiptaerindum og þá sem eru að skoða borgina.

Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og einkunn 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 119.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 163.990 kr

Flug & Hótel

Moxy The Hague 4* eða sambærilegt

Moxy The Hague er sprækt og nútímalegt lífstílshótel sem leggur áherslu á skemmtilega hönnun og afslappað andrúmsloft í hjarta Haag.

Um leið og þú skráir þig inn á barnum (þar sem þú færð einkennisdrykk hótelsins í leiðinni) finnurðu fyrir ungu og líflegu orkunni sem einkennir hótelið. Almenningsrýmin eru hönnuð sem félagsmiðstöð þar sem gestir geta unnið, spilað eða fengið sér kokteil. Hótelið er staðsett í stuttu göngufæri við verslanir, söfn og sögulega staði, sem gerir það að frábærum valkosti fyrir þá sem vilja stíl, fjör og frábæra staðsetningu á hagkvæmu verði.

Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og einkunn 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 122.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 169.990 kr

Flug & Hótel

Leonardo Hotel The Hague Babylon 4* eða sambærilegt

Leonardo Hotel Den Haag Babylon er nútímalegt 4-stjörnu hótel sem hefur einstaka staðsetningu á sjálfri Den Haag Centraal lestarstöðinni.

Þessi miðlæga staðsetning gerir hótelið að fullkomnum hlekk á milli borgarinnar, almenningssamgangna og viðskiptahverfanna. Þú færð lúxusþægindi, bjarta hönnun og frábært aðgengi að verslunum, áhugaverðum stöðum og alþjóðlegum stofnunum. Þetta er kjörinn staður fyrir þá sem meta þægindi og miðlæga staðsetningu í stjórnsýsluhjarta Hollands.

Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og einkunn 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 124.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 173.990 kr

Flug & Hótel

Hilton The Hague 5* eða sambærilegt

Hilton The Hague er eitt glæsilegasta hótel borgarinnar, staðsett í hinu fágaða sendiráðshverfi í sögulegum miðbæ Haag.

Hótelið er til húsa í fyrrum aðalbyggingu póstsins og sameinar sögulegan arkitektúr og nútímalegan lúxus á einstakan hátt. Gestir geta notið þess að vera í göngufæri við hágæða verslanir, konungshöllina og mikilvægustu söfn borgarinnar. Með fyrsta flokks þjónustu, glæsilegum herbergjum og hinum vinsæla BlueBlood veitingastað, er Hilton The Hague hinn fullkomni staður fyrir þá sem leita að gæðum, stíl og fágun í höfuðborg stjórnsýslunnar.

Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og einkunn 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 133.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 189.990 kr

Holland

Holland, af sumum þjóðum kallað Niðurlönd, er fallegur og skemmtilegur áningastaður í norðanverðri Evrópu. Það er helst þekkt fyrir fallegt landslag, túlípanana sína og sólblómin, en einnig á landið sér langa og mikla sögu, sem fornar byggingar  bera glöggt vitni um. Í dag er Holland frjálslynt fjölmenningarlegt þjóðfélag, og heimsókn þangað er bæði áhugaverð og skemmtileg upplifun.

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi fólks: 17,635,641
  • Stærð að flatamáli: 41.850 km²
  • Opinbert tungumál: Hollenska
  • Gjaldmiðill: Evra 
  • Hitastig: Sumar 15°- 22° / Vetur 0°– 6°
  • Tímabelti: 1 tíma á undan

Holland er að stórum hluta sléttlendi, og verulegur hluti þess liggur undir sjávarmáli. Vindmyllur eru eitthvað sem margir tengja við landið, enda má sjá þær all víða og flestar eru þær notaðar til að dæla vatni úr því mikla votlendi sem Holland er. Önnur vel þekkt hollensk táknmynd eru túlípanarnir, en landsmenn hafa í aldaraðir haft mikla ást á þeim fallegu blómum. Í dag eru Keukenhof garðarnir (stundum nefndir Gardens of Europe) einn helsti vitnisburður um áhuga Hollendinga á túlípönum og annarri blómarækt. Garðarnir eru staðsettir nærri bænum Lisse, í um 35 km fjarlægð frá Amsterdam, og þykja með fallegustu skrúðgörðum Evrópu.

Holland hefur vakið eftirtekt umheimsins fyrir umburðarlyndi sitt og frjálslynda stefnu í ýmsum málum. Þannig var það fyrsta landið í heiminum til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra árið 2001, og aðferðir yfirvalda í  afglæpavæðingu eiturlyfja, vændis og líknardrápa hefur vakið alþjóðlega athygli. Höfuðborgin Amsterdam er oft í fararbroddi hinnar framsæknu stefnu, sem hefur gert hana að spennandi áfangastað fyrir ferðamenn sem leita að einstakri og öðruvísi upplifun.

Hjólreiðar eru órjúfanlegur hluti af hollenskri menningu og þær eru vinsæll ferðamáti bæði hjá heimafólki og gestum. Borgir og bæir og innviðir allir eru mjög hjólavænir, og landið státar af víðfeðmu neti hjólastíga. Það má því alveg mæla með hjólaflakki um landið, sem veitir öðruvísi upplifun og einstaka sýn á fegurð Hollands og sjarma.

Verð frá 119.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT