London er höfuðborg Bretlands og þar búa rúmlega átta milljónir, þar á meðal hin stórbrotna Elísabet II Englandsdrottning. Þótt margir vildu eflaust vilja kíkja í te og tjatt til hennar, þá er hún víst fullbókuð, alltaf. Það er þó óþarfi að örvænta því London er þekkt fyrir glaum og gleði og óþrjótandi magn af afþreyingu fyrir stóra sem smáa.
Helstu kennileiti borgarinnar eru Big Ben og London Eye, og svo auðvitað tvílyftu rauðu strætóarnir sem virðast einhvern veginn vera út um allt. Þetta er stórborg sem ósar af sjarma og skemmtun, og engum getur leiðst sem tekur sér far og kynnist henni.
London er mikill menningarstaður og þar hefur hvert og eitt hverfi sín sérstöku einkenni. Í Soho finnurðu fjölskrúðugt mannlíf og heilan helling af skemmtilegum verslunum. Í China Town læturðu leika við bragðlaukana á einhverju af hinum ótalmörgu veitingastöðum, eða skoðar dreka og luktir sem skreyta þar stræti. Svo má auðvitað ekki gleyma Oxford Street, en þar fer enginn í gegn án þess að greiðslukort viðkomandi fái að kenna vel á því. Þar er að finna allar helstu tískuvöruverslanir borgarinnar.
Hér er auðvelt fyrir alla að finna eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi! Fyrir listunnendur er algjört ,,must“ að skella sér í leikhús á West End og sjá eina (eða fleiri) af þeim sýningum sem þar eru í boði. Hér finnurðu Lion King, Mamma Mia og margt fleira! Fyrir þá sem vilja slappa af er notaleg lautarferð í Hyde Park alveg málið, og rölt um Notting Hill er alltaf áhugavert, með viðkomu á hinum stórskemmtilega markaði á Portobello Road. Alls staðar í borginni er stutt í næsta klassíska enska pöbb með mikið úrval af bjór og öli, og gott að setjast niður í góðra vina hópi, í lengri tíma, eða stutt stopp frá einni skemmtun í aðra.
Árið 1969 héldu Bítlarnir sína allra síðustu tónleika uppi á þaki á byggingu Apple Corps í London. Þeir klifruðu upp 5 hæðir og spiluðu í roki og ískulda og þurfti að vefja míkrafóna þeirra inn í sokkabuxur til að verjast rokinu.
Í dag er verslunin Abercrombie & Fitch staðsett í sama húsi og Apple Corps var á þeim tíma.
Bretland samanstendur af Englandi, Skotlandi, Wales og Norður Írlandi og eins flókið og manni finnst þetta oft vera, er rétt að muna að Bretum sjálfum finnst þetta kerfi líka oft á tíðum flókið. Landið er með eitt af stærstu hagkerfum heimsins og var fyrsta landið sem hóf iðnvæðinguna á sínum tíma. Ekki nóg með risavaxið hagkerfi, menningarlífið er einnig RISAstórt, og saga landsins sannarlega mögnuð og viðburðarík. Bretland hefur auðvitað alið af sér meistara á borð við Shakespeare og strákana í Bítlunum.
Breska krúnan stjórnar landinu og þar fer fremst í flokki drottningin þeirra, Elísabet II, sem náð hefur að heilla heiminn á valdaferli sínum. Þeir sem ekki hafa horft á Netflix seríuna The Crown um líf hennar ættu að bæta úr því. Til gamans má einmitt geta að Elísabet er mjög umhverfisvæn og passar sig til dæmis alltaf að slökkva öll ljós þegar hún labbar út úr herbergi.
Höfuðborgin London er skemmtileg borg, uppfull af lífi og fjöri. Hún er stærsta borg Bretlandseyja, og höfuðborg menningar og fjármála landsins.
Borgin er meðal vinsælustu ferðamannastaða Evrópu. Thames áin rennur í gegnum hana miðja og margir sem fara þar í siglingu til að upplifa borgina frá öðru sjónarhorni. Einnig er þar að finna 30 sögulega garða, rúmlega 100 sögulegar byggingar, yfir 200 söfn og 108 tónlistarhús.
Enska er opinbert tungumál en þar sem London er mjög fjölþjóðleg borg, eru þar fjöldamörg tungumál töluð og fjöldinn allur af trúarbrögðum iðkuð. Þetta er meðal þess sem gerir London svo heillandi, skemmtilega og sannarlega fjölbreytta!
Almennar upplýsingar