Dagsetningar og áfangastaðir útskriftarferða 2023 koma bráðlega. Ef þú ert með spurningu fyrir þína útskriftarferð 2023 sendu okkur email á uf@tripical.com.
Um er að ræða 10 sólarhringa ferð sem innifelur skemmtilegt opnunarpartý með sérvöldum íslenskum tónlistarflytjenda ????, togapartý, flug, hótelgistingu, rútur til og frá flugvelli og íslenska fararstjórn.
Hægt er að bæta við úrvali af spennandi dagsferðum og öðrum viðburðum, eins og skemmtipakkanum okkar vinsæla.
Okkar allra vinsælasta hótel, sem hefur allt sem útskriftarhópar dreyma um, og hægt er að velja á milli þess að vera fjórir, þrír eða tveir saman í herbergi.
Það sem er í boði á Porto Greco:
Krít er áfangastaðurinn okkar, en hún er stærsta og fjölmennasta eyja Grikklands með um 620.000 íbúa. Eyjan einkennist af töfrandi landslagi og náttúru, hressandi mannlíf og á sér magnaða sögu.
Gist verður í bænum Hersonissos sem er staðsettur fyrir miðja Krít. Hersonissos hefur á síðari árum vaxið úr litlum veiðibæ, yfir í að verða einn vinsælasti ferðamannastaður eyjarinnar. Bærinn er með frábært næturlíf, fallegar strendur, góðan mat og glæsileg hótel. Aðalgatan liggur meðfram sjónum og má þar finna allt frá veitingastöðum, yfir í verslanir og skemmtistaði.
Hér er listi, alls ekki tæmandi, um afþreyingu á staðnum:
Við byrjum á Star Beach en þar er meðal annars sundlaugarður, skemmtistaður, strönd og teygjustökk. Á nokkra daga fresti eru þar haldin geggjuð sundlaugarpartý, froðupartý og tónleikar þar sem fjöldinn allur af þekktum (og minna þekktum) tónlistamönnum koma fram.
Á ströndunum almennt mælum við með að leigja Jet-Ski og bruna meðfram strandlengjunni. Jafnvel fara í smá snorkl og köfun. Einnig er hægt að skella sér í paintball, fallhlífarstökk, vín- og ostasmökkun, verslunarferðir og þannig mætti lengi telja.
Ef í þér býr meira flökkueðli, er auðvelt að fara og skoða aðrar borgir og bæi. Þá bendum við á Malia, sem er gamall hippabær með lítinn en skemmtilegan miðbæjarkjarna og mikið næturlíf. Stalis er annar bær rétt hjá, sá er meira í rólegri kantinum og í göngufjarlægð frá Hersonissos. Þá má ekki gleyma Chania sem er einn fallegasti bær Krítar. Ef það er mikill ferðahugur í þér, farðu til Santorini! Eða virkisvörðu eyjunnar Spinalonga, eða Chrissi Island, sem er eyðieyja sunnan við Krít. Við bara getum ekki gert upp á milli!
Porto Greco er fjögurra stjörnu hótel staðsett við strandlengjuna í sjávarbænum Hersonissos. Einkaströnd fylgir hótelinu, þar sem gestir geta slappað af og fengið sér mat og drykki.
Hér má sjá byggingarstíl hótelsins.
Hér má sjá á myndum dæmi um hvernig hótelherbergin líta út. Þau eru staðsett í nokkrum byggingum á svæði hótelsins, svo þau geta verið mismunandi að útliti, en eru öll mjög snyrtileg og afar rúmgóð.
Á hótelinu má finna flottan veitingastað, staðurinn er niður við ströndina og er einn sá vinsælasti á svæðinu.
Á gististöðum á Krít þarf að greiða ferðamannaskatt. Gjaldið miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins og er 1 evra á 3 stjörnu, 3 evrur á 4 stjörnu og 4 evrur á 5 stjörnu gististöðum. Skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt per herbergi. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Hér að neðan má sjá myndbönd úr fyrri ferðum okkar til Krítar með útskriftarhópa, eins og sést vel þá var brjálað stuð ????