Verið hjartanlega velkomin til þessarar heillandi eyju, þar sem tíminn hefur staðið í stað í svo langan tíma. Þrátt fyrir þyrnirósasvefninn er Kúba stórfengleg, full af reisn og óviðjafnanlegum sjarma. Þetta er land einstakra töfra og dularfullra galdra, og best að vera við öllu búinn. Kúbverjar elska góðan mat og hressandi salsatónlist sem erfitt er að dilla sér ekki við. Það er um að gera að hrífast bara með – eftir einn svalandi mojito og með þétt rúllaðan kúbverskan vindil við hönd – og láta vaða í einn vænan cha-cha-cha dans.
Spennandi menning
Borgir Kúbu hafi ekki breyst ýkja mikið síðan hafnir þar voru helstu stoppistöðvar sjóræningja Karíbahafsins. Andrúmsloftið og arkitektúr Havana, Trínidad og Remedios hreyfir auðveldlega við manni og þar segja gömul hús og steinlagðar götur miklu meira en 1000 orð. Svæðið er nokkuð vel varðveitt, en þrátt fyrir það liggja margar byggingar undir skemmdum sökum vanrækslu, og bíða eftir að einkafjárfestar sjái hag sinn í að fjármagna endurbætur. Þetta hefur nú þegar gerst með margar fallegar byggingar sem áður voru í niðurníslu en eru nú skemmtilega hönnuð hótel og veitingahús eða stórkostleg einbýlishús.
Havana sem menningarupplifun
Sögulegar götur Havana og tónlistarhefð Kúbu geta verið áhugaverður hluti ferðarinnar. Nákvæm ferðaleið og hvort Havana sé á dagskrá verður þó að staðfesta í tilboði áður en hún er kynnt sem innifalin.
Hápunktar ferðar
Stopp í Toronto
Gott verður á Kúbu
Spennandi saga og menning Kúbu
Flottar myndir í fornbílum Kúbu
Gerum útskriftarferðina ógleymanlega! Við sjáum um skipulagið og finnum bestu lausnirnar fyrir hópinn, svo þið getið einbeitt ykkur að ferðinni.
Við í Háaleitisskóla á Ásbrú fengum Tripical til að skipuleggja útskriftarferð 10.bekkur til Danmerkur, Kaupmannahöfn. Þjónustan var óaðfinnanleg þar sem ferðin heppnaðist mjög vel. Tripical sá um flug, gistingu og…
Kúba hentar hópum sem vilja kynnast tónlist, sögu og menningu landsins fremur en að velja hefðbundna evrópska strandferð.
Hvaða staði er hægt að heimsækja á Kúbu?
Havana, Varadero og Trinidad eru nefndir á ferðasíðu Tripical. Staðfestið hvaða staðir eru á endanlegri ferðaleið.
Hvað þarf að hafa í huga áður en farið er til Kúbu?
Skoða þarf gildandi inngönguskilyrði, vegabréf, tryggingar og greiðslumöguleika. Kröfur og aðstæður geta breyst.
Um áfangastað
Karabíska þyrnirósin vaknar Kúba hefur um áratuga skeið setið fast í viðjum fortíðar og úr sér gengnum kommúnisma, en er nú að vakna af þeim fasta svefni. Aðgangur fyrir gesti er að galopnast og við erum boðin velkomin inn í þetta heillandi land, þar sem…
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.
Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.