Góðir farþegar. Í vor lendum við mjúklega á aðalflugvelli paradísareyjunnar Krít við Grikklandsstrendur. Búið ykkur undir ógleymanlega og hreint út sagt stórkostlega dvöl í útskriftarferðinni ykkar. Af því að Krít er Æ Ð I!!
Bærinn Hersonissos
Við gistum á besta stað á eyjunni, í bænum Hersonissos, sem á árum áður var fiskiþorp en hefur vaxið og stækkað og er nú einn af bestu ferðamannastöðum Krítar. Þar er nákvæmlega allt sem hugurinn girnist. Stemmingin er dásamlega afslöppuð, og mikið úrval er af frábærum veitingastöðum, börum og klúbbum. Þar á meðal er Palm Beach, sem er af mörgum talinn besti klúbburinn á allri eyjunni, og hann er bara í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá hótelinu! Fyrir neðan hótelið eru líka geggjaðar strendur, fyrir þau sem vilja taka pásu frá bakkanum á hótelsundlauginni.
Við Palm Beach er svo sundlaugagarðurinn Star Beach þar sem finna má stórskemmtilegar rennibrautir, leigja sér bekk og flatmaga í sólinni, eða fara á ströndina fyrir neðan og prófa teygjustökk, sjóskíði, fallhlífasvif eða hvað annað sem þig langar. Star Beach er í raun svokallaður Day ‘N night skemmtistaður því þegar myrkrið skellur á er keyrt upp í ljósunum, tónlistin hækkar og barþjónarnir byrja að sveifla flöskum og blanda kokteila.
Nóg að gera í kring
Þau sem langar að kíkja út úr bænum og skoða sig um, eiga sannarlega ekki í neinum vandræðum með að finna eitthvað við sitt hæfi. Í Hersonissos er afar auðvelt að leigja sér bíl á lágu verðu og hægt að mæla með að keyra í áttina að höfuðborg eyjunnar, Heraklion, eða enn lengra, í vinsæla bæi eins og Chania og á enda eyjunnar þeim megin og kíkja á bleiku ströndina (Elafonissi Beach). Ef ekið er í hina áttina taka líka við skemmtilegir bæir eins og Malia, sem er gamall og einstaklega sjarmerandi hippabær, og Stalia sem er rólegur og kósý strandbær.
Dagsferðir í boði
Það er auðvelt að benda á fleira skemmtilegt. Þau sem hafa áhuga á fornminjum ættu að heimsækja Knossos Palace, þau sem langar í meira vatnastuð ættu að hrimsækja vatnagarðinn Watercity (en þangað eru reglulegar rútuferðir frá Hersonissos) og þau sem þrá að missa sig í einstakri fegurð geta t.d. farið í bátsferð til Crissi Island, sem hefur verið nefnd ein af fegurstu eyjum Miðjarðarhafsins, eða til bæjarins Santorini sem þykir einn af þeim fallegustu og rómantískustu í heimi, hvorki meira né minna.
Í rauninni er þetta engin spurning! Pantaðu ferð með okkur til Krítar til að halda upp á útskriftina þína. Við lofum yndislegum tíma, fullt af skemmtilegum minningum og gleði sem eiga eftir að fylgja þér alla ævi.
Hápunktar ferðar
Frábært næturlíf!
Gott veður
Ódýrt verðlag
Góður matur
Gerum útskriftarferðina ógleymanlega! Við sjáum um skipulagið og finnum bestu lausnirnar fyrir hópinn, svo þið getið einbeitt ykkur að ferðinni.
Innifalið
Flug til og frá Krít
10 nætur á 4 stjörnu hóteli
Morgunmatur
Rútur til og frá hóteli
Fararstjórar frá Íslandi
Hitinn og fjörið
OPNUNARPARTÝ með íslenskum tónlistarflytjenda
Annað stórkostlegt partý
Ekki innifalið
Dagsferðir
Gistináttaskattur – 14 evrur á mann
Vonda skapið
Hótelin okkar
Porto Greco Village Beach Hotel 4*Porto Greco Village Beach Hotel er staðsett í miðri Hersonissos og býður upp á 5 útisundlaugar, 2 veitingastaði, þar af einn með verönd með…
Porto Greco Village Beach Hotel er staðsett í miðri Hersonissos og býður upp á 5 útisundlaugar, 2 veitingastaði, þar af einn með verönd með sjávarútsýni og strandbar-veitingastað.
Öll herbergin á hótelinu eru með setusvæði. Sérbaðherbergið er með baðkari eða sturtu, ókeypis snyrtivörum og hárþurrku. Herbergin á Porto Greco Village Beach Hotel eru með loftkælingu og flatskjásjónvarpi.
Gestir geta byrjað daginn á morgunverðarhlaðborði sem borið er fram daglega í matsalnum. Hægt er að njóta grísks og alþjóðlegs bragðs í hádeginu eða á kvöldin á veitingastöðum staðarins, drykkir og kokteilar eru einnig í boði á strandbarnum allan daginn.
Stórkostleg árshátíðarferð til Aþenu – Framkvæmdafélagið Arnarhvoll Í þetta skiptið ákváðum við að fá Tripical til að skipuleggja árshátíðarferðina okkar og sáum við ekki eftir þeirri ákvörðun. Við vorum með…
Námsferð tónlistarskóla til Aþenu. Við höfðum samband við Tripical þegar ákveðið var að fara til Aþenu í námsferð. Elías hjá Tripical for strax í að koma með hugmyndir að…
Við höfðum samband við Tripical þar sem við vorum að leitast eftir námsferð. Tripical kom með uppástungur og heilluðumst við fljótt af Aþenu. Ferðin var alveg frábær, staðsetningin á hótelinu…
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.
Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.