Albufeira er ótrúlega fjörugur, heillandi og skemmtilegur bær í Algarve, á suðurhluta Portúgals. Þar má finna nokkrar af fallegustu ströndum Portúgals, geggjað næturlíf, fjölbreytta afþreyingu og endalaust magn af sól og sælu. Þetta er sannkölluð paradís, full af ævintýrum og ógleymanlegri upplifun. Fullkominn staður fyrir frábæra útskriftarferð!
Gamla hverfið svokallaða er sérstaklega sjarmerandi, með hlykkjóttum litlum göngugötum milli hvítmálaðra húsa að portúgölskum sið. Þar raða sér upp litlar verslanir, kaffihús og krár og vinalegt andrúmsloft eyjaskeggja mætir þér hvar sem er. Þar er líka staðsett hin fallega 18. aldar kirkja Igreja Matriz, sem hiklaust má mæla með að heimsækja og fá innsýn í sögulegar rætur Albufeira. Kirkjan státar af afar sérstöku flísaverki og töfrandi altaristöflu. Fyrir þau sem hafa frekari áhuga á að skoða fornar minjar má benda á miðaldakastalann Paderne og brúnna sem einnig er kennd við þann stað.
Hægt er að velja hinar ýmsu hjóla- og gönguferðir um hina miklu náttúrufegurð allt í kringum bæinn. Ekki langt frá er strandsvæðið Costa Vicentia, sem er vernduð náttúruperla þar sem finna má stórbrotið landslag og mögnuð klettabelti. Þar er einnig mikið úrval af alls kyns gönguleiðum, og ekki ólíklegt að leiðin liggi gegnum lítil og dásamleg þorp, þar sem íbúarnir mæta þér með breiðu brosi, en nánast engri enskukunnáttu.
Eins og áður segir er enginn skortur á góðum ströndum og allar eru þær skínandi gylltar og hreinar og sjórinn kristaltær. Vinsælastar þeirra eru hin svokallaða Sjómannaströnd eða Praia dos Pescadores, nálægt henni liggur Praia do Peneco ströndin og ekki langt undan er Praia da Oura. Eins og góðum sólbaðsstöðum sæmir er hér mikið úrval af hvers kyns skemmtun og vatnasporti, köfun og siglingu. Við mælum þó með að eiga eitthvað af orku eftir þegar kvölda tekur, því þá tekur einstök næturgleði Albufeira öll völd.
Næturlífið í Albufeira er þekkt fyrir mjög háan stuðstuðul. Aðal skemmtigatan heitir The Strip og við hana er hellingur af börum og skemmtistöðum í öllum stærðum og gerðum: kokteilastaðir, dansstaðir, tjillstaðir, alls konar staðir! Þar og víða annars staðar í bænum er einnig aragrúi af veitingastöðum sem bjóða upp á hvaða matarrétti sem hugurinn girnist.
Komdu til Albufeira og sameinaðu á fullkominn hátt afslöppun, spennu og gleði. Útskriftaferðin þín á heima hér!
Portúgal liggur meðfram vesturströnd Íberíuskaga, og deilir suðvesturodda Evrópu með Spáni. Landið býr yfir einstakri menningu, flottum borgum, líflegum strandbæjum og fallegri sveit. Að flatarmáli er Portúgal ekki stór en landslagið býður samt sem áður upp á hin ýmsu tilbrigði. Hægt er að ferðast á einum degi frá grænum og gróðursælum fjöllum í norðri, um stórbrotnar klettahlíðar og fossa Mið-Portúgals, og suður á landsvæði Alentejo, sem minnir um margt á eyðimörk.
Portúgal á sér um 900 ára gamla sögu og hefur lagt sitt mark á heimssöguna. Þar er ofarlega á blaði aðild þeirra að hinum svokölluðu Landafundum, en Portúgalar lögðu grunninn að þeim í lok 14. aldar með því að stofna sjóleið til Indlands og nýlendusvæða Afríku, Suður-Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Aðrar þjóðir fylgdu í kjölfarið en Portúgal varð á þessum tíma áhrifamikið heimsveldi.
Í Portúgal þykir bæði loftslag og umhverfi vera kjörið fyrir golfíþróttina. Þetta hafa heimamenn nýtt sér og hannað marga af bestu golfvöllum álfunnar, en 14 þeirra eru á lista yfir 100 bestu brautir Evrópu, og landið hefur hampað titlinum ,,Besti golfáfangastaður heims“. En það er einnig annað sport, öllu æsilegra, sem tekið hefur ástfóstri við Portúgal. Við vesturströndina rísa nefnilega úr Atlantshafi einhverjar stærstu öldur sem brimbrettafólk kemst í tæri við, og svæðið oft nefnt sem eitt af þeim bestu í heimi til slíkrar iðkunar.
Portúgal hefur í áraraðir verið mjög vinsæll ferðamannastaður, ekki síst hjá Norður-Evrópu þjóðum, og gestir frá löndum eins og Englandi, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og Svíþjóð flykkjast þangað til að njóta stórkostlegrar strandlengju, náttúrufegurðar og hins hlýja loftslags. Vinsælustu strendurnar eru í Algarve, en Miðjarðarhafið meðfram suðurströndinni hefur tilhneigingu til að vera hlýrra en hið opna Atlantshaf, og minna um hafrót og öldugang. Við vesturströndina er þó hiklaust hægt að mæla með frábærum stöðum að heimsækja, til dæmis hinum einstaklega sjarmerandi og fallega strandbæ Nazaré.
Höfuðborgin Lissabon er eina höfuðborg Evrópu sem staðsett er við strendur Atlantshafs, en hún er ein af elstu borgum heims og prýdd byggingum frá hinum ýmsu tímaskeiðum. Eitt af einkennum hennar eru hinar fjölmörgu hvítu kalksteinabyggingar sem setja fallegan svip á borgina, en hún hefur gengið í gegnum miklar endurbætur síðustu ár. Lissabon er líflegur og áhugaverður staður sem blómstrar nú sem aldrei fyrr og er að verða einn af vinsælustu áfangastöðum í Evrópu.
Porto er einstaklega flott og skemmtileg borg, byggð í bröttum fjallshlíðum meðfram ánni Duoro. Sum hverfi hennar standa hreinlega í miðju klettabelti, samsett af fornum miðaldarbyggingum og fínni nútímahíbýlum. Á milli borgarhæða eru stígar hamraðir í grýtta jörðina, og bjóða upp á hressandi gönguferðir með stórkostlegu útsýni. Ef einhvern tíma er tilefni til að kynna sér og smakka góð portvín, þá er það hér. Það liggur í orðanna hljóðan, en Porto er einmitt nefnd sem höfuðstaður portvína, og hiklaust hægt að mæla með heimsókn í hina einstöku portvínshella í Vila Nova de Gaia, eða aðra vínkjallara borgarinnar.
Um miðja strandlengu Portúgals stendur yndislegur bær sem ber sama heiti og heimastaður Jesú Krists, en í portúgalskri útfærslu, Nazaré. Nafnið tengist litlu trélíkneski af Maríu mey með frelsarann í fangi sér, sem kom með trúboðum frá Nazareth í kringum árið 700, og til eru fornar sögur af miklum kraftaverkum þeirrar styttu. Á seinni tímum er þar lítið um trúarleg undur og stórmerki, nema kannski sú staðreynd að bærinn Nazaré er bæði undursamlegur og stórkostlegur, og sannkallaður draumastaður fyrir alla sem þyrstir í sól og sælu. Þar er auk þess eitt eftirsóttasta brimbrettasvæði Evrópu. Hér hefði Jesú sko ekki látið sér nægja að ganga á vatninu, hann hefði pottþétt gripið með sér bretti og sörfað þær himinháu öldur sem þar rísa úr hafi.
Sjarmerandi fiskibær við fullkomna strönd
Í Nazaré búa um 10.000 manns og bærinn skiptist í þrjá hluta. Við ströndina liggur Praia hverfið, í klettum þar fyrir ofan rís gamla hverfið Sítío, og hægt er að ferðast milli þessara bæjarhluta með lestarkláfum. Enn ofar er svo að finna annað gamalt þorp, Pederneia.
Nazaré er gamall fiskibær og þrátt fyrir að ferðaiðnaðurinn hafi þar tekið völd, eru íbúar mjög stoltir af upprunanum og duglegir að kynna hann gestum sínum. Hér finnurðu gömul sjómannaheimili sem breytt hefur verið í fínustu hótel og sjávarréttastaðirnir eru margir og hver öðrum betri. Þá eiga bæjarbúar sína sérstöku ,,þjóðbúninga“ sem vísa í klæðnað sjómanna og fiskverkakvenna fyrri ára, en mesta athygli vekja hin sjölaga litskrúðugu pils sem konunar bera undir bróderuðum svuntum. Ekki er ólíklegt að sjá þessum búningum bregða fyrir.
Bærinn er einn vinsælasti áningarstaður við Silfurströndina svokölluðu (Costa de Prata), og þangað sækir fólk hvaðanæva úr Evrópu til að njóta hinnar afslöppuðu og þægilegu stemmingar sem þar ríkir. Staðurinn þykir henta öllum aldri – hér eru dásamlegar risastrandir til að leika sér á og liggja yfir daginn, og á kvöldin má velja úr fjölmörgum krám og skemmtistöðum til að sötra góðan drykk eða dansa inn í nóttina. Hér ríkir vinalegt andrúmsloft þar sem fólk frá ólíkum löndum blandar geði við hið hlýja og væna portúgalska heimafólk.
Brimbrettageggjun
Brimbrettafólk elskar Nazaré, enda öldurnar óvíða jafn tignarlegar, og aðstæður allar frábærar. Ýmis stórmót í brettasiglingum hafa verið haldin hér og heimsmet verið skráð. Árið 2017 sló brasilíski brimbrettakappinn Rodrigo Koxa heimsmet þegar hann sigldi öldu sem mældist 24,4 metrar! Við erum alltso ekki að tala um neitt smotterýsbrim!
Þá er rétt að nefna, fyrir þau sem ekki eru spennt fyrir að sigla slíkar öldur, að það getur verið dáleiðandi skemmtilegt að fylgjast með flínkum brimsiglurum leika listir sínar, og víða má finna sér stað, til dæmis í gamla bænum Sítío, með fyrirtaks útsýni yfir það sem fram fer á hafi úti. Ekki vitlaust að sötra á svalandi drykk á meðan.
Muthu Clube Praia da Oura snýr að Praia da Oura ströndinni. Allar íbúðirnar á hótelinu eru með loftkælingu, stofu, flatskjásjónvarpi, öryggishólfi og sérbaðherbergi með ókeypis snyrtivörum og hárþurrku. Allar íbúðirnar eru einnig með svölum með útsýni yfir ströndina, sundlaugarnar eða garðana.
Hægt er að vera 2, 3 eða 4 saman í herbergi.