(Lágmarks fjöldi í ferð 15 manns)
UK Games Expó er ein af stærsu leikja- og borðspilaráðstefnum í Evrópu. Þar má finna allt um LARP, RPG, borðspil og herkænskuspil eins og Warhammer. Og við erum að fara þangað! Og ef þú ert LARP-ari, eða bara ofboðslega spenntur fyrir alls konar borðspilum, þá ætlar þú að koma með okkur! Af því það verður hrikalega gaman!
Þú getur látið ljós þitt skína á vinsælustu spilamótunum og prófað nýjustu leiki og borðspil sem eru væntanleg á markaðinn, auk þess sem hægt er að kaupa borðspil og fleira á fáránlega góðu verði. Yfir hundrað borð verða opin til að keppa á. Ef þetta gleður ekki hinn sanna spilanörd, þá verður viðkomandi bara að endurskoða hvort hann/hún geti með sanni kallað sig nörd. Habbara þannig.
Yfir 300 sýnendur eru mættir til að sýna nýjustu spilin og segja frá því hvað er í vændum í framtíðinni. Þarna hittirðu helstu leikja- og spilahöfundana og listafólkið í bransanum. Fáðu mynd af þér með vinsælum persónum úr Star Wars, Doctor Who eða öðrum frægum seríum. Hittu fólk hvaðanæva að úr heiminum, sem hefur sama skemmtilega áhugamál. Nörd er nörds gaman!
Hér finnurðu stórkostlegt magn af viðburðum, fyrirlestrum og kynningum frá helstu aðilunum í bransanum. Þetta er sýning sem þú vilt alls ekki missa af. Þarna er rætt um allt frá Darth Vader yfir í Grimgor Ironhide og hvort er betra Star Wars eða Star Trek? Sumum finnst órjúfanlegur hluti af svona samkomum að dressa sig upp sem uppáhalds persónan sín úr uppáhalds seríunni sinni. Við mælum hiklaust með að láta það eftir sér, þótt það sé auðvitað alls engin skylda. Hér skemmta grímuklæddir og casual klæddir sér saman.
Núna er tíminn til að grípa gæsina og skella sér á ferð sem verður seint toppuð.
Mjög vel staðsett hótel í göngufæri við NEC sýningarhöllina. Hótelið er 4ra hæða með 179 reyklaus herbergi. Háhraðanet er í öllum herbergjunum. Herbergin eru rúmgóð og hafa öll flatskjá. Veitingastaðir, bar & setustofa eru á hótelinu og hægt er að panta pizzur allan sólahringinn – sem er snilld þegar þú hefur gleymt þér í spilasalnum.
Morgunverðarhlaðborð er í boði og einnig heitur morgunverður. Á hótelinu eru átta fundarherbergi, sem gestir geta mögulega leigt og haldið áfram að spila.
Skoðið heimasíðu hótelsins hérna