Nr. 1, 2 og 3. Eruði með vegabréfið ykkar?
Nr. 4. Eruð þið búin að grandskoða flugupplýsingar sem finna má á vouchernum ykkar?
Mæting er 3 tímum fyrir brottför á Keflavíkurflugvelli.
Þið skiptist í tvö mismunandi flug.
Þið sem eruð að fljúga með Transavia fljúgið fyrst frá Keflavík til Paris Orly.
Þið farið að tékk inn counterinu við Transavia, og tékkið ykkur inn með vegabréfið ykkar í hönd.
Við komu til París Orly sækið þið farangurinn ykkar, og tékkið ykkur svo inn í flugið til Heraklion.
Við komuna til Heraklion er rúta sem bíður eftir ykkur og keyrir ykkur upp á hótel.
Þið tékkið ykkur inn í Icelandair flugið með því að fara að Icelandair tékk-inn counter-inu og sýna vegabréfið ykkar.
Tinna er svo með flugmiðana ykkar með easyjet frá London til Heraklion.
Við lendingu í London sækið þið farangurinn ykkar og farið með hann í baggage drop fyrir flugið til Heraklion.
Við komuna til Heraklion er rúta sem bíður eftir ykkur og keyrir ykkur upp á hótel.
Þú ferð ekki með til Krítar ef þú ert ekki með vegabréfið á þér til að sýna við brottför. Á þessu eru engar undantekningar, engir sénsar, ekki hægt að blikka neinn eða brosa breitt. Ekkert vegabréf – engin Krít.
Það er vonlaust að komast að því út á velli að vegabréfið þitt er útrunnið. Ekki er hægt að fá framlengingu á Keflavíkurflugvelli – svo að útrunnið vegabréf er sama og ekkert vegabréf. Það er því gott að athuga stöðuna á vegabréfinu með góðum fyrirvara. Þá er jafnvel gott að taka ljósrit af vegabréfinu til að hafa með sér út, ef frumritið týnist eða glatast af einhverjum ástæðum.
Ef þú ert ekki með íslenskt vegabréf, þarftu að athuga með fyrirvara hvort þú þarft vegabréfsáritun til Grikklands.
Vegabréf er mjög mikilvægt skilríki og það er nauðsynlegt að passa vel upp á það. Í tilvikum þar sem vegabréf týnist á flugvelli eða í flugvél má eigandinn ekki yfirgefa flugvöllinn. Sem er ekki mjög gaman. Hundfúlt meira að segja.
Hægt er að verða sér úti um svokallað Evrópskt sjúkratryggingarkort. Allt um það má finna á slóðinni www.sjukra.is
Annars fara gjöld og greiðslur fyrir læknaþjónustu alveg eftir tryggingarstöðu þinni, hvaða tryggingar þú hefur greitt fyrir og getur notað. Þá er rétt að benda á að þeir sem greitt hafa ferðina sína með kreditkorti, hafa oft í leiðinni náð sér í góða tryggingu, sem er innifalin.
Ölvun getur auðveldlega ógilt farmiðann þinn. Sum ríki taka harkalega á ölvun í millilandaflugi, og getur viðkomandi átt yfir höfði sér háar fjársektir eða jafnvel fangelsisdóm. Þetta er eitthvað sem hver og einn farþegi er ábyrgur fyrir sjálf/ur. Fararstjórar Tripical eru miklir meistarasnillingar sem geta reddað ótrúlegustu hlutum, en í þessu eru þeir algerlega valdalausir og geta ekki hjálpað til.
Hver og einn farþegi er með 15 kg innritaða tösku og 5 kg í handfarangur. Hámarksstærð á tösku í handfarangri er 55x40x20 cm. Ef svo óheppilega vill til að farangur skilar sér ekki eða skemmist verður eigandinn að gera skýrslu hjá þjónustuaðila á flugvellinum. Ef skýrslan er ekki gerð, fæst tjónið ekki bætt!
Fararstjórar Tripical taka sjúklega hress og kát á móti hópnum í Heraklion og leiðbeina ykkur í rúturnar sem fara með ykkur upp á hótel. Ferðin þangað tekur um 30-40 mínútur.
Gætið þess að koma sjálf ykkar farangri í rútuna, til að tryggja að hann verði ekki eftir á vellinum. Við endurtökum að ef farangurinn hefur skemmst verður að tilkynna um það og gera skýrslu á flugvellinum. Ekki er tekið við skýrslum sem gerðar eru eftir að flugvöllurinn er yfirgefinn, og þá fæst tjónið ekki bætt.
Ef farþegar finna fyrir veikindum eða lenda í óhappi skal strax hafa samband við fararstjóra! Neyðarsími fararstjóra er: 00359-773-2900.
Númerið er opið allan sólarhringinn
Læknisþjónusta út á Krít er til fyrirmyndar, farþegar leggja sjálfir út fyrir lækniskostnaði og flutningi á klinikkið, fá svo viðeigandi pappíra til að sækja endurgreiðslu þegar heim er komið.
Grunnverð fyrir heimsókn á spítala er alltaf 40 evrur sem þarf að staðgreiða.
Það er líka ýmislegt sem fararstjórar og apótek geta græjað og því er mikilvægt að hafa alltaf fyrst samband við fararstjóra sem eru allir vel þjálfaðir í að meta hvað þarf að gera og fylgja ykkur í gegnum það.
Fararstjórar eru með öflugan sjúkrakassa og geta hjálpað til við minniháttar áföll eða meiðsli.
Þegar út er komið er fátt jafn mikilvægt og að passa að drekka nóg af vatni – vatnið í krönunum er drykkjarhæft, en við mælum frekar með því að drekka flöskuvatn. Við erum vön svo hreinni og góðri flóru í vatninu okkar á Íslandi, og það nennir enginn að fá viðkvæmari maga en þörf er á. Það eru staðir sem selja vatn á hverju horni svo það er auðvelt að verða sér úti um vatn.
Einnig vekjum við athygli á því að ekki má setja pappír í klósett á allri eyjunni. Já… í fúlustu alvöru! Það eru sérstakar lokaðar fötur á klósettum sem eru tæmdar daglega á hótelinu. Maður er fljótur að venjast þessu og þetta verður fljótlega lítið mál.
Eins og áður hefur komið fram er gjaldmiðillinn í Grikklandi Evra.
Sniðugt er að kaupa evrur fyrir ferð, flestir staðir taka þó við greiðslukortum svo það er engin ástæða til að vera með háar upphæðir á sér í reiðufé.
Fyrir þá sem taka með sér kort er sniðugt að vista neyðarnúmer viðeigandi kortafyrirtækis:
VISA: +354 525 2000
MASTERCARD: +354 533 1400.
Á hótelinu þarf hver farþegi að greiða 50 evrur í tryggingu með beinhörðum peningum, þið fáið það svo endurgreitt við brottför, ef þið hafið ekki valdið skemmdum á herbergi eða innanstokksmunum.
Við mælum með því að taka þennan pening út í millilendingunni eða áður en komið er á hótelið, þar sem hraðbankar í kringum hótelið munu tæmast strax!
Athugið eftirfarandi: Víða á eyjunni eru hraðbankar frá fyrirtækinu EURONET. Þeir taka hærra þjónustugjald og eru dýrari en aðrir almennir bankar.
Á Krít er greitt þjórfé fyrir ýmsa þjónustu. Þeir sem ætlast til að fá greitt tips eru helst þjónar á veitingastöðum, barþjónar, ræstingafólk á hótelinu og bílstjórarnir í kynnisferðunum. Vaninn er að skilja eftir 5-10% af verði á veitingastöðum.
Krít er því miður ekki laus við þjófa og rétt að minna á að fara varlega með eigur sínar á almannafæri. Leggið aldrei verðmæti eins og veski, síma, myndavélar eða tölvur á óöruggan stað, þar sem þjófar geta gripið og hirt þau. Ef einhverju er stolið frá ykkur, hafið þá strax samband við fararstjóra sem aðstoðar ykkur við að tilkynna málið og gera skýrslu hjá lögreglu.
Bannað er með öllu að príla á svölum!! Á hverju ári verða dauðsföll á sumarleyfisstöðum þegar fólk er að príla eða hoppa af svölum. Sú ákvörðun að brjóta þessa reglu getur haft mjög alvarlegar afleiðingar og því rétt að taka þetta bann alvarlega! Þeir sem verða uppvísir af þessu og sleppa óskaddaðir er tafarlaust vísað af hótelinu og enda í besta falli heimilislausir á Krít.
Hótelið er griðarstaður til að hvílast, baða sig, njóta sólarinnar og borða. Þar eru aðrir gestir og fjöldskyldur í sumarfríi og afslöppun, og gott að taka tillit til þess. Á eyjunni er fjöldi skemmtistaða út um allt, sem opnir eru fram á morgun, og því alger óþarfi að halda partý upp á hóteli. Slík læti eru bönnuð eftir klukkan 23 á kvöldin, og munu fararstjórar ganga úr skugga um að það gangi eftir undantekningarlaust.
Það er bannað að borða á veitingastaðnum í baðfötum, áður en þangað er haldið er því gott að klæða sig í einhverjar flíkur.
Starfsfólk hótelsins er æðislegt og vill allt fyrir okkur gera. Það er ekki auðvelt að taka á móti nokkur hundruð 19 ára partýdýrum, og þau eiga skilið virðingu og kurteisi sem því miður vill oft gleymast í gleðinni.
Það er mjög strangt tekið á allri vímuefnaneyslu á Krít. Við erum hvorki í Kaliforníu né Amsterdam, og ef þið verðið uppvís að neyslu vímuefna er hringt á lögreglu (sem er vesen) og ykkur vísað af hótelinu.
Já…það eru pöddur á Krít. Þar er gróður, hiti og raki og þær fýla svoleiðis í tætlur. Við erum aðalega að tala um maura, kakkalakka og moskító. Varðandi maurana og kakkalakkana, er nauðsynlegt að skilja ekki matarafganga eftir útum allt herbergi…þeir finna þá!
Moskítóflugurnar elska ekkert heitar en föla íslenska húð. Þær leita í svita, og áfengissviti er þeirra mest mest mest uppáhalds, þannig að fáklæddir íslenskir kokteilþambarar eru í slæmum málum. Til að forðast þær alveg þá er best að svitna ekki, drekka ekki og vera fullklæddur í skugga. Lítið mál, ekki satt? 🙂
Fyrir þá sem ekki treysta sér í það, eru hér nokkur ráð til að forðast bit:
Farastjórar Tripical eru sérvaldir snillingar. Þau hafa öll það sameiginlega markmið að gera þessa ferð ykkar bæði örugga og skemmtilega og eru tilbúin að leggja ýmislegt á sig til að svo megi verða. Kynnumst þessum elskum aðeins betur.
Áhugamál: Framandi lönd og góður matur
Aldur: 35 vetra
Áhugamál: Vinir, ræktin og útilegur
Aldur: 23 ára
Peppstjóri
Lára er útskrifuð úr Verzló og stundar nám í viðskiptafræði við HR, auk þess að vera atvinnu peppari hjá Tripical. Lára er mikil ævintýrakona og sækist í framandi og spennandi staði, til dæmis Sri Lanka og Ástralíu þar sem hún heimsótti eyjur, frumskóga og fleira og sigraðist þar á ótta sínum við kóngulær. Lára hefur margt fram að færa, hún er til dæmis mjög góð í að þefa uppi alla bestu skemmtistaðina og má því segja að hún sé ómissandi partur af Tripical hópnum. Fyrir utan þennan ofurkraft þá er hún líka sterk, dugleg og fáránlega hress og ruglað fyndin.
Áhugamál: Ferðalög, dýr og leikhús
Aldur: 23 ára unglingur
Gunna er kokkur, þjónn og verkefnastjóri, hún er Vesturbæingur sem býr í Breiðholti með dóttur sinni. Hún elskar útilegur og ferðalög. Fer að veiða við öll tækifæri og labbar um fjöll og firnindi. Hellnar á Snæfellsnesi er hennar uppáhaldsstaður. Gunna er ótrúlega eftirtektarsöm, skipulögð og úrræðagóð, hún finnur lausnir á ótrúlegustu vandamálum sem er mjög góður kostur í svona ferðum. Hún er mjög traustur vinur og hægt að tala við hana um allt nema tölvuleiki. Hún er langoftast í frábæru skapi og það þarf mikið til að reita hana til reiði. Gunna er hrókur alls fagnaðar og auðvelt að plata hana í alls kyns flipp.
Áhugamál: Veiði, útilegur og ferðalög
Aldur: 41 vetra