





Skólaheimsókn til Stokkhólms
Skólaheimsókn til Stokkhólms!
Ein fallegasta borg Norðurlandanna í glæsilegu náttúrulegu umhverfi með öllum sínum görðum, brúm og eyjum. Stokkhólmur er nútímaleg borg með merkilegan sögulegan kjarna. Stokkhólmur býður upp á frábærar mathallir, stórkostleg söfn og sögufrægar byggingar sem hægt er að njóta í vinalegu og þægilegu umhverfi.
Tripical býður kennurum og öðru starfsfólki skóla upp á fræðandi og skemmtilega kennaraferð og skólaheimsókn til vinalegu söguborgarinnar Stokkhólms. Þar munum við kynnast frábrugðnu skólakerfi í glæsilegu umhverfi og fræðast um áhugaverða sögu og menningu ásamt góðum skammti af skemmtun. Í skólaheimsóknum okkar leggjum við alltaf áherslu á að heimsækja áhugaverða skóla sem eru leiðandi í kennslu, hver á sínu sviði.
Við bjóðum upp á margar fræðandi kynnisferðir um borgina og merka staði og erum alltaf tilbúin til að skipuleggja skemmtilega viðbótardagskrá og kynnisferðir eftir séróskum hvers hóps. Við hjá Tripical viljum einnig að makar séu velkomnir með í kennaraferðir okkar og því bjóðum við mökum alltaf upp á sérstaka skemmtidagskrá meðan á skólaheimsóknum stendur svo allir geti notið ferðarinnar sem mest.
Menningargersemar um alla borg
Í Stokkhólmi er engin skortur á menningargersemum sem prýða alla borgina. Elsta hverfi borgarinnar er eins og klippt úr sögubók með glæsilegri konungshöll, hellulögðum götum og miðaldarbyggingum og er án efa einn mest sjarmerandi og óaðfinnalega varðveitti sögulegi miðbær Evrópu. Um gervalla borg eru heimsklassa söfn og gallerí sem fræða og heilla. Allt frá ómetanlegum fjársjóðum víkinda og sokkins herskips til Abba búninga og samtímalistar.
Ferskur og dásamlegur matur
Nágrannasveitir Stokkhólms búa yfir gnægð af hágæða afurðum og því er það ekki furða að matargerð er mikil ástríða í borginni. Matargerð í Stokkhólmi er í góðum takti við tísku umheimsins og meðtekur með opnum örmum alla nýbreytni í matargerð og matarlífstíls Allt frá hráfæði og acai morgunverðarskálum til sjálfbærs staðbundins matarlífsstíls. Að sama skapi eru hefðbundnir þjóðarréttir auðfáanlegir. Hvort sem það er steikt síld, gómsætar kjötbollur eða smurt brauð, þá eru hefðir virtar og oft framreiddar á nýstárlegan hátt af hálfu nýrri kynslóðar framúrstefnulegra kokka í Stokkhólmi.
Afslöppuð og þægileg borg
Stokkhólmur er afslöppuð borg og á réttan hátt. Þrátt fyrir að borgin dreifist á 14 eyjar, þá er hún einstaklega samheldin og auðvelt að skoða hana fótgangandi. Brýr tengja flestar eyjarnar saman og ferjur og neðanjararlestir ná til hinna. Almenningssamgöngur eru öruggar, þægilegar og skilvirkar og ná til allra svæða borgarinnar og nágrannasveita. Aðgengi fyrir fatlaða er einnig til fyrirmyndar og allar götumerkingar auðskiljanlegar.
Óaðfinnanlegur stíll
Svíar hafa gott vit á hönnun og sænsk hönnun er þekkt um allan heim. Í Stokkhólmi skiptir góður stíll máli og það má jafnvel sjá að á látlausustu kaffihúsum er umhverfi og borðbúnaður útpældur með áherslu á góðan stíl og hönnun. Um borgina má finna fjöldan allan af hátískuverslunum, vinnustofum, hönnunarverslunum, vintage-búðum sem bjóða upp á allt frá heimagerðu handverki og götutísku til heimsþekkra hönnunarmerkja.
Hápunktar ferðar
- favoriteSögulegur miðbær
- favoriteFrábært úrval af búðum
- favoriteFallegt umhverfi
- favoriteAfslöppuð og þægileg borg
Innifalið í verði
- Flug fram og til baka
- 4 nætur á hóteli í miðbæ Stokkhólms
- 20 kg innritaður farangur
- Morgunmatur
- Rútur til og frá flugvelli og áfangastöðum
- Tvær skólaheimsóknir/kynnisferðir
- Íslensk farastjórn
Ekki innifalið
- Hádegisverður og kvöldverður
Dæmi um hótel
Hotel Birger Jarl 4 * eða sambærilegt
One of our top picks in Stockholm.The stylish Hotel is 300 m from Rådmansgatan Metro Station and the Stockholm Observatory. It offers traditional Swedish cuisine and free Wi-Fi.
Each individually designed room features the best in modern lighting and décor. All have a TV, minibar and comfortable armchairs. Guests have access to tea/coffee making facilities.
Birger Jarl’s restaurant offers a menu with a variety of Swedish dishes, while the stylish lobby bar provides lighter meals in a casual setting.
Stureplan, Stockholm’s nightclub and shopping district, is a 10-minute walk away. Staff will gladly help guests with directions or recommend local attractions such as the Strindberg Museum.
Skoða heimasíðu hótels hér.
Dagskrár hverrar skólaheimsóknar er alltaf háð ferðadagsetningum hverju sinni og því er hér eingöngu um tillögu að dagskrá að ræða.
Dagskrá innifalin í ferðum skólaheimsókna á vegum Tripical eru síðdegisganga um borgina, tvær skólaheimsóknir/kynnisferðir og skemmtidagskrá fyrir maka meðan á skólaheimsókn stendur.
Við bjóðum einnig upp á að skipuleggja fjölbreytta viðbótardagskrá eftir séróskum hvers skólahóps. Hvort sem það eru ferðir á söfn, viðburði, tónleika, íþróttaleiki eða sameiginlegur kvöldverður og árshátíðarskemmtun, þá erum við ávallt tilbúin til þess gera ferðina ykkar eins eftirminnilega og skemmtilega og mögulegt er.
Tillaga af dagskrá
-
add Dagur 1
- Flogið út til Stokkhólms
- Rúta upp á hótel
- Innritun á herbergi og andleg upphitun fyrir komandi daga
- Síðdegisganga með hópnum um miðborg Stokkhólms. Kynnast og hrista hópinn saman.
-
add Dagur 2
- Morgunmatur á hóteli
- Skólaheimsókn
- Sérstök skemmtidagskrá fyrir maka meðan á skólaheimsókn stendur
- Frjáls tími um kvöldið
-
add Dagur 3
- Morgunmatur á hóteli
- Skólaheimsókn eða kynnisferð
- Sérstök skemmtidagskrá fyrir maka meðan á skólaheimsókn stendur
- Árshátíðardinner! Sameiginlegur kvöldverður og skemmtun (Ekki innifalið).
-
add Dagur 4
- Morgunmatur á hóteli
- Frjáls dagur en margar kynnisferðir í boði sem hægt er að skipulegga.
-
add Dagur 5
- Morgunmatur á hóteli
- Frjáls dagur
- Rúta upp á flugvöll
- Flogið heim eftir góða ferð og ný kynni við flotta kennara í Stokkhólmi