Til að byrja með tökum við flugið beint til borgarinnar sem aldrei sefur. Líklegast átt þú sjálf/ur ekkert eftir að vilja sofa þegar þangað er komið, þar sem það er svo mikið um að vera og gera. Þú finnur varla þéttbýlli stað, þar sem öllu úir saman (á góðan hátt) og stutt í allt. Hvergi annars staðar geturðu fundið eins fjölbreytt sýnishorn af öllum heimsins menningarstraumum, en miðsvæðis í New York borg. Talið er að þar búi fólk af yfir 200 þjóðernum. Því næst er flogið yfir til hinnar sólríku Cancún í austurhluta Mexikó. Þar tekur á móti þér ylvolgur sjórinn, hlý golan og þú spókar þig á ströndinni með eins marga kokteila og þú getur borið. Öðru megin við hótelið þitt er sjórinn og hinum megin er lón. Hvort sem þú vilt bara slaka á í geggjuðu umhverfi með geggjuðum mat eða skoða þig um á framandi slóðum, þá ert þú á réttum stað!
Með fimm nætur til stefnu í stóra eplinu er hægt að gera svo margt. Skoða mannlífið, jafnvel að setja met í að skoða ALLAR helstu byggingar borgarinnar og ferðast í ÖLLUM neðanjarðarlestunum. Hostelið sem gist er á er aðeins rétt hjá neðanjarðarlestarstöð, og Central Park garðinum, svona til að einfalda þér hlutina ef þú vilt slá met í einhverju. Síðan er hægt að vera menningarlegur og skoða listasöfn. Kíkja á Frelsisstyttuna, fara í leikhús, sötra kokteil á töff rúftoppbar, eða klúbba sig í gang einhver staðar neðanjarðar. Kasta eggjum í Trump turninn (þú heyrðir það ekki hér). Kaupa þér I♥NY bol, og fá þér kaffibolla í Central Park, eða bara allt það annað sem þér dettur í hug.
Nóttin er alltaf ung í New York, og þegar sólin sest hægt fyrir aftan Hudson-flóann og stórhýsin borgarinnar lýsa upp borgina, breytist New York í risastóra leikmynd. Þá er hægt að skella sér í leikhús á Broadway, þar sem heimsklassa leikarar, dansarar og tónlistarmenn sýna verk sín. Þú getur kíkt á uppistand í Comedy kjallara og hlusta á misfyndið fólk segja misfynda hluti. Hvort sem þú ert að leitað að hámenningu eða ,,lágmenningu“, þá býður New York upp á bæði, sem og allt þar á milli. Jazz eða rapp, name it. Við skulum aðeins einfalda þetta. Ef þig getur dreymt það, þá geturðu gert það og/eða fundið það í New York (Tripical ber þó ekki ábyrgð á því ef þig dreymir skrýtna drauma).
Það hefur aldrei verið auðveldara að finna gott að borða í New York en í dag. Borgin hefur að geyma svo mikið fjölbreyttum veitingastöðum, með enn fjölbreyttari rétti, að það er garanteruð veisla í öll mál!
Kúba er stærst í karabíska eyjaklasanum, og að okkar mati ein sú fallegasta. Hvítar strendur, litríkir bílar, tónlist og dans, hvert sem þú lítur. Kúba er full af lífi nótt sem dag, og íbúar borgarinnar dansa um göturnar. Þegar þeir heyra lag sem þeir þekkja, fer takturinn beint í skrokkinn á þeim og þau geta ekki annað en dansað. Við mælum hiklaust með að gera slíkt hið sama!
Á þessari draumaeyju er ALLTAF sumar! Þú getur eytt deginum í að baða þig í sólinni og kæla þig svo í tærum sjónum, draga djúpt andann og pæla í hvað lífið er næs. Ef þú vilt leita lengra en í hvítan sandinn og finna ævintýri skellirðu þér í fjallgöngur, skoðar frumskóginn eða ferð í klettaklifur og skoðar hella.
Fyrir menningarfíklana er miðbær Havana upplifun á háu stigi. Havana er höfuðborg Kúbu og þar slær hjarta Kúbu sínum taktföstu slögum. Kíktu á alvöru götumarkað og fáðu menninguna beint í æð, eða prófaðu að keyra klassískan kúbverskan bíl, helst bleikan. Svo eru auðvitað öll húsin í öllum regnbogans litum, sjón sem gleður og kætir.
Eins og nefnt hefur verið er alltaf sumar á Kúbu, og ólíklegt að hitinn fari undir 25 gráður. Í svona hita er upplagt að prófa að snorkla, eða fara bara alla leið og henda sér í köfun! Kóralrifin í kringum eyjuna eru algjörlega mögnuð sjón sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Svo er einnig hægt að bruna um öldurnar á brimbretti og æfa lærvöðvana í leiðinni.
Næturlífið í Havana er villt og skemmtilegt. Byrjaðu kvöldið á alvöru lókalstað, þar sem gítarspil og trompethljómur kemur þér í partýgírinn um leið og þú sýpur á eðal Mohito með kúbversku rommi. Mikið úrval er af skemmtistöðum, og ekki skemmir fyrir að margir af þeim bjóða upp á seyðandi salsatónlist.
Fyrir áhugasama er auðvitað hægt að prófa ekta kúbverskan vindil. Þú ert á Kúbu, Mekka romms og vindla.
Flestir Íslendingar, eins og aðrir heimsbúar, telja sig vita sitthvað um Bandaríkin, siði þarlendra og menningu. Þessi stórþjóð í vestri hefur í gegnum tíðina haft sterk ítök í menningu annarra landa, sem mörg hver eru undir ákveðnum áhrifum Bandaríkjanna hvort sem það er í mat, tónlist, bíómyndum eða á öðrum sviðum menningar og mannlífs. Þau áhrif segja þó ekki alla söguna. Við hjá Tripical erum einstaklega hrifin af fjölbreytileika Bandaríkjanna og okkur grunar að fleiri deili þeim áhuga. Við viljum því bjóða upp á möguleika á að ferðast til lands tækifæranna, og upplifa nýjar hliðar sem þið hafið jafnvel aldrei séð eða heyrt um.
Bandaríkin bjóða upp á mikinn fjölbreytileika, bæði í náttúrufegurð og mannlífi. Við viljum kynna fyrir þér brot af því besta, og fara yfir það helsta sem finna má og gera í landi draumanna. Hér höfum við eyðimerkur annars vegar, og snæviþakta fjallstoppa hins vegar. Við höfum Suðurríka sveitalubba (e. rednecks) og við höfum snobbaða Upper West Side snyrtipinna. Landið hýsir ýmsa stórborgina, sem hver og ein hefur sín sérstöku einkenni: Los Angeles, San Francisco, Las Vegas, Chicago, Miami, Boston og New York svo dæmi séu tekin.
Í Bandaríkjunum má finna hvorki meira né minna en fjórar milljónir kílómetra af þjóðvegum sem leiða þig á milli frjósamra hveitiakra og stálsteyptra skýjakljúfra.
Samanstendur af níu fylkjum og er það svæði Bandaríkjanna þar sem efnahagur er talinn hvað bestur, hér er mjög þéttbýlt og mikinn menningarlegan fjölbreytileika að finna. Til að einfalda hlutina er norðausturströndinni yfirleitt skipt upp í tvo hluta, Nýja England og Mið-Atlas fylkin.
Fylkin í Nýja Englandi eru Connecticut, Maine, Massachusetts, New Hampshire, Rhode Island og Vermont. Þau eru tiltölulega lítil að stærð, en íbúafjöldi hár. Hér finnurðu m.a. borgirnar Boston, Worcester og Providence. Nýja England býður upp á fjölbreytt tónleikahald, fjörugt háskólalíf, safaríkt sjávarfang og sætt hlynsíróp. Eins og nafnið bendir til, er það hér sem Bandaríkin risu upp í byrjun, með landnemum frá Englandi og öðrum stöðum í Evrópu sem sigldu yfir hafið með drauma sína og væntingar um nýtt og betra líf. Hér býr því mikil saga sem finna má bæði á söfnum, sem og hjá fólkinu og í umhverfinu öllu. Sagan er alls staðar.
Nýja England býður upp á glæsilegar hæðir og fjöll. Þar er um 8000 km strandlengja sem er sannkallað draumasvæði fyrir vatnstengdar íþróttir. Þar bíða tækifæri til að veiða, synda, skella sér á brimbrettabrun eða í þægilega siglingu. Leyfðu bara hugmyndunum að taka flugið, og á meðan geturðu slakað á í sólbaði. Á svæðinu má einnig finna flott samtímalistasöfn, auk ótal hefðbundinna listasafna, kvikmyndahátíðir og margt fleira. Hér er menningardagatalið einfaldlega pakkað. Ef þú ert að leita að góðum mat finnurðu kræsingar á við Maine humar, Wellfleet ostrur, að ógleymdum hinum eina sanna Vermont bjór.
Vegna þess hversu fjölþjóðlegt svæðið er, eru alþjóðleg áhrif á matarmenningu mikil, og veitingarstaðirnir á svæðinu nýta sér það besta frá öllum heimshornum.
Hin svonefndu Miðju-Atlas fylki eru New Jersey, New York, Pennsylvania Delaware, Maryland, Virginía og Vestur-Virginía. Heimsþekkt fylki og margt og mikið að sjá. Athyglisverð minnismerki bíða þín hvert sem þú snýrð þér, og fjöldinn allur af söfnum og veitingastöðum með matargerð víðs vegar að úr heiminum. Hér er bókstaflega allt sem hugurinn girnist. Önnur ríki á svæðinu bjóða upp á fjölbreytt landslag og fyrir þau ykkar sem viljið ekki fara hina hefðbundnu leið og kynnast svæðinu á annan hátt en með því að skoða stórborgir, má í staðinn skoða fjöll og fyrnindi, tjalda, fara í siglingar um fljótin, leggjast á glitrandi strendur og ganga um söguleg þorp sem taka mann til upprunans, og minna okkur á fyrstu ár hvíta mannsins í þessu stórbrotna landi.
Villta vestrið! Þetta svæði Bandaríkjanna er gífurlega stórt að flatarmáli og þar eru ríkin þrettán að tölu. Þeirra þekktust eru Kalifornía, Coloradó, Nevada, Nýja-Mexíkó og Washington. Á síðari árum hefur hér gríðarleg íbúafjölgun átt sér stað, vegna fólksflutninga bæði frá miðríkjum og norð-austurströnd landsins. Á svæðinu eru ófá náttúruundur: Nevada eyðimörkin, Yosemite þjóðgarðinn, Klettafjöllin (e. Rocky Mountains) og Miklagljúfur (e. Grand Canyon), svo fátt eitt sé nefnt. Ekki má heldur gleyma hinni afar stóru strandlengju sem svæðið dregur nafn sitt af. Helstu og þekktustu borgirnar eru Los Angeles, San Francisco, Phoenix og Las Vegas, allar með sinn einstaka persónuleika og sérstöðu. Hollywood glamúrinn endurspeglast alls staðar í borg englanna, Los Angeles. Denver býður upp á fjölbreytta möguleika til hvers kyns útivistar. Hin listræna og sögufræga Santa Fe er heill heimur út af fyrir sig. Goðsagnakenndir staðir og magnað landslag gerir vesturhluta Bandaríkjanna að spennandi áfangastað fyrir ævintýrafólk, stórstjörnur, og alla aðra!
Náttúruundrin hér gera ferðina þína að mikilli veislu. Rauðir klettar, gljúfur og eyðimerkur svo langt sem augað eygir. Paradís fyrir göngu- og hjólreiðafólk. Í norðurhlutanum er svo allt annað uppi á teningnum, en þar er hægt að skella sér á skíði og snjóbretti í einum mögnuðustu skíðabrekkum heimsins.
Í matargerð er hér mikið unnið með hráefni af svæðinu, hvort sem það er úr sjó eða af landi, og vín af nærliggjandi ekrum drukkið með. Þú finnur alls konar mat, en þó má segja að sterkra áhrifa gæti frá mexíkóskri matarmenningu.
Vestrið býður kannski ekki upp á endalaust magn af söfnum, en í staðinn geturðu eytt tíma þínum hér í að skoða landslagið og náttúruna allt í kring. Þú getur auk þess sótt messu í einni af fjölmörgum kapellum í LA, grandskoðað yfirgefna draugabæi og jafnvel kíkt í heimsókn í Kísildal San Francisco, þar sem öll helstu tæknifyrirtæki heimsins hafa aðsetur. Þannig getum við sérsniðið þína persónulegu og einstöku upplifun af hinu villta vestri.
Suðurhluti Bandaríkjanna aðgreinir sig frá öðrum svæðum landsins með nokkuð afgerandi hætti, og greina má þann mun á mörgum sviðum, eins og t.d. í tónlist, matargerð, bókmenntum sem og annarri menningu. Hér talar fólk hreinlega öðruvísi, með sínum heimsþekkta Suðurríkjahreim. Og saga Suðurríkjanna er auðvitað stórbrotin og mikil, eins og í öðrum hlutum Bandaríkjanna, saga sigra og ósigra, falleg saga en einnig grimm og blóðug.
Hér eru fjöllin gróf og grýtt, skógarnir þykkir, árnar breiðar og langar. New Orleans færir þér djass og blús á heimsmælikvarða, hitabeltisloftslag Florida fylkis laðar til sín sólþyrsta gesti ár hvert. Enn austar liggja svo strandfylkin Suður- og Norður-Karólína. Ofar á kortinu finnurðu svo Tennessee fylki, sem með réttu má kalla mekka kántrýtónlistarinnar. Síðast en langt því frá síst ber svo að nefna sjálfa höfuðborg Bandaríkjanna, en heimsókn þangað má sannarlega finna á bucket listum fólks um allann heim.
Og svo er það auðvitað og að sjálfsögðu Texas! Risastór, með stórborgir og smábæi, kúrekahatta, olíukónga og íííhhaa. Flestir hafa sínar eigin hugmyndir um þetta magnaða fylki. Það er vel þess virði að taka sér ferð á hendur og kanna hversu mikið þær hugmyndir eiga við rök að styðjast. Við mönum þig!
Eina svæðið af þeim fjórum sem hér eru upptalin, sem liggur ekki að sjó. Hins vegar eru hér afar stór og mikil vötn, eins og Michigan-vatn og Superior. Stærstu borgirnar eru meðal annars Chicago, Detroit, Minneapolis og Cleveland. Þessu svæði er oft skipt í tvennt, sléttusvæðið annars vegar og vatnasvæðið hins vegar. Skiptingin snýr ekki eingöngu að ólíku landslagi, því svæðin eru auk þess mjög ólík þegar kemur að menningu og samfélögum. Ef þú vilt upplifa hinn svokallaða sanna miðvesturs lífsstíl þá eru Kansas, Iowa, Dakota og Nebraska réttu fylkin fyrir þig, en þau tilheyra sléttusvæðinu. Vatnahlutinn er svo meira í ætt við það sem þú finnur í Boston og New York. Þá má ekki gleyma einu helsta kennileiti miðríkjanna, Rushmore fjallinu, þar sem andlit fyrri tíma Bandaríkjaforseta eru meitluð í klettabeltið.
Chicago er oft nefnd sem höfuðborg miðríkjanna. Oft kölluð Borg vindanna og þekkt fyrir lestarkerfi sem er ofanjarðar og glæstum arkitektúr sem auðveldlega má gleyma sér við að skoða. Við mælum líka með því að hafa beltið ekki of þétt spennt um strenginn, því það er gott að borða í Chicaco, og endalaust magn af veitingastöðum af öllum stærðum og gerðum, þar sem kokkarnir leika sér nokkuð léttilega við bragðlaukana þína. Þeir sem vilja upplifa alvöru íþróttastemmingu eru aldeilis á réttum stað.
Kúba hefur um áratuga skeið setið fast í viðjum fortíðar og úr sér gengnum kommúnisma, en er nú að vakna af þeim fasta svefni. Aðgangur fyrir gesti er að galopnast og við erum boðin velkomin inn í þetta heillandi land, þar sem tíminn hefur staðið í stað í svo langan tíma.
Kúba er þreytt og dösuð, en samt svo stórfengleg. Fallin stjarna en þó full af reisn og óviðjafnanlegum sjarma. Ferð til Kúbu er eitthvað engu öðru líkt. Þetta er land einstakra töfra og dularfullra galdra, og best að vera við öllu búinn. Kúbverjar elska góðan mat og hressandi salsatónlist sem erfitt er að dilla sér ekki við. Það er um að gera að hrífast bara með – eftir einn svalandi mojito og með þétt rúllaðan kúbverskan vindil við hönd – og láta vaða í einn vænan cha-cha-cha dans.
Þegar stigið er yfir landamærin er best að gleyma öllu því sem þú telur sjálfsagt í þínu hversdagslega lífi. Hér þarf að horfa á hlutina frá öðru sjónarhorni. Eitt besta dæmið um þetta er sú staðreynd að internet hefur varla þekkst á Kúbu í áraraðir.
Borgir Kúbu hafi ekki breyst ýkja mikið síðan hafnir þar voru helstu stoppistöðvar sjóræningja Karíbahafsins. Andrúmsloftið og arkitektúr Havana, Trínidad og Remedios hreyfir auðveldlega við manni og þar segja gömul hús og steinlagðar götur miklu meira en 1000 orð. Svæðið er nokkuð vel varðveitt, en þrátt fyrir það liggja margar byggingar undir skemmdum sökum vanrækslu, og bíða eftir að einkafjárfestar sjái hag sinn í að fjármagna endurbætur. Þetta hefur nú þegar gerst með margar fallegar byggingar sem áður voru í niðurníslu en eru nú skemmtilega hönnuð hótel og veitingahús eða stórkostleg einbýlishús.
Það hefur sjaldan verið betra að heimsækja Kúbu, með tilkomu einkafyrirtækja og aukinnar innspýtingu fjárfesta í ferðaþjónustuna. Frá dreifbýlissvæðum eins og Viñales, til Havana og fleiri borga, er eins og landið sé allt að vakna af djúpum svefni. Kúba er á tímamótum og hiklaust hægt að mæla með ferð þangað til að upplifa þessar breytingar og sjá þessa fallegu rós byrja að blómstra á ný.
Á norðurhluta landsins og eyjum þar í kring finnurðu hvítan sand og heillandi strendur. Við mælum líka eindregið með að þú setjir á þig landkönnuðarhattinn og skoðir svæði handan stranda og helstu borga. Farðu inn í skógana, og skoðaðu mýrarnar, en gættu þín á krókódílunum sem eiga heimkynni sín í votlendinu. Kíktu upp í fjöllin og sjáðu yfirgefnar kaffiframleiðslur og fleiri minnisvarða hinnar gömlu Kúbu. Ævintýrin eru alls staðar.
Við fyrstu sýn getur Havana birst manni sem ruglingslegt púsluspil. Þegar þú áttar þig á því hvernig púslið er sett saman blasir einstaklega falleg mynd við þér. Sterkt og lifandi mannlíf einkennir borgina, hinir ýmsu listamenn hafa mikil áhrif og setja skemmtilegan svip á menningarlíf hennar. Hér er stemmingin á kaffihúsunum vægast sagt önnur en við eigum að venjast hér heima. Kannski er það eitthvað sem þeir setja í mojito-ana, alla vega hefur kúbversk kaffihúsamenning aldrei verið eins lifandi og litrík, í 500 ára sögu landsins!
Íbúar Kúbu eru brenndir af stórum byltingum og bandarísku viðskiptabanni. Þetta hefur mótað samfélagið, borgir og bæi, en þrátt fyrir það svífur hin sterka taktfasta salsa-orka yfir öllu og Havana dansar við glymjandi tónlistina sem alls staðar heyrist. Það er einfaldlega ekki hægt annað en að hrífast með!
Þetta er eitt mesta ferðamannasvæði Kúbu, og mjög mikilvægt fyrir hagkerfi landsins. Varadero hefur að geyma stærstu sólarströnd Karabíska hafsins, þar eru yfir 60 hótel af öllum stærðum og gerðum, sem mörg hver bjóða upp á ,,all-inclusive“ pakka. Á svæðinu má finna verslanir, vatnaíþrótta- og leiksvæði, sundlaugar og aðra skemmtun. Frábær staður fyrir gott og afslappað frí!
Einstakur bær, rétta austan við Havana. Staðurinn er í raun fullkomin fulltrúi tíma spænsku nýlendustofnunarinnar. Bærinn er tímalaus (bókstaflega!) því klukkurnar voru stöðvaðar árið 1850 og enn þann dag í dag hafa þær ekki verið ræstar að nýju. Magnaður bær sem árið 1988 var skráður á heimsminjaskrá UNESCO.
Sykurreyrarsvæði má finna nálægt Trinidad, en þar unnu á sínum tíma þrælar hörðum höndum við sykurvinnslu sem notuð var í rommframleiðslu. Einnig er að finna fallega fossa og fjalllendi nálægt bænum. Við lofum því að labb um götur Trinidad kúplar þig algerlega frá tækni og stressi nútímans og þú finnur ósvikin tengsl við fortíðina.
Tveggja stjörnu hótel á fullkomnum stað í Midtown Manhattan. Times Square er virkilega stutt frá hótelinu og Central Park í 15 mínútna fjarlægð. Gist er í annaðhvort tveggja eða fjögurra manna herbergjum á hótelinu og fær hótelið og staðsetningin framúrskarandi einkunn.
Herbergin innihalda rúmföt, handklæði, læsta skápa og hefur frítt Wifi. 24/7 móttaka er á hótelinu. Í herbergjunum er einnig flatskjár fyrir þá sem vilja bara taka því rólega, og á hótelinu er einnig vel útbúin rækt og útisundlaug.
Öll herbergi eru einnig útbúin skrifborði, straujárni, hárþurrku og loftkælingu.
Lestu meira um hótelið hér
Þetta glæsilega 5 stjörnu hótel er frábærlega staðsett, alveg í hjarta Kúbu. Hótelið er virkilega fallega stíliserað og umhverfið alls ekki af verri endanum. Þetta er sannkallað lúxus hótel með allt það besta sem hótel getur haft upp á að bjóða!
Þægindi og lúxus er það sem hótelið sérhæfir sig í, að þér líði sem allra best á meðan dvölinni stendur. Út um alla glugga er magnað útsýni, hvort sem þú horfir yfir stóru sundlaug hótelsins eða ótrúlega náttúrufegurð sem er allstaðar í kring.
Á hótelinu er oft mikið um að vera, og yfirleitt er boðið upp á live tónlist frá vel þekktum kúbverskum tónlistarmönnum, kúbverski takturinn beint í æð.
Þú finnur einnig gjafavöruverslanir, kaffihús og stóran veitingastað á hótelinu en þar er einnig morgunverðurinn, sem er innifalinn, borinn fram. Við hótelið er einnig stór og falleg sundlaug þar sem þú getur legið í sólinni og notið lífsins, safnað í tan, eða bara freknur.
Í öllum herbergjum er ísskápur, sjónvarp, skrifborð, Wifi, fjarstýrð loftkæling, baðherbergi, hárblásari og reykskynjari, og í flestum herbergjum eru svalir.