Króatía er guðdómleg paradís náttúru, menningar og sólarhlýju. Njóttu þín í hafnarborginni Split, sem er staðsett í miðri Dalmatíu. Þaðan er hægt að taka ferjuna yfir til Hvar, keyra niður til hinnar mögnuðu Dubrovnik, eða njóta lífsins í Sibenik, sem skartar meðal annars 24 kirkjum frá miðöldum. Strandlengja Króatíu er þekkt fyrir sitt fagurgræna landslag, kristaltært Adríahafið (sem er það tærasta í Evrópu!) og ríka sögu sem nær þúsundir ára aftur í tímann.
Split er stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næststærstu borg Króatíu. Í sögulegum kjarna Split, og listað á Heimsminjalista Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), stendur stórbrotin höll rómverska keisarans Diocletian, bygging frá því um fjórðu öld fyrir Krist. Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar má finna þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi. Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og má þar finna fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr.
Eyjan Hvar er einn vinsælasti áfangastaður landins, og ekki að undra, því hún er ofboðslega skemmtileg og státar af því að vera sólríkasti staður Króatíu. Á Hvar er að finna afar fjölbreytilegt mannlíf, fólk á öllum aldri, fjölskyldur, unglinga í leit að skemmtilegu næturlífi og meira að segja súperstjörnur, en Beyoncé var einmitt á Hvar fyrir ekki svo löngu síðan! Eyjan er þekkt fyrir gott veður, gómsæta matargerð og virkilega fallega náttúru. Sjávargolan sem blæs yfir bæinn er endurnærandi og talin veita orku, enda voru áður heilsustöðvar á Hvar fyrir einstaklinga með öndunarerfiðleika, þar sem sjúklingum var boðið að fara í „öndunarhreinsun“.
En hvar er Hvar? Eyjan Hvar er staðsett rétt hjá Split, næststærstu borgar Króatíu. Split er sennilega ferðamannavænsta borgin þarna úti og mikið af fólki fer þangað til að upplifa spennandi næturlíf. Á Split er ótalmargt að gera og sjá og mælir Tripical sérstaklega með því að fara að skoða rómversku rústirnar í bænum sem borgin er byggð í kringum.
Skelltu þér í siglingu um eyjarnar í kring og láttu þér líða eins og þú sért alvöru Hollywood stjarna! Það er sannkallað ævintýri að horfa í kristaltæran sjóinn, láta hafgoluna leika við hárið, jafnvel með kampavínsglas í hönd.
Á Hvar er algjört ,,must“ að fara í Blue Cave, sem er eitt magnaðasta náttúrufyrirbæri í heimi. Sólargeislarnir skína inn í hellinn á steina sem mynda þessa mögnuðu bláu birtu. Við lofum upplifun sem þú munt aldrei gleyma.
Fyrir sanna Game of Thrones aðdáendur erum við með góðar fréttir. Hluti þáttanna var tekinn upp í Split, á götum Meereen og Braavos, þar sem þú getur einmitt notið þess að skoða magnaðan arkítektúr. Í gamla bænum í Split mælum við einnig með því að skoða Diocletian höllina sem er ótrúlegt mannvirki.
Fyrir þá sem vilja bara slaka á, er auðvitað hægt að steikja sig í sólargeislunum við sundlaugarbakkann eða á hvítri ströndinni, panta sér nokkra Mohito og bara njóta þess að vera til.
Strandlengja Króatíu er með þeim fallegustu í heiminum og er sandurinn og ströndin eins hrein og tær og hægt er að vera. Til þess að byrja með þá er náttúrufegurð Króatíu stórbrotin. En Adríahafið undirstrikar það algjörlega. Sjórinn meðfram strandlengju Króatíu er sá tærasti í allri Evrópu samkvæmt Evrópuráði. Það er því ekki furða að hafið sé þeirra mikilvægasta auðlind, hvort sem það er vegna sjávarafurða eða í gegnum ferðamannaiðnaðinn.
Króatía býr yfir voldugri sögu, gríðarlegri náttúrufegurð og býður upp á fjölbreytta staði fyrir forvitna heimshornaflakkara. Í landinu miðju höfum við Plitvice þjóðgarðinn, sem helst minnir á landslag Pandoru úr kvikmyndinni Avatar. Á strandlengju Dalmatiu héraðs finnurðu bæði stórbrotin klettabjörg og seiðandi gylltar sólarstrendur, ásamt hinum ævarforna og tignarlega borgargimstein Dubrovnik. Á hinum endanum, með landamæri að Slóveníu og í nálægð við Ítalíu, er svo hinn heillandi Istria skagi, svæði sem tilheyrði reyndar Ítalíu um nokkurra áratuga skeið, frá lokum fyrri heimsstyrjaldar til loka þeirrar seinni (1918-1945) og þau tengsl nokkuð greinileg bæði í byggingarstíl og stemmingu. Þá er Adríahafið meðfram Króatíu talið tærasta haf Evrópu, enda mjög vinsælt til köfunar. Þar er að finna yfir þúsund misstórar eyjar sem draga að sér fjölda ferðamanna á hverju ári.
Hér er fátt eitt nefnt úr þeirri miklu flóru spennandi áfangastaða sem þetta fagra land býður uppá. Við hjá Tripical einfaldlega elskum Króatíu og erum viss um að þú munt gera það líka.
Almennar upplýsingar
Eyjan Hvar er einn vinsælasti áfangastaður landsins og ekki að undra, hún er ofboðslega skemmtileg og státar af því að vera sólríkasti staður Króatíu. Á Hvar finnurðu alls konar mannlíf og gesti á öllum aldri, fjölskyldur stórar og smáar, ungt fólk í leit að skemmtilegu næturlífi og stundum líka súperstjörnur úr Hollywood. Eyjan er þekkt fyrir mikla veðursæld, gómsæta matargerð og einstaka náttúrufegurð. Sjávargolan sem blæs yfir bæinn þykir mjög endurnærandi og orkumikil, svo mikið að fyrr á árum voru starfræktar á eyjunni heilsulindir fyrir einstaklinga með öndunarerfiðleika, þar sem hægt var að fara í sérstaka „öndunarhreinsun“.
Nálægt eyjunni er svo að finna næststærstu borg Króatíu, Split. Þetta er afar ferðamannavæn borg, ofboðslega fallegur staður sem býður upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.
Í tveggja klukkustunda fjarlægð suður af Split er Dubrovnik, lítill 40.000 manna bær á syðsta punkti Króatíu. Gamli bærinn í Dubrovnik á sér langa sögu, en hann er umkringdur borgarveggjum sem áttu að verja hann á stríðstímum fyrr á árum en Dubrovnik var sjálfstætt ríki áður en bærinn varð partur af Króatíu. Bærinn á það sameiginlegt með Íslandi að Game of Thrones hafa tekið upp þáttaseríur sínar þar, en fyrir þá sem til þekkja eru allar senur sem gerast í suðrinu teknar þar.
Á hinum enda strandlengjunnar, nálægt Ítalíu og með landamæri að Slóveníu, liggur Istria skaginn, sem frá árunum 1918-1945 var hluti af Ítalíu, varð síðan partur af kommúnistaríkinu Júgóslavíu en tilheyrir í dag Króatíu. Þar má finna aragrúa lítilla smábæja, bæði við sjávarsíðuna og upp með fjallshlíðum. Þetta eru gömul, rótgróin og einstaklega sjarmerandi þorp, byggingastíllinn er öðruvísi en fyrir sunnan, húsin litrík, og svipa mjög til smábæja á Ítalíu. Hér úir og grúir af sjávarréttastöðum sem bjóða upp á ferskt sjávarfang. Fjölda markaða er að finna á svæðinu og ólívur, trufflur, olíur og ýmis konar ávextir eru fáanlegir út um allt. Neðst á skaganum er bærinn Pula en þar má finna risastórt rómverskt hringleikahús. Við mælum einnig með heimsókn í hinn heillandi bæ Rovinj og skoðunarferð í Basilikkuna í bænum Poreč.
Opatija er einstaklega fallegur bær á Istria skaganum, umkringdur fallegum lárviðarskógi við strendur Adríahafsins og um 18 km frá Rijeka, sem er ein af stærri borgum Króatíu. Staðurinn er þekktur fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag og sínar sögulegu byggingar og vinsæll bæði sem sumar- og vetrardvalarstaður, með meðalhita upp á 10 °C á veturna og 32 °C á sumrin.
Opatija á rætur sínar að rekja til klausturs heilags Jakobs sem þar stóð og bærinn óx út frá, en nafnið Opatija þýðir einmitt ,,klaustur“. Dagur Heilags Jakobs, sem er verndardýrlingur ferðalanga (og einnig verndari sútunar og ávaxtaræktenda), er haldinn hátíðlegur á hverju ári 25. júlí, og er um leið almennur hátíðisdagur bæjarins.
Á fyrri tímum var Opatija hluti af feneyska lýðveldinu og í framhaldinu lengi vel eign auðugra austurrísk-ungverskra fjölskyldna sem byggðu þennan fallega griðarstað sinn með miklum glæsileik, mikilfengleg stórhýsi frá tímum þessa ,,háklassasamfélags“ standa meðfram ströndinni og setja sterkan svip á bæinn. Hér eru fagrir garðar, tignarleg lúxushótel og umhverfi sem sómir sér vel á póstkortum, og gera Opatija að töfrandi áfangastað.
Šibenik er ein af elstu borgum Króatíu, sögulegur staður frá 11. öld, í miðju Dalmatíu-héraði, við ána Krka sem rennur í Adríahaf. Þar búa í dag um 35.000 manns. Þar er mikið um einstakar byggingar fyrri alda. Þekktust þeirra má telja Saint James dómkirkjuna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, en einnig má nefna miðaldaklaustur St. Laurence og afar sjaldgæfan klausturgarð þar við frá 15. öld, og virki heilags Mikaels sem veitir einstakt útsýni yfir borgina og hafið fyrir utan.
Í hinu heiftúðuga sjálfstæðisstríði Króata (1991–95) varð Šibenik fyrir harðri árás frá jógóslavneska þjóðarhernum og serbneskum hersveitum. Þrátt fyrir að vera undirvopnaðir, tókst króatíska hernum og íbúum Šibenik að verja borgina. Bardaginn stóð í sex daga (16.–22. september 1995), oft nefndur „septemberbardaginn“. Sprengjuárásirnar skemmdu fjölmargar byggingar og minnisvarða, þar á meðal hvelfingu Šibenik dómkirkju heilags Jakobs og leikhúsbyggingu sem var byggð árið 1870. Síðan þá hafa skemmdar byggingar borgarinnar verið endurreistar að fullu.
Í dag er Šibenik friðsæl og hrífandi borg full af sögu og sjarma, ekki síst gamli hluti bæjarins, með ævafornu kirkjum, höllum fyrrum aðalsmanna og dæmigerðu aldagömlum dalmatískum steinhúsum.
Til gamans má geta að hér var fallhlífin fundin upp á 17. öld og prófuð í fyrsta skipti af uppfinningamanni hennar Faust Vrancic. Hér er líka fæddur og uppalinn hinn frægi körfuboltamaður Dražen Petrović.
Um miðja strandlengju Króatíu er eyjan Pag. Við enda hennar er að finna bæinn Novalja, sem er á sumrin yfirfullur af ungu og skemmtanaþyrstu fólki. Bærinn einkennist af smágerðum hvítum húsum með rauðum þökum. Meðfram höfninni er mikið úrval af veitingastöðum og börum en helsta aðdráttaraflið verður þó að teljast Zrcé ströndin rétt hjá bænum. Þar er heldur rólegt um að litast á daginn, en um leið og rökkva fer færist heldur betur líf í staðinn. Zrcé ströndin er pakkfull af skemmtistöðum, börum og skyndibitastöðum, skemmtistaðirnir eru margir þaklausir svo maður fær strandarstemninguna beint í æð og fjöldi þekktra plötusnúða koma og spila þar á ári hverju.
Hér munt þú heldur betur njóta lífsins. Þetta glænýja fjögurra stjörnu Radisson Blu hótel er staðsett við hið kristaltæra Adríahaf, með aðgengi að ströndinni, tveimur sundlaugum, þremur veitingastöðum og fjórum börum. Hótelið er í 3km fjarlægð frá sögufræga kjarna Split. Í tveggja mínútna radíus frá hóteli er fjöldi veitingastaða, þar eru verslanir, barir og einnig tengileiðir fyrir almenningssamgöngur. Öll herbergi eru útbúin LCD flatskjá, síma, minibar, kaffiaðstöðu, öryggiskáp og háhraða internettengingu. Loftkæling er einnig standard á öllum herbergjum. Morgunmatur er innifalinn í verði.
Þetta fallega þriggja stjörnu hótel er staðsett á frábærum stað á eyjunni Hvar. Það var allt uppgert árið 2016 og er núna með flottan og nýtískulegan stíl. Herbergin eru björt og rúmgóð og rúmin þægileg (sem er náttúrulega það sem skiptir mestu máli). Innifalið í gistingunni er dýrindis morgunverðarhlaðborð alla morgna á veitingastað hótelsins.
Fyrir utan er svo stórt svæði með sundlaug og sólbekkjum sem hægt er að steikja sig á. Þar er einnig gott barsvæði þar sem hægt er að svala þorstanum með einum ísköldum.
Í öllum herbergjum er loftkæling, flatskjár, læst öryggishólf og skrifborð. Einnig rúmgóð baðherbergi með öllu því helsta eins og til að mynda sápum, sjampóum og hárblásara. Innifalið er einnig WiFi.