Athugið að ekki hefur verið bókað flug né hótel, það er gert um leið og tilboð hefur verið samþykkt.
Staðfestingagjald greiðist strax eftir að tilboð er samþykkt.
Boðið er upp á að velja á milli tveggja hótela sem að skoða má hér að neðan. Ef einhverra hluta vegna að það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Aberdeen, þekkt sem Perla norðursins, er þriðja stærsta borg Skotlands og blandar nýsköpun og hefð. Sem helsta olíuhöfuðborg Evrópu sýnir hún blöndu af gömlum og nýjum byggingarlist, með töfrandi granítmannvirkjum sem gefur henni viðurnefnið „Silfurborgin“. Borgin er full af frábærum veitingastöðum og líflegu næturlífi, þar sem bæði gestir og heimamenn njóta hlýrrar gestrisni hinna vinalegu Skota.
Þrátt fyrir að Aberdeen tengist fyrst og fremst olíuiðnaði sínum, státar borgin einnig af verulegum menningarlegum og sögulegum bakgrunni. Aberdeen listasafnið og Marischal-safnið standa sem sönnunargagn um listræna og sögulega arfleifð borgarinnar. Að auki hýsir Aberdeen fjölmargar hátíðir og viðburði sem varpa ljósi á fjölbreytta menningu og blómstrandi listalíf í borginni. Þar að auki bjóða nærliggjandi svæði upp á stórkostlegt náttúrulandslag, þar á meðal strendur og þjóðgarða, tilvalið fyrir útivist eins og gönguferðir.
Aberdeen er þekkt fyrir helstu háskóla sína, svo sem háskólann í Aberdeen og Robert Gordon háskólann, sem skara fram úr í rannsóknum og menntun á ýmsum sviðum. Borgin býður upp á líflega háskólaupplifun, með fjölbreyttum nemendahópi og nægum tækifærum til fræðilegrar iðju, könnunar og nýsköpunar.
Aberdeen hefur náð umtalsverðum árangri í að tileinka sér sjálfbærni, sem dæmi um það má nefna í umtalsverðum fjárfestingum í endurnýjanlegri orku og grænum verkefnum, sem þjóna sem skínandi leiðarljósi sem leiðir okkur í átt að framtíð sem er bæði hreinni og grænni. Þessar lofsverðu aðgerðir undirstrika óbilandi hollustu borgarinnar til að vernda umhverfið og hlúa að sjálfbærri þróun.
Aðeins 5 mínútna gönguleið frá Strætisvagna- og lestarstöðinni í Aberdeen býður The Aberdeen Douglas Hotel upp á gistingu í miðborginni. Óháða hótelið býður upp á bar á staðnum, veitingastað og 24 klukkustunda móttöku.
Í hverju herbergi og íbúð er sæti með flatskjá og kaffi- og tegerðaraðstöðu. Sum herbergin hafa einnig vinnuborð og eldstæði. Í hverju herbergi er sérherbergi með baði eða sturtu, hárþurrku og fríum snyrtivörum.
Á matseðli Molly’s Bistro er boðið upp á mat og drykk frá heimamönnum, þar á meðal vandlega valið vín. Malones Irish bar býður upp á lifandi íþróttir og tónlist 7 kvöld í viku.
Þar er umfangsmikil ráðstefnu- og viðburðaaðstaða með úrvali rúmgóðra og sveigjanlegra herbergja fyrir allt að 400 manns.
Aðalverslunarmiðstöð Aberdeen er í 7 mínútna göngufæri frá Douglas Hotel og golfklúbburinn Nigg Bay er í 5 mínútna akstursfjarlægð. Aberdeen flugvöllur er í 7 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 7,7 og einkunn 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 174.990 kr
Verð í einbýli með morgunverði 209.990 kr
Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa býður upp á gistingu í Aberdeen. Meðal hinna ýmsu aðstöðu er sameiginleg setustofa, bar, líkamsræktarsvæði á staðnum, lúxus heilsulind og verslun sem er opin allan sólarhringinn. Ókeypis WiFi er á hótelinu.
Öll herbergin á hótelinu eru búin flatskjásjónvarpi, ísskáp og örbylgjuofni. Sérbaðherbergið er með sturtu og ókeypis snyrtivörum. Sum herbergin eru með skrifborði.
Morgunverður er í boði daglega og er hlaðborð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og einkunn 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 184.990 kr
Verð í einbýli með morgunverði 219.990 kr
Verð miðast við hópastærð:
1-9 manna hópur: 38,990 kr./mann
10-19 manna hópur: 34,990 kr./mann
20-29 manna hópur: 30,990 kr./mann
30+ manna hópur: 28,990 kr./mann
Ath. Ofangreindur mannafjöldi er miðaður við fólk sem tekur þátt í fræðslu.
Hvað er innifalið í pakkanum?
→ Fræðsludagskrá
→ Góður undirbúningur
→ Heimsóknir á fræðslustöðum
→ Áhugaverðir fyrirlestrar/námskeið
→ Rútur til og frá fræðslustöðum
→ Fá ráðgjöf og boðsbréf til að skila til stéttarfélags
Ath. Fræðsluáætlunin er sniðin að sérstökum þörfum og óskum hvers skóla/aðila, þannig að fjöldi heimsókna og fyrirlestra/námskeiða getur verið mismunandi.
—
Elías Xu
Fræðsluferðir
S. 519 8900
GSM. 867 3156
Netfang: elias@tripical.com
Sekkjapípan sigrar kannski aldrei keppnina um hljómbesta hljóðfærið. En skoska þjóðin kemst langt í keppninni um skemmtilegustu og vinalegustu gestgjafana. Eru Skotar allsberir undir pilsunum? Þarftu ekki bara að kíkja í heimsókn og tékka á því?
Skosk náttura er ævintýri líkust. Stundum ekki ósvipuð Íslandi, en gróðurfar er sælla, Skotland er grænt, tré eru há, víðáttan mikil. Hér svífa gylltir ernir yfir vötnum og otrar busla á ám. Svæði þar sem þú sérð gyllta örnin svífa yfir vötn og fjöll á norðursvæði landsins og Otra sulla og busla í ám. Og svo auðvitað Loch Ness skrýmslið…
Í Skotlandi eru kastalar mjög margir og allir hafa þeir sín sérkenni og yfir þeim hvílir mikil saga.
Einhvern tíma var hlegið að breskri matargerð og hún kölluð ýmsum miður smekklegum nöfnum. En þess háttar heyrir fortíðinni til! Veitingastaðir í Skotlandi hafa hrist af sér gamalt leiðindarorðspor, þar er víða boðið upp á ferskt staðbundið hráefni, nýveiddan fisk, og kjöt og grænmeti beint frá býli. Ekki er verra að skella í sig eins og einum einföldum viskí til að bæta meltinguna.
Edinborg, höfuðborg Skotlands, er líflegur og heillandi áfangastaður sem laðar að sér gesti alls staðar að úr heiminum. Með sína ríku sögu, töfrandi byggingarlist og fjölskrúðugt menningarlíf hefur Edinborg eitthvað fyrir alla.
Eitt vinsælasta aðdráttarafl hennar verður að teljast Edinborgarkastali, sögulegt virki sem á rætur sínar að rekja til 12. aldar. Gestir geta skoðað kastalann og fræðst um heillandi fortíð hans, þar á meðal hlutverk hans í sjálfstæðisstríðum Skotlands og uppreisn Jakobíta.
En Edinborg státar einnig af fjölmörgum söfnum og galleríum, svo sem Skoska þjóðlistasafninu, Þjóðminjasafni Skotlands og Konunglega grasagarðinum.
Þar að auki er borgin fræg fyrir hátíðir sínar, þar á meðal Edinburgh International Festival, Edinburgh Fringe Festival og Royal Edinburgh Military Tattoo. Þessir viðburðir draga til sín listamenn og áhorfendur alls staðar að úr heiminum, og gera Edinborg að heljarinnar suðupotti sköpunar og skemmtunar.
Hvort sem þú hefur áhuga á sögu, menningu eða skemmtun þá er Edinborg frábær áfangastaður sem er vel þess virði að heimsækja.
Stærsta eyjan við Skotlandsstrendur og þriðji vinsælasti ferðamannastaður landsins (á eftir Edinborg og Loch Ness vatninu). Þar hefur haldist byggð allt frá miðri steinöld og í dag búa þar rúmlega 9 þúsund manns.
Hér finnurðu töfrandi landslag, og einstakt dýralíf, en gullernir, krónhirtir og lax eru meðal dýra sem búa á og við eynna. Það má þó alveg gera ráð fyrir að skoska þokan láti sjá sig og bregði hulu yfir útsýnið. Það er allt í lagi, þú ferð bara og skoðar einhvern af fjölmörgum kastölum eyjunnar og færð þér svo mat og drykk á góðum veitingastað í bænum.
Aberdeen er orkuborg og þekkt undir nafninu Granítborgin, eftir undirstöðu borgarinnar og svæðinu í kring. Ekki langt frá er hin yfirgefna Rubislaw Quarry náman, sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Á björtum sumardegi má sjá borgina glitra af endurkasti granítsins. Aftur á móti geta dagarnir verið heldur lágskýjaðir og stundum erfitt að átta sig á hvar byggingarnar enda og himininn tekur við. Viðurnefni borgarinnar á þó líka að nokkru leyti við um íbúanna, sem þykja grjótharðir.
Aberdeen hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu ár, ekki síst vegna stórfellds olíuiðnaðar í Norðursjó. Fjármagnið sem honum fylgir hefur hækkað verðlag, sem þykir nú jafn hátt þar og í Lundúnum.
Aberdeen er orðin lúxusborg. Nýtísku hótel, veitingastaðir og klúbbar hafa risið upp, sem og fjölbreyttari afþreying og skemmtun. Hér eru líka að sjálfsögðu söfn sem vert er að skoða, og aldagamlar byggingar. Og það sem mörgum finnst mikilvægast af öllu: Risamoll! Hér er hægt að versla vel og mikið!
23. OKTÓBER MIÐVIKDAGUR – BROTTFÖR
Kl. 09:00 – 13:00 Flug Icelandair frá Akureyri. Lent að staðartíma í Aberdeen. Rúta bíður
hópsins á flugvellinum. Flogið með Icelandair, FI1034
Kl. 14:00 Innritun á hótel Sandman Signature Aberdeen
24. OKTÓBER FIMMTUDAGUR – FRÆÐSLA
(Fræðsla 7 klst)
Mæting í anddyri hótels og fræðslan fer fram í sal á hótelinu
Kl. 08:00 – 11:00 Fyrirlestur um GIRFEC, Laurence Findlay, Director of Education Aberdeeenshire segir frá GIRFEC og STEM. Getting It Right For Every Child. GIRFEC er nálgun til að bæta árangur og styðja velferð barna og ungmenna með því að bjóða réttu hjálpina á réttum tíma frá rétta fólkinu.
Fyrirlestur um STEM, sem stendur fyrir Science, Technology, Engineering og Mathematics, vísindi/tækni/verkfræði og stærðfræði. STEM er aðferðafræði þar sem þekking og færni í ofangreindum greinum er efld markvisst. Skólaskrifstofa Aberdeen er að aðstoða okkur við að finna góða fyrirlesara. Stutt kaffipása áður en Bricks McGee tekur við
Kl. 11:00 – 13:00 Námskeið með Bricks McGee þar sem unnið verður með LEGO kubba og hvernig hægt er að nýta þá við kennslu í öllum helstu greinum námsskrár. Að nýta LEGO í skólastarfi er áhugaverð leið til þess að blanda saman leik og starfi og nýta við kennslu í vísindum, stærðfræði og öðrum greinum þar sem sköpun og lausnamiðuð nálgun nýtur sín í LEGO smíðinni.
Kl. 13:00-14:00 Hádegisverður á Aberdeen Archives Gallery, 5 mín. ganga frá Sandman hótelinu. Þið gangið öll saman að Aberdeen Archives og fáið ykkur hádegismat. Rúta kemur og nær í helming hópsins sem fer á Aberdeen Science Center og hinn hópurinn verður áfram á Aberdeen Art Gallery.
Kl. 14:00 – 16:00 Aberdeen Archives Gallery and Museums. Heimsókn í Aberdeen Art Gallery þar sem fræðsludeild safnsins tekur á móti hópnum, segir frá fræðslustarfi safnsins og hvernig unnið er með kennurum og skólahópum sem nýta sér safnið og muni safnsins í námi og leik.
Kl. 14:15 – 16:00 Aberdeen Science Center, heimsókn í Vísindasafnið í Aberdeen þar sem fræðsludeildin tekur á móti hópnum og segir frá áhugaverðum verkefnum, samstarfi við skóla og áherslum á tækni og vísindanám.
25. OKTÓBER FÖSTUDAGUR – FRÆÐSLA OG SKÓLAHEIMSÓKNIR
(Fræðsla 7,5 klst, gert ráð fyrir akstri 2,5 klst.)
Kl. 07:30 – 17:30 Mæting í anddyri hótels og dagurinn hefst á ferð til Dundee.
Kl. 09:00 – 11:00 Fyrirlestur um Nurture Approach í University of Dundee, Social Sciences and Law. Dr Elizabeth Hannah tekur á móti hópnum í háskólanum í Dundee og segir frá Nurture hugmyndafræðinni, innleiðingu, aðlögun og tengingu við GIRFEC. Dr Elizabeth Hannah er forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvarinnar Transformative Changes, Educational and Life Transistions (TCELT) og hefur áralanga reynslu af kennslu og rannsóknum innan uppeldis- og kennslufræða, hefur starfað sem ráðgjafi á sveitarstjórnarstigi og setið í starfshópum og nefndum á vegum skoskra stjórnvalda.
Kl 11:00 – 12:30 Skólaheimsóknir:
Morgan Academy, Forfar Road, Dundee DD4 7AX Craigie High School, Garnet Terrace, Dundee DD4 7QD
Rosebank Primary School, Coldside Campus, 15 Alexander Street, Dundee DD37DL Our Lady’s Primary School, Coldside Campus, 15 Alexander Street, DD3 7DL Rowantree Primary, Birks Terrace, Dundee DD4 8EJ
Kl. 12:30-14:00 Hádegisverður í V&A og eftir hádegisverð á V&A verður haldið heim á leið
Kl. 15:30 Komið heim á hótel
26. OKTÓBER LAUGARDAGUR
Frjáls dagur
27. OKTÓBER SUNNUDAGUR – HEIMFERÐARDAGUR
Kl. 16:00 Útritun af hóteli og lagt af stað á flugvöllinn
Kl. 18:45– 21:45 Flug Icelandair, FI1035. Lent að staðartíma á Akureyri