Hópferð til Valencia
Lengd ferðar:
4 dagar/ 3 nætur
Valencia – Sól, stemming og sjór
Valencia er ein mest heillandi borg Spánar þar sem gömul saga og nútímaleg arkitektúr mætast við strendur Miðjarðarhafsins. Borgin býður upp á notalegt andrúmsloft, framúrskarandi matargerð og fjölbreytta afþreyingu – fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja blanda saman borgarstemningu og sólardögum við sjóinn.
Hvort sem þú vilt rölta um sögulegar götur, njóta spænskrar matarmenningar eða slaka á á ströndinni þá hefur Valencia eitthvað fyrir alla.

Matur og menning
Valencia er fæðingarstaður paellu og hér færðu réttinn eins og hann á að vera. Borgin er þekkt fyrir ferskt hráefni, sjávarrétti og líflega tapas-menningu. Á kvöldin lifnar miðborgin við þar sem heimamenn og ferðamenn fylla torg og veitingastaði.
Hér finnur þú fullkomna blöndu af spænskri hefð og nútímalegri borgarmenningu.

Valencia er borg sem nær jafnvægi á milli afslöppunar og upplifunar. Hér getur þú byrjað daginn á kaffibolla á sólríku torgi, skoðað sögulegar byggingar og haldið svo niður að strönd til að njóta síðdegissólarinnar. Stemningin er afslöppuð en á sama tíma lifandi, sérstaklega á kvöldin þegar veitingastaðir og barir fyllast af fólki. Borgin er þægileg yfirferðar, auðvelt að ganga á milli helstu staða og almenningssamgöngur góðar. Valencia hentar því jafnt fyrir rómantíska paraferð, skemmtilega vinaferð eða fjölskylduferð þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Hápunktar ferðar
-
favorite
La Lonja de la Seda
-
favorite
Gullfalleg gömul borg
-
favorite
Svalandi sjávarströndir
-
favorite
Jardín del Turia
Innifalið í verði
- Flug fram og til baka með Leiguflugi Tripical
- 3 nætur á hóteli miðsvæðis í Valencia með morgunmat
- 1 innritaður farangur og handfarangur
- Rútur til og frá flugvelli
- Gott veður
- City Tax er innifalinn í verðinu
Ekki innifalið
- Hádegismatur og kvöldmatur
- Rútur
- Fararstjórn
Spánn
Y Viva España!
Spánn hefur um árabil verið eitt vinsælasta land Evrópu meðal ferðafólks og þangað drífur að mikill fjöldi gesta alls staðar úr heiminum allan ársins hring. Ástæðan er langt frá því að vera ,,af því bara“ – á Spáni er svo margt að sjá og upplifa, fjölbreytileiki landsins er gríðarlegur, auk þess sem þar er auðvitað nóg til af því sem allir elska og þrá, nefnilega sól og blíðu!

Konungsríkið Spánn telur um 46 milljónir íbúa. Það er um það bil 5 sinnum stærra en Ísland að flatarmáli og staðsett á Íberíuskaga (stundum nefndur Pýreneaskagi) syðst í Evrópu, með landamæri að Portúgal til vesturs og Frakklands og smáríkisins Andorra til norðurs. Löng austurströnd landsins snýr að Miðjarjarðahafi, og syðsti oddi Spánar er um leið syðsti oddi meginlands Evrópu.

Æðislegar strendur, eldhresst næturlíf, sprúðlandi fjölmenning og borgir með afar áhugaverðan bakgrunn og sögu, og stórbrotnar byggingar því til sönnunar – allt þetta hefurðu á Spáni. En landið býr einnig yfir miklum fjölbreytileika í landfræðilegum skilningi, enda æði stórt og mikið. Þar hefurðu fjöll og snjó í norðri, risavaxin mýrlendi og sandflæmi í suðri. Sumrin eru vissulega háannatími í ferðaiðnaði landsins, en þeir sem heldur kjósa minna fjölmenni eða vetrarferðir hafa sannarlega úr mörgu að moða.

Á Spáni eru margar fallegar og spennandi borgir. Fyrst má nefna þær þekktustu, höfuðborgina Madrid með sínum heillandi arkitektúr, fjölbreyttu söfnum og sýningum, og hina mögnuðu Barcelona með sín fjölmörgu ólíku hverfi, stórbrotnu byggingar, blómstrandi menningarlíf, iðandi næturlíf og fyrirtaks sólbaðsstrendur. En þá er langt í frá allt upptalið, því hér höfum við líka borgir eins og Sevilla, Valencia, Granada og Bilbao og fleiri, allt staðir með sína einstöku sérstöðu sem fyllilega má mæla með. Þess utan eru svo minni bæir og þorp, við ströndina eða uppi á landi, sem með sjarma sínum og fegurð draga til sín sólþyrsta gesti í leit að afslöppun og ánægju.

Hótelin okkar
-
Nútímalegt 4★ hótel með stílhreinum herbergjum, líkamsrækt, veitingastað og bar. Þú finnur þig í hjarta Valencia með stuttan göngutúr að Ciudad de las Artes y las Ciencias og gömlu borginni. Úrval morgunverðar er innifalið og á þaki er sundlaug og útsýni yfir borgina sem gerir dvölina afslappandi og þægilega.

-
Vinsælt borgarhótel staðsett rétt við Turia garðinn og almenningssamgöngur. Hótelið býður upp á rúmgóð herbergi, gott morgunverðarhlaðborð og frábæra staðsetningu sem hentar vel til að skoða miðborgina eða ferðast um borgina með lest og strætó.

-
Hugsað fyrir þá sem vilja gæði á góðu verði. Þetta vel metna hótel í hverfi Camins al Grau er vel staðsett nærri verslunarmiðstöðvum, góðri strætó- og lestartengingu og stutt frá La Ciudad de las Artes y las Ciencias. Góð þjónusta og þægileg herbergi gera það að áhugaverðri kost.

-
Gott 4★ hótel skammt frá sögulegri miðborg Valencia. Þægileg staðsetning gerir það auðvelt að ganga til Plaza del Ayuntamiento, markaðarins Mercado Central og dómkirkjunnar. Hótelið býður upp á herbergi sem henta bæði pörum og fjölskyldum.

-
Nútímalegt hótel milli Turia garðsins og City of Arts and Sciences. Herbergin eru björt og stílhrein, og auk þess er sundlaug með garði og sólbekkjum til að slaka á eftir dagsferð. Frábært val ef þú vilt blanda borgarlífi við afslöppun.

-
Stílhreint 5★ hótel í hjarta Ciutat Vella nálægt Plaza del Ayuntamiento. Þetta hótel sameinar fallega hönnun, frábæra þjónustu og góða staðsetningu — aðeins nokkra metra frá markaði og helstu sögu- og menningarstöðum borgarinnar. Fullkomið fyrir þá sem vilja upplifa borgina í stíl.

