Skip to content
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um Tripical
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin okkar

Hópferð til Porto ⛵ 18-21. maí 2023

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
Land:
Portúgal
Gjaldmiðill:
Evra

Borgin ósigrandi!

Þessi flotti titill sem stundum er notaður á Porto er upphaflega ættaður frá frelsisbaráttu borgarinnar í kringum 1832, en í dag er hann lýsandi fyrir það mikla stolt sem íbúar þar bera í brjósti. Hér má finna mjög heillandi blöndu hins hrjúfa og fagra, þess gamla og nýja og litríka sögu í nútímalegri borg.

Porto er ekki stór, í kjarna hennar búa aðeins um 300.000 manns. Borgin er hæðótt og byggð í bröttum fjallshlíðum meðfram ánni Duoro. Sum hverfi hennar standa hreinlega í miðju klettabelti, skemmtilega samsett af fornum miðaldarbyggingum og fínni híbýlum úr nútímanum. Á milli borgarhæðanna eru víðsvegar stígar hamraðir í grýtta jörðina, og bjóða upp á hressandi gönguferðir með stórkostlegu útsýni. 
Lengi vel var Porto talin gróf og óálitleg verslunarborg í niðurníslu en þar hafa aldeilis orðið mikil stakkaskipti. Á síðustu áratugum hefur verið ráðist í gríðarlegar endurbætur og upplyftingu víða í borginni og borgin ósigrandi í kjölfarið klifið upp lista yfir vinsælustu áfangastaði í Evrópu.

Fortíð nútíð máltíð

Miðbær Porto fór á Heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en þar hefur byggð haldist óslitið allt frá 4. öld! Það er mögnuð upplifun að ganga um þessar fornu slóðir sem enn í dag iða af mannlífi og miklum lífskrafti. Sama má segja um Ribeira hverfið sem er í næsta nágrenni við árbakka Duoro. Skoðunarferð þangað hverfur seint úr minni. 

Í borginni er sannarlega að finna mikið úrval af gæðaveitingastöðum. Þeir eru staðsettir hér og þar, en flesta má finna í Matosinhos hverfinu við ströndina, og því upplagt að kíkja þangað til að gleðja bragðlaukana. Hinum dæmigerða Portobúa er alls ekki  sama um hráefnið í matargerð og það er vel þess virði að fara á markaðinn Mercado do Bolhão, finna sér eitthvað gott að smakka á og ekki síður að upplifa heimafólk í kaupessinu sínu.

 

Myndavél á loft

Listunnendur mega ekki láta hið þekkta nútímalistasafn Serralves framhjá sér fara. Það býður ekki einungis upp á einstakt safn af nútímalist, heldur er sjálf safnbyggingin og allt umhverfi í kring mjög fallegt.
Fyrir ljósmyndaglaða mælum við líka með göngu yfir eina (eða  fleiri) af 6 brúm sem tengja borgarkjarnann við Gaia hverfið hinum megin Duoro árinnar. Þá er sigling upp með ánni, helst alveg að Pinhão með sínu stórbrotna landslagi vel þess virði.
Fótboltaáhugafólk getur eiginlega ekki látið hjá líða að heimsækja FC Porto Museum, sem sýnir 120 ára sögu eins af sigursælustu knattspyrnuliðum Evrópu.
Allt þetta er auðvitað bara brotabrotabrot af því sem í boði er. Best er að leyfa Porto að opna faðm sinn og njóta þess að gleyma sér í þessari afar heillandi borg.

Portvínin í Porto

Ef einhvern tíma var tilefni til að kynna sér og smakka góð portvín, þá er það hér. Þetta sosum liggur í orðanna hljóðan, en Porto er einmitt nefnd sem höfuðstaður portvína, og hiklaust hægt að mæla með heimsókn í hina einstöku portvíns hella í Vila Nova de Gaia, eða aðra vínkjallara borgarinnar.
Saúde!

 

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Fjölbreyttar byggingar
  • favorite
    Æðislegur miðbær
  • favorite
    Menning og saga
  • favorite
    Frábærir veitingastaðir og hagstætt verðlag

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 3 nætur á hóteli með morgunmat
  • 20kg innritaður farangur
  • Morgunmatur

Ekki innifalið

  • Miði á tónleika með Portugal. The Man
  • Portvín eins og þú getur í þig látið
  • Vonda skapið

Gustave Eiffel, hönnuður Eiffelturnsins, setur sitt mark á Porto

Skemmtileg staðreynd um Porto

Porto er oft kölluð brúaborgin, enda eru brýrnar þar ófáar. Ein þeirra er hönnuð af Gustave Eiffel, og það verk kláraði hann næst á undan turninum fræga í París. Þetta er Maria Pia brúin sem er lestarbrú byggð árið 1877 og liggur yfir Duoro ánna.

Portúgal

Portúgal liggur meðfram vesturströnd Íberíuskaga, og deilir suðvesturodda Evrópu með Spáni. Landið býr yfir einstakri menningu, flottum borgum, líflegum strandbæjum og fallegri sveit. Að flatarmáli er Portúgal ekki stór en landslagið býður samt sem áður upp á hin ýmsu tilbrigði. Hægt er að ferðast á einum degi frá grænum og gróðursælum fjöllum í norðri, um stórbrotnar klettahlíðar og fossa Mið-Portúgals, og suður á landsvæði Alentejo, sem minnir um margt á eyðimörk. 

Portúgal á sér um 900 ára gamla sögu og hefur lagt sitt mark á heimssöguna. Þar er ofarlega á blaði aðild þeirra að hinum svokölluðu Landafundum, en Portúgalar lögðu grunninn að þeim í lok 14. aldar með því að stofna sjóleið til Indlands og nýlendusvæða Afríku, Suður-Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Aðrar þjóðir fylgdu í kjölfarið en Portúgal varð á þessum tíma áhrifamikið heimsveldi.

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi íbúa: 10.196.709
  • Stærð að flatarmáli: 92.212 km²
  • Opinbert tungumál: Portúgalska
  • Gjaldmiðill: Evra
  • Hitastig: Um 25° yfir sumartímann

 

Golf og brim

Í Portúgal þykir bæði loftslag og umhverfi vera kjörið fyrir golfíþróttina. Þetta hafa heimamenn nýtt sér og hannað marga af bestu golfvöllum álfunnar, en 14 þeirra eru á lista yfir 100 bestu brautir Evrópu, og landið hefur hampað titlinum ,,Besti golfáfangastaður heims“. En það er einnig annað sport, öllu æsilegra, sem tekið hefur ástfóstri við Portúgal. Við vesturströndina rísa nefnilega úr Atlantshafi einhverjar stærstu öldur sem brimbrettafólk kemst í tæri við, og svæðið oft nefnt sem eitt af þeim bestu í heimi til slíkrar iðkunar.

Portúgal hefur í áraraðir verið mjög vinsæll ferðamannastaður, ekki síst hjá Norður-Evrópu þjóðum, og gestir frá löndum eins og Englandi, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og Svíþjóð flykkjast þangað til að njóta stórkostlegrar strandlengju, náttúrufegurðar og hins hlýja loftslags. Vinsælustu strendurnar eru í Algarve, en Miðjarðarhafið meðfram suðurströndinni hefur tilhneigingu til að vera hlýrra en hið opna Atlantshaf, og minna um hafrót og öldugang. Við vesturströndina er þó hiklaust hægt að mæla með frábærum stöðum að heimsækja, til dæmis hinum einstaklega sjarmerandi og fallega strandbæ Nazaré.

Lissabon

Höfuðborgin Lissabon er eina höfuðborg Evrópu sem staðsett er við strendur Atlantshafs, en hún er ein af elstu borgum heims og prýdd byggingum frá hinum ýmsu tímaskeiðum. Eitt af einkennum hennar eru hinar fjölmörgu hvítu kalksteinabyggingar sem setja fallegan svip á borgina, en hún hefur gengið í gegnum miklar endurbætur síðustu ár. Lissabon er líflegur og áhugaverður staður sem blómstrar nú sem aldrei fyrr og er að verða einn af vinsælustu áfangastöðum í Evrópu.

Porto

Porto er einstaklega flott og skemmtileg borg, byggð í bröttum fjallshlíðum meðfram ánni Duoro. Sum hverfi hennar standa hreinlega í miðju klettabelti, samsett af fornum miðaldarbyggingum og fínni nútímahíbýlum. Á milli borgarhæða eru stígar hamraðir í grýtta jörðina, og bjóða upp á hressandi gönguferðir með stórkostlegu útsýni. Ef einhvern tíma er tilefni til að kynna sér og smakka góð portvín, þá er það hér. Það liggur í orðanna hljóðan, en Porto er einmitt nefnd sem höfuðstaður portvína, og hiklaust hægt að mæla með heimsókn í hina einstöku portvínshella í Vila Nova de Gaia, eða aðra vínkjallara borgarinnar.

Nazaré

Um miðja strandlengu Portúgals stendur yndislegur bær sem ber sama heiti og heimastaður Jesú Krists, en í portúgalskri útfærslu, Nazaré. Nafnið tengist litlu trélíkneski af Maríu mey með frelsarann í fangi sér, sem kom með trúboðum frá Nazareth í kringum árið 700, og til eru fornar sögur af miklum kraftaverkum þeirrar styttu. Á seinni tímum er þar lítið um trúarleg undur og stórmerki, nema kannski sú staðreynd að bærinn Nazaré er bæði undursamlegur og stórkostlegur, og sannkallaður draumastaður fyrir alla sem þyrstir í sól og sælu. Þar er auk þess eitt eftirsóttasta brimbrettasvæði Evrópu. Hér hefði Jesú sko ekki látið sér nægja að ganga á vatninu, hann hefði pottþétt gripið með sér bretti og sörfað þær himinháu öldur sem þar rísa úr hafi.

Sjarmerandi fiskibær við fullkomna strönd

Í Nazaré búa um 10.000 manns og bærinn skiptist í þrjá hluta. Við ströndina liggur Praia hverfið, í klettum þar fyrir ofan rís gamla hverfið Sítío, og hægt er að ferðast milli þessara bæjarhluta með lestarkláfum. Enn ofar er svo að finna annað gamalt þorp, Pederneia.

Nazaré er gamall fiskibær og þrátt fyrir að ferðaiðnaðurinn hafi þar tekið völd, eru íbúar mjög stoltir af upprunanum og duglegir að kynna hann gestum sínum. Hér finnurðu gömul sjómannaheimili sem breytt hefur verið í fínustu hótel og sjávarréttastaðirnir eru margir og hver öðrum betri. Þá eiga bæjarbúar sína sérstöku ,,þjóðbúninga“ sem vísa í klæðnað sjómanna og fiskverkakvenna fyrri ára, en mesta athygli vekja hin sjölaga litskrúðugu pils sem konunar bera undir bróderuðum svuntum. Ekki er ólíklegt að sjá þessum búningum bregða fyrir.

Bærinn er einn vinsælasti áningarstaður við Silfurströndina svokölluðu (Costa de Prata), og þangað sækir fólk hvaðanæva úr Evrópu til að njóta hinnar afslöppuðu og þægilegu stemmingar sem þar ríkir. Staðurinn þykir henta öllum aldri – hér eru dásamlegar risastrandir til að leika sér á og liggja yfir daginn, og á kvöldin má velja úr fjölmörgum krám og skemmtistöðum til að sötra góðan drykk eða dansa inn í nóttina. Hér ríkir vinalegt andrúmsloft þar sem fólk frá ólíkum löndum blandar geði við hið hlýja og væna portúgalska heimafólk.

Brimbrettageggjun

Brimbrettafólk elskar Nazaré, enda öldurnar óvíða jafn tignarlegar, og aðstæður allar frábærar. Ýmis stórmót í brettasiglingum hafa verið haldin hér og heimsmet verið skráð. Árið 2017 sló brasilíski brimbrettakappinn Rodrigo Koxa heimsmet þegar hann sigldi öldu sem mældist 24,4 metrar! Við erum alltso ekki að tala um neitt smotterýsbrim!

                     

Þá  er rétt að nefna, fyrir þau sem ekki eru spennt fyrir að sigla slíkar öldur, að það getur verið dáleiðandi skemmtilegt að fylgjast með flínkum brimsiglurum leika listir sínar, og víða má finna sér stað, til dæmis í gamla bænum Sítío, með fyrirtaks útsýni yfir það sem fram fer á hafi úti. Ekki vitlaust að sötra á svalandi drykk á meðan.

Hótelin okkar

  • add Hotel Carris Porto Ribeira 4🌟

    Hotel Carris Porto Ribeira ****

    Þetta 4 stjörnu hótel er staðsett í Ribeira-hverfi Porto í enduruppgerðri og sögulegri byggingu með útsýni yfir ána Douro. Það býður upp á loftkæld gistirými með ókeypis Wi-Fi Interneti. Einnig innifelur það lyftu.
    Herbergi á Carris innihalda flatskjásjónvarp með kapalrásum. Þau eru með sérbaðherbergi með ókeypis snyrtivörum. Nútímalegar innréttingarnar innifela viðargólf og blöndu og dökkum og ljósum litum.
    Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega og à la carte máltíðir eru í boði á kvöldin. Einnig er boðið upp á herbergisþjónustu og morgunverð.
    Gestir geta æft í líkamsræktarstöðinni eða uppgötvað Porto á reiðhjóli. São Bento-stöðin er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá Hotel Carris Porto Ribeira.
    Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
  • add Mercure Porto Centro Santa Catarina 4🌟

    Mercure Porto Centro Santa Catarina ****

    Mercure Porto Centro Santa Catarina er staðsett í hjarta Porto og býður upp á ókeypis WiFi og leikhúsbar með þema. Sao Bento-lestarstöðin er í aðeins 7 mínútna göngufjarlægð.
    Herbergin á Porto Centro eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarp. Hvert baðherbergi er með afslappandi baðkar og hárþurrku.
    Á meðan gestir njóta borgarútsýnis frá veitingastað hótelsins, Tribuna, geta þeir smakkað portúgalska matargerð. Moliere-leikhúsbarinn býður upp á nútímalega og líflega umgjörð fyrir þá sem vilja fá sér drykk eða snarl.
    Mercure Porto Centro Santa Catarina er staðsett nálægt mörgum ferðamannastöðum. Frægi klukkuturninn Torre dos Clérigos og rómantíska Ribeira-hverfið með mörgum kaffihúsum eru í innan við 10 mínútna göngufjarlægð.
    Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Verð frá 169.990 kr.

Fyrirspurn um ferð

Tripical Ísland ehf

Fiskislóð 31d, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

+354 519 8900

hallo@tripical.is

Gott að vita

Skilmálar

Algengar spurningar

Hafa samband

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Bandaríkin
  • Búlgaría
  • Grikkland
  • Indland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Kúba
  • Kýpur
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Norður Makedónía
  • Pólland
  • Skotland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Srí Lanka
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT
  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn
  • More Networks
Share via
Facebook
Twitter
LinkedIn
Mix
Email
Print
Copy Link
Powered by Social Snap
Copy link
CopyCopied
Powered by Social Snap