Hópferð til Opatija í Króatíu - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin okkar

Hópferð til Opatija í Króatíu

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
Land:
Króatía
Gjaldmiðill:
Evra

Leiguflug til Opatija fyrir 100 manns eða fleiri✈️

Opatija er einstaklega fallegur strandbær við Adríahafið, staðsettur á Istria skaga Króatíu og um 18 km frá Rijeka, sem er ein af stærri borgum Króatíu. Bærinn er  umkringdur fallegum lárviðarskógi og þekktur fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag, fjölbreyttar sögulegar glæsibyggingar og stórmerka minnisvarða. Hér fléttast áhugaverð saga og  lífleg króatísk menning saman við stórbrotna náttúrufegurð og glæsileika á hrífandi hátt.   Þetta er vinsæll dvalarstaður bæði sumar sem vetur, með meðalhita upp á 32 °C á sumrin og 10 °C á veturna. Opatija tekur þér fagnandi og býður upp á eftirminnilegt ævintýri!

Glæsilegur griðarstaður

Sögu Opatija má rekja aftur til Rómaveldisins en þá risu þar glæsihýsi nokkurra háttsettra hefðarmanna. Á miðöldum var Opatija hluti af hinu svonefnda Feneyska Lýðveldi, en um miðbik 19. aldar varð staðurinn séreign auðugra austurrísk-ungverskra fjölskyldna. Þær byggðu þennan fallega griðarstað sinn af miklum glæsileik og spöruðu hvergi. Mikilfengleg stórhýsi frá tímum þessa ,,háklassasamfélags“ standa enn meðfram ströndinni og setja sterkan svip á bæinn.

Enn í dag er þessi fallegi bær ljúfur griðarstaður, nú fyrir ferðafólk í leit að góðu fríi. Opatija stendur sannarlega undir þeim væntingum. Hér eru fagrir garðar, tignarleg lúxushótel og umhverfi sem sómir sér vel á póstkorti, og gera þennan yndislega bæ að töfrandi áfangastað.

Lúxus og frami

Eins og áður segir er bærinn þekktur fyrir glæsilegan arkitektúr sem einkennist af flottum einbýlisvillum, íburðarmiklum hótelum og heillandi göngugötum við ströndina. Hér er margt að sjá og skoða. Fyrsti viðkomustaður gæti til dæmis verið Villa Angolia  sem nú hýsir króatíska ferðamannasafnið og sýnir meðal annars merkilega sögu bæjarins. Þessi flotta villa var byggð um miðja 19. öld og þjónaði sem sumarhús hins auðuga kaupmanns Iginio Scarpa. Þá er dásamlegur blómum skrýddur garðurinn í kring er engu minni ástæða fyrir heimsókn. Önnur merkileg bygging er St. James Church, byggð um 1420. Opatija þýðir ,,klaustur“ og nafnið kemur frá kirkjunni og klaustrinu sem stendur við hlið hennar.

Hotel Kvarner er eitt af elstu hótelum Króatíu og sannkölluð byggingarlistarperla. Það var byggt 1884 sem fyrsta flokks lúxus heilsuhótel. Hótelinu hefur verið haldið vel við og þess að gætt að halda sem mest í upphaflegan stíl þess. Í dag er byggingin opin til skoðunar fyrir hvern sem vill stíga skref aftur til 19. aldar og kynna sér hvað þótti flottast þá (og sumum finnst reyndar enn í dag vera langflottast af öllu).

Króatar eiga sína eigin ,,framabraut“ og hún er í Opatija. Króatíska Walk of Fame verkefnið var hleypt af stokkunum árið 2005 sem táknrænn virðingarvottur fyrir fólk sem lagt hefur mikið af mörkum til kynningar á Króatíu á sviði íþrótta, vísinda, menningar eða lista.

Skrúðgarðar og sólarstrendur

Amerísku garðarnir eru stundum nefndir Leynigarðurinn. Garðarnir ná yfir stórt svæði og eru staðsettir í næsta nágrenni við miðbæinn og Slatina-ströndina og með töfrandi útsýni yfir Kvarner flóann. Það ríkir sérstök kyrrð og friður hér enda áhersla lögð á að hingað geti fólk komið til að slaka á. Annar frábær almenningsgarður, og kannski sá vinsælasti, er Angiolina Park en þar er að finna mikið úrval af alls kyns blómategundum, þar á meðal Kamelíuna, en hún er einmitt tákn Opatija bæjar. Hér er yndislegt að ganga um eða tilla sér á bekk.

Þegar kemur að sólbaðslegu og sjóbusli eru möguleikarnir nokkrir, og ljóst að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Aðalströndin heitir Slatina er staðsett í hjarta Opatija. Ströndin er að hluta til grýtt og að hluta til sandur, sem gerir hana tilvalinn kostur fyrir marga sundmenn. Í næsta nágrenni eru kaffihús, barir og veitingastaðir. Einnig má nefna Angiolina ströndina en hún hefur nýlega gengið í gegnum endurhönnun, þar sem farið var aftur í tímann í allri hönnun. Þar er flott verönd er yfir ströndinni til að sitja og sötra í góðu yfirlæti. Líka er rétt að benda á Tomaševac Beach, hún er í miklu uppáhaldi hjá yngri kynslóðinni, enda fullt af skemmtilegri afþreyingu, rennibrautir, trampólín, hjólabátar og fleira.

Tripical elskar Króatíu, og það er til dæmis vegna stórkostlegra áfangastaða eins og Opatija. Hér færðu fullkomna dvöl, með fegurð og fjöri, slökun og hvíld, og heillandi mannlífi.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Fjölbreyttar byggingar
  • favorite
    Fallegur miðbær
  • favorite
    Menning og saga
  • favorite
    Æðislegar strandir

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka (leiguflug)
  • Rútur til og frá flugvelli og á áfangastaði
  • Gisting á hóteli með morgunmat
  • 15kg innritaður farangur og 5 kg í handfarangur
  • Fararstjórn

Ekki innifalið

  • Hádegis- eða kvöldverður

Frítt skemmtiatriði með í ferðina!🎉

Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.

Skoða frítt skemmtiatriði!

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Króatía

Króatía býr yfir voldugri sögu, gríðarlegri náttúrufegurð og býður upp á fjölbreytta staði fyrir forvitna heimshornaflakkara. Í landinu miðju höfum við Plitvice þjóðgarðinn, sem helst minnir á landslag Pandoru úr kvikmyndinni Avatar. Á strandlengju Dalmatiu héraðs finnurðu bæði stórbrotin klettabjörg og seiðandi gylltar sólarstrendur, ásamt hinum ævarforna og tignarlega borgargimstein Dubrovnik.

Á hinum endanum, með landamæri að Slóveníu og í nálægð við Ítalíu, er svo hinn heillandi Istria skagi, svæði sem tilheyrði reyndar Ítalíu um nokkurra áratuga skeið, frá lokum fyrri heimsstyrjaldar til loka þeirrar seinni (1918-1945) og þau tengsl nokkuð greinileg bæði í byggingarstíl og stemmingu. Þá er Adríahafið meðfram Króatíu talið tærasta haf Evrópu, enda mjög vinsælt til köfunar. Þar er að finna yfir þúsund misstórar eyjar sem draga að sér fjölda ferðamanna á hverju ári.

Hér er fátt eitt nefnt úr þeirri miklu flóru spennandi áfangastaða sem þetta fagra land býður uppá. Við hjá Tripical einfaldlega elskum Króatíu og erum viss um að þú munt gera það líka.

Almennar upplýsingar

  • Fjöldi íbúa: 4.154.200
  • Stærð að flatarmáli: 56.534 km²
  • Opinbert tungumál: Króatíska
  • Gjaldmiðill: Evra
  • Hitastig: 9°-25°
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

Hvar og Split

Eyjan Hvar er einn vinsælasti áfangastaður landsins og ekki að undra, hún er ofboðslega skemmtileg og státar af því að vera sólríkasti staður Króatíu. Á Hvar finnurðu alls konar mannlíf og gesti á öllum aldri, fjölskyldur stórar og smáar, ungt fólk í leit að skemmtilegu næturlífi og stundum líka súperstjörnur úr Hollywood. Eyjan er þekkt fyrir mikla veðursæld, gómsæta matargerð og einstaka náttúrufegurð. Sjávargolan sem blæs yfir bæinn þykir mjög endurnærandi og orkumikil, svo mikið að fyrr á árum voru starfræktar á eyjunni heilsulindir fyrir einstaklinga með öndunarerfiðleika, þar sem hægt var að fara í sérstaka „öndunarhreinsun“.

Nálægt eyjunni er svo að finna næststærstu borg Króatíu, Split. Þetta er afar  ferðamannavæn borg, ofboðslega fallegur staður sem býður upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.

Dubrovnik

Í tveggja klukkustunda fjarlægð suður af Split er Dubrovnik, lítill 40.000 manna bær á syðsta punkti Króatíu. Gamli bærinn í Dubrovnik á sér langa sögu, en hann er umkringdur borgarveggjum sem áttu að verja hann á stríðstímum fyrr á árum en Dubrovnik var sjálfstætt ríki áður en bærinn varð partur af Króatíu. Bærinn á það sameiginlegt með Íslandi að Game of Thrones hafa tekið upp þáttaseríur sínar þar, en fyrir þá sem til þekkja eru allar senur sem gerast í suðrinu teknar þar.

Istria

Á hinum enda strandlengjunnar, nálægt Ítalíu og með landamæri að Slóveníu, liggur Istria skaginn, sem frá árunum 1918-1945 var hluti af Ítalíu, varð síðan partur af kommúnistaríkinu Júgóslavíu en tilheyrir í dag Króatíu. Þar má finna aragrúa lítilla smábæja, bæði við sjávarsíðuna og upp með fjallshlíðum. Þetta eru gömul, rótgróin og einstaklega sjarmerandi þorp, byggingastíllinn er öðruvísi en fyrir sunnan, húsin litrík, og svipa mjög til smábæja á Ítalíu. Hér úir og grúir af sjávarréttastöðum sem bjóða upp á ferskt sjávarfang. Fjölda markaða er að finna á svæðinu og ólívur, trufflur, olíur og ýmis konar ávextir eru fáanlegir út um allt. Neðst á skaganum er bærinn Pula en þar má finna risastórt rómverskt hringleikahús. Við mælum einnig með heimsókn í hinn heillandi bæ Rovinj og skoðunarferð í Basilikkuna í bænum Poreč.

Opatija

Opatija er einstaklega fallegur bær á Istria skaganum, umkringdur fallegum lárviðarskógi við strendur Adríahafsins og um 18 km frá Rijeka, sem er ein af stærri borgum Króatíu. Staðurinn er þekktur fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag og sínar sögulegu byggingar og vinsæll bæði sem sumar- og vetrardvalarstaður, með meðalhita upp á 10 °C á veturna og 32 °C á sumrin.

Opatija á rætur sínar að rekja til klausturs heilags Jakobs sem þar stóð og bærinn óx út frá, en nafnið Opatija þýðir einmitt ,,klaustur“. Dagur Heilags Jakobs, sem er verndardýrlingur ferðalanga (og einnig verndari sútunar og ávaxtaræktenda), er haldinn hátíðlegur á hverju ári 25. júlí, og er um leið almennur hátíðisdagur bæjarins.

Á fyrri tímum var Opatija hluti af feneyska lýðveldinu og í framhaldinu lengi vel eign auðugra austurrísk-ungverskra fjölskyldna sem byggðu þennan fallega griðarstað sinn með miklum glæsileik, mikilfengleg stórhýsi frá tímum þessa ,,háklassasamfélags“ standa meðfram ströndinni og setja sterkan svip á bæinn. Hér eru fagrir garðar, tignarleg lúxushótel og umhverfi sem sómir sér vel á póstkortum, og gera Opatija að töfrandi áfangastað.

Šibenik

Šibenik er ein af elstu borgum Króatíu, sögulegur staður frá 11. öld, í miðju Dalmatíu-héraði, við ána Krka sem rennur í Adríahaf. Þar búa í dag um 35.000 manns. Þar er mikið um einstakar byggingar fyrri alda. Þekktust þeirra má telja Saint James dómkirkjuna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, en einnig má nefna miðaldaklaustur St. Laurence og afar sjaldgæfan klausturgarð þar við frá 15. öld, og virki heilags Mikaels sem veitir einstakt útsýni yfir borgina og hafið fyrir utan.

Í hinu heiftúðuga sjálfstæðisstríði Króata (1991–95) varð Šibenik fyrir harðri árás frá jógóslavneska þjóðarhernum og serbneskum hersveitum. Þrátt fyrir að vera undirvopnaðir, tókst króatíska hernum og íbúum Šibenik að verja borgina. Bardaginn stóð í sex daga (16.–22. september 1995), oft nefndur „septemberbardaginn“. Sprengjuárásirnar skemmdu fjölmargar byggingar og minnisvarða, þar á meðal hvelfingu Šibenik dómkirkju heilags Jakobs og leikhúsbyggingu sem var byggð árið 1870. Síðan þá hafa skemmdar byggingar borgarinnar verið endurreistar að fullu.

Í dag er Šibenik friðsæl og hrífandi borg full af sögu og sjarma, ekki síst gamli hluti bæjarins, með ævafornu kirkjum, höllum fyrrum aðalsmanna og dæmigerðu aldagömlum dalmatískum steinhúsum.

Til gamans má geta að hér var fallhlífin fundin upp á 17. öld og prófuð í fyrsta skipti af uppfinningamanni hennar Faust Vrancic. Hér er líka fæddur og uppalinn hinn frægi körfuboltamaður Dražen Petrović.

Pag

Um miðja strandlengju Króatíu er eyjan Pag. Við enda hennar er að finna bæinn Novalja, sem er á sumrin  yfirfullur af ungu og skemmtanaþyrstu fólki. Bærinn einkennist af smágerðum hvítum húsum með rauðum þökum. Meðfram höfninni er  mikið úrval af veitingastöðum og börum en helsta aðdráttaraflið verður þó að teljast Zrcé ströndin rétt hjá bænum. Þar er heldur rólegt um að litast á daginn, en um leið og rökkva fer færist heldur betur líf í staðinn.  Zrcé ströndin er pakkfull af skemmtistöðum, börum og skyndibitastöðum, skemmtistaðirnir eru margir þaklausir svo maður fær strandarstemninguna beint í æð og fjöldi þekktra plötusnúða koma og spila þar á ári hverju.

 

Hótelin okkar

  • add Amadria Park Hotel Milenij 5*

    Amadria Park Hotel Milenij

    Staðsett í sögulegri glæsivillu frá hinum svonefnda Habsborgartíma og býður upp á fimm stjörnu lúxus. Hótelið er umkringt sérhönnuðu landslagi og görðum og þar er ein vinsælasta verönd Opatija sem býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Kvarner-flóa.

    Hvort sem þú ert hér í viðskiptaerindum eða í fríi, leggur starfsfólk Milenij metnað í hverju smáatriði dvalarinnar. Herbergin eru innréttuð af fágun og glæsileik, og mikið lagt í öll þægindi.

    Íburðarmikill veitingastaður hótelsins, Restaurant Argonauti, býður upp á sælkerarétti úr héraðinu. Einnig er tilvalið að njóta hressingar á Wagner Caffe veröndinni, með stórbrotnu útsýni yfir flóann. Ef þú ert hér til að slaka á er

    Ef þú ert að leita að slökun, Amadria Park Hotel Milenij sannarlega rétti staðurinn.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Amadria Park Beach Hotel Royal 4*

    Amadria Park Beach Hotel Royal

    Gamalt og nýtt blandast skemmtilega saman á Amadria Park Beach Hotel Royal, hóteli sem sækir innblástur sinn og hönnun í hin sögulegu einbýlishús Opatija. Slakaðu á í einstökum lúxus, og njóttu útsýnisins og nálægðarinnar við Lungomare.

    Herbergin á Amadria Park Royal bjóða upp á mismunandi útsýnis yfir Kvarner-flóann og Opatija-höfnina. Vertu velkomin/nn á bókasafnið okkar og á Royal Club kaffihúsið, þar sem þú getur teflt eins og eina skák, eða reynt þig við eitt af elstu borðspilum Evrópu, millu.

    Njóttu fjölbreytilegs úrvals af hinum ýmsu réttum á veitingastaðnum Royal, eða sestu með drykk á barnum og upplifðu töfrandi útsýnið þaðan yfir flóann. Farðu í göngutúr í franska garðinum við hótelið, taktu slökun á ströndinni okkar undir róandi nið Adríahafsins.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Amadria Park Grand Hotel 4 Opatijska Cvijeta 4*

    Amadria Park Grand Hotel 4 Opatijska Cvijeta

    Ertu að leita að sól, sjó og sælu, ásamt skemmtilegri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna? Grand Hotel 4 Opatijska Cvijeta er staðsett í miðbæ Opatija og býður upp á skrautgarða og dásamlegt umhverfi.

    Herbergin eru bæði með útsýni yfir garðana og út á haf, og þar finnurðu öll nútímaleg þægindi.

    Úr nægu er að velja fyrir alla fjölskylduna þegar sest er að snæðingi. Á veitingastöðunum Camellia, Osteria da Ugo og Milenij Choco World, má njóta ferskra, staðbundinna rétta, dýrindis sætabrauðs og sælgætis.

    Og svo er það okkar dásamlega Wellness Oasis, sem býður upp á sundlaugar, gufubað, böð og slökunarstofu, ásamt ýmis konar andlits- og líkamsmeðferðum. Þá er stutt niður á ströndina okkar Royal Beach við Opatija Rivíeruna.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

Verð frá 189.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Fiskislóð 31d, 2.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT