Hópferð til Lissabon - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin okkar

Hópferð til Lissabon

Lengd ferðar:
4 dagar/ 3 nætur
Land:
Portúgal
Gjaldmiðill:
Evra

Lissabon

Lissabon er sérstök borg sem býður upp á marga skemmtilega möguleika. Byggingarnar eru þaktar hvítum kalksteini sem gerir þær fallegar. Þarna eru líka litlar götur og stígar sem aðeins er fyrir fólk að ganga á. Fólkið sem býr þar er mjög vingjarnlegt og lætur þér líða vel. Lissabon er mjög vinsæll staður fyrir fólk að heimsækja vegna þess að hún er svo einstök og hefur fullt af áhugaverðum stöðum að skoða.

Lissabon er ein af elstu borgum heims, og þar má finna menjar allt frá 2. öld fyrir Krist, auk þess sem byggingar frá hinum ýmsu tímaskeiðum í sögu og stíl prýða borgina. 
Í dag blómstrar Lissabon sem aldrei fyrr. Hún er ekki einungis falleg, hún er sannkölluð heimsborg, sem lætur til sín taka á flestum sviðum, hvort sem er í viðskiptum, menningu og listum, nútímatækni eða ferðaiðnaði. Um leið er hún aðallífæð Portúgals, héðan er landinu stjórnað og hér er t.d. miðstöð allra helstu samgangna sem teygja si g vítt og breitt um landið. 
Í Lissabon er af nægu að taka, og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem áhuginn snýr að sögulegu efni eða lífsins nautnum, góðum mat, skemmtun og almennri gleði.  

Borgin er eina höfuðborg Evrópu sem staðsett er við strendur Atlantshafs. Hún stendur við  árósa Tejo árinnar og rís þaðan, með öllum sínum fjölbreyttu hverfum, upp í landið. Eins og stórborg sæmir eru samgönguleiðir margar, og sumar hverjar mjög áhugaverðar, eins og að fara með bát meðfram ánni og njóta útsýnis þaðan. Annar skemmtilegur fararskjóti er toglestin Tram 28, en hún er ein af þremur upprunalegu lestum í leiðarkerfi borgarinnar (frá því í kringum 1936-1947) og gengur frá Gamla bænum og um helstu kennileiti og einstaka staði Lissabon. Leiðin er hæðótt og ekki farið hratt yfir, enda klárinn orðinn æði fullorðinn, en að sitja hann er sannarlega þess virði.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Fjörugt Flanagöngur
  • favorite
    Gullfalleg gömul borg
  • favorite
    Svalandi sjávarströndir
  • favorite
    Tækifæri og tónleikar

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • 3 nætur á hóteli miðsvæðis í Lissabon með morgunmat
  • 1 innritaður farangur og handfarangur
  • Rútur til og frá flugvelli
  • Gott veður

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • City Tax er ekki innifalinn í verðinu og greiðist á hótelinu

Frítt skemmtiatriði með í ferðina!🎉

Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.

Skoða frítt skemmtiatriði!

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Portúgal

Portúgal liggur meðfram vesturströnd Íberíuskaga, og deilir suðvesturodda Evrópu með Spáni. Landið býr yfir einstakri menningu, flottum borgum, líflegum strandbæjum og fallegri sveit. Að flatarmáli er Portúgal ekki stór en landslagið býður samt sem áður upp á hin ýmsu tilbrigði. Hægt er að ferðast á einum degi frá grænum og gróðursælum fjöllum í norðri, um stórbrotnar klettahlíðar og fossa Mið-Portúgals, og suður á landsvæði Alentejo, sem minnir um margt á eyðimörk. 

Portúgal á sér um 900 ára gamla sögu og hefur lagt sitt mark á heimssöguna. Þar er ofarlega á blaði aðild þeirra að hinum svokölluðu Landafundum, en Portúgalar lögðu grunninn að þeim í lok 14. aldar með því að stofna sjóleið til Indlands og nýlendusvæða Afríku, Suður-Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Aðrar þjóðir fylgdu í kjölfarið en Portúgal varð á þessum tíma áhrifamikið heimsveldi.

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi íbúa: 10.196.709
  • Stærð að flatarmáli: 92.212 km²
  • Opinbert tungumál: Portúgalska
  • Gjaldmiðill: Evra
  • Hitastig: Um 25° yfir sumartímann

 

Golf og brim

Í Portúgal þykir bæði loftslag og umhverfi vera kjörið fyrir golfíþróttina. Þetta hafa heimamenn nýtt sér og hannað marga af bestu golfvöllum álfunnar, en 14 þeirra eru á lista yfir 100 bestu brautir Evrópu, og landið hefur hampað titlinum ,,Besti golfáfangastaður heims“. En það er einnig annað sport, öllu æsilegra, sem tekið hefur ástfóstri við Portúgal. Við vesturströndina rísa nefnilega úr Atlantshafi einhverjar stærstu öldur sem brimbrettafólk kemst í tæri við, og svæðið oft nefnt sem eitt af þeim bestu í heimi til slíkrar iðkunar.

Portúgal hefur í áraraðir verið mjög vinsæll ferðamannastaður, ekki síst hjá Norður-Evrópu þjóðum, og gestir frá löndum eins og Englandi, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og Svíþjóð flykkjast þangað til að njóta stórkostlegrar strandlengju, náttúrufegurðar og hins hlýja loftslags. Vinsælustu strendurnar eru í Algarve, en Miðjarðarhafið meðfram suðurströndinni hefur tilhneigingu til að vera hlýrra en hið opna Atlantshaf, og minna um hafrót og öldugang. Við vesturströndina er þó hiklaust hægt að mæla með frábærum stöðum að heimsækja, til dæmis hinum einstaklega sjarmerandi og fallega strandbæ Nazaré.

Lissabon

Höfuðborgin Lissabon er eina höfuðborg Evrópu sem staðsett er við strendur Atlantshafs, en hún er ein af elstu borgum heims og prýdd byggingum frá hinum ýmsu tímaskeiðum. Eitt af einkennum hennar eru hinar fjölmörgu hvítu kalksteinabyggingar sem setja fallegan svip á borgina, en hún hefur gengið í gegnum miklar endurbætur síðustu ár. Lissabon er líflegur og áhugaverður staður sem blómstrar nú sem aldrei fyrr og er að verða einn af vinsælustu áfangastöðum í Evrópu.

Porto

Porto er einstaklega flott og skemmtileg borg, byggð í bröttum fjallshlíðum meðfram ánni Duoro. Sum hverfi hennar standa hreinlega í miðju klettabelti, samsett af fornum miðaldarbyggingum og fínni nútímahíbýlum. Á milli borgarhæða eru stígar hamraðir í grýtta jörðina, og bjóða upp á hressandi gönguferðir með stórkostlegu útsýni. Ef einhvern tíma er tilefni til að kynna sér og smakka góð portvín, þá er það hér. Það liggur í orðanna hljóðan, en Porto er einmitt nefnd sem höfuðstaður portvína, og hiklaust hægt að mæla með heimsókn í hina einstöku portvínshella í Vila Nova de Gaia, eða aðra vínkjallara borgarinnar.

Nazaré

Um miðja strandlengu Portúgals stendur yndislegur bær sem ber sama heiti og heimastaður Jesú Krists, en í portúgalskri útfærslu, Nazaré. Nafnið tengist litlu trélíkneski af Maríu mey með frelsarann í fangi sér, sem kom með trúboðum frá Nazareth í kringum árið 700, og til eru fornar sögur af miklum kraftaverkum þeirrar styttu. Á seinni tímum er þar lítið um trúarleg undur og stórmerki, nema kannski sú staðreynd að bærinn Nazaré er bæði undursamlegur og stórkostlegur, og sannkallaður draumastaður fyrir alla sem þyrstir í sól og sælu. Þar er auk þess eitt eftirsóttasta brimbrettasvæði Evrópu. Hér hefði Jesú sko ekki látið sér nægja að ganga á vatninu, hann hefði pottþétt gripið með sér bretti og sörfað þær himinháu öldur sem þar rísa úr hafi.

Sjarmerandi fiskibær við fullkomna strönd

Í Nazaré búa um 10.000 manns og bærinn skiptist í þrjá hluta. Við ströndina liggur Praia hverfið, í klettum þar fyrir ofan rís gamla hverfið Sítío, og hægt er að ferðast milli þessara bæjarhluta með lestarkláfum. Enn ofar er svo að finna annað gamalt þorp, Pederneia.

Nazaré er gamall fiskibær og þrátt fyrir að ferðaiðnaðurinn hafi þar tekið völd, eru íbúar mjög stoltir af upprunanum og duglegir að kynna hann gestum sínum. Hér finnurðu gömul sjómannaheimili sem breytt hefur verið í fínustu hótel og sjávarréttastaðirnir eru margir og hver öðrum betri. Þá eiga bæjarbúar sína sérstöku ,,þjóðbúninga“ sem vísa í klæðnað sjómanna og fiskverkakvenna fyrri ára, en mesta athygli vekja hin sjölaga litskrúðugu pils sem konunar bera undir bróderuðum svuntum. Ekki er ólíklegt að sjá þessum búningum bregða fyrir.

Bærinn er einn vinsælasti áningarstaður við Silfurströndina svokölluðu (Costa de Prata), og þangað sækir fólk hvaðanæva úr Evrópu til að njóta hinnar afslöppuðu og þægilegu stemmingar sem þar ríkir. Staðurinn þykir henta öllum aldri – hér eru dásamlegar risastrandir til að leika sér á og liggja yfir daginn, og á kvöldin má velja úr fjölmörgum krám og skemmtistöðum til að sötra góðan drykk eða dansa inn í nóttina. Hér ríkir vinalegt andrúmsloft þar sem fólk frá ólíkum löndum blandar geði við hið hlýja og væna portúgalska heimafólk.

Brimbrettageggjun

Brimbrettafólk elskar Nazaré, enda öldurnar óvíða jafn tignarlegar, og aðstæður allar frábærar. Ýmis stórmót í brettasiglingum hafa verið haldin hér og heimsmet verið skráð. Árið 2017 sló brasilíski brimbrettakappinn Rodrigo Koxa heimsmet þegar hann sigldi öldu sem mældist 24,4 metrar! Við erum alltso ekki að tala um neitt smotterýsbrim!

Þá  er rétt að nefna, fyrir þau sem ekki eru spennt fyrir að sigla slíkar öldur, að það getur verið dáleiðandi skemmtilegt að fylgjast með flínkum brimsiglurum leika listir sínar, og víða má finna sér stað, til dæmis í gamla bænum Sítío, með fyrirtaks útsýni yfir það sem fram fer á hafi úti. Ekki vitlaust að sötra á svalandi drykk á meðan.

Hótelin okkar

  • add SANA Malhoa Hotel 4 Stjörnur
    SANA Malhoa Hotel er á frábærum stað, á milli viðskiptahverfisins og sumra af þekktustu kennileitum Lissabon, og býður upp á hinn fullkomna valkost fyrir alla ferðamenn, í viðskiptum eða tómstundum. Praça de Espanha-neðanjarðarlestarstöðin, El Cortes Inglês-verslunarmiðstöðin og Calouste Gulbenkian-safnið eru í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.
     
    Öll herbergin og svíturnar eru innréttuð og hönnuð í nútímalegum stíl til að tryggja þægindi og vellíðan, með ókeypis Wi-Fi aðgangi meðal annars. Samskiptaherbergi eru í boði fyrir fjölskyldur sé þess óskað.
     
    Nýi Mediterrâneo veitingastaðurinn með hitabeltis-nýlendustemningu og náttúrulegri lýsingu býður upp á yndislegt morgunverðarhlaðborð, hádegismat og kvöldmat. Einnig er boðið upp á herbergisþjónustu allan sólarhringinn. Barin er með yfirbyggða verönd með náttúrulegum hangandi garði en þar er tilvalið rými til að vinna eða einfaldlega slaka á, nýta sér snarl matseðilinn, með klassískum og töff kokteilum.
    Sjáðu meira um hótelið hér.
  • add Altis Grand Hotel 5 Stjörnur
    Þetta nýlega enduruppgerða 5 stjörnu hótel býður upp á ókeypis upphitaða innisundlaug, spa og líkamsræktaraðstöðu í viðskiptahverfinu í Lissabon, einungis í 2 mínútna göngufæri frá tískuverslununum á Avenida da Liberdade og 700 metrum frá Príncipe Real.
    Öll herbergin eru með glæsilegum og nýtískulegum innréttingum úr lúxus-svartviði. Þau eru í hlýjum litartónum og þau fela einnig í sér loftkælingu og vinnusvæði með góðri lýsingu. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á hótelinu.
    Grill D. Fernando veitingastaðurinn státar af stórkostlegu útsýni yfir Lissabon, Tagus-ána og S. Jorge-kastalann og framreiðir úrval af portúgölskum réttum með áherslu á ferskan fisk frá svæðinu. Heilnæmi morgunverðurinn felur í sér úrval af nýbökuðu sætabrauði og frægu Pastel de Nata-bökuna (hefðbundin kaka með vanillukremi).
    Sjáðu meira um hótelið hér.

Verð frá 159.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT