Skip to content
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um Tripical
  • Mín Bókun
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um Tripical
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað
  • Hótelin okkar

Hópferð til Edinborgar, 28.apríl -1.maí eða 26.-29. maí 2023

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
Gjaldmiðill:
Bresk pund

Æðislega Edinborg!

Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar búa í kringum 450.000 manns, en hátt í 1 milljón í héraðinu öllu. Auld Reekie eins og borgin heitir á skosku (og þýðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Edinborg býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar liggja bókstaflega saman hlið við hlið miðaldabyggingar og nýtískubyggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr. Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana. Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.

 

Við eigum laus sæti yfir tvær langar helgar 2023 – Tilvalið fyrir fyrirtækjahópa:

  • 28.apríl – 1. maí (Verkalýðsdagur)
  • 26.-29. maí (Hvítasunnuhelgi)

 

Stórmagnaðir kastalar

Edinborgarkastali er mest heimsótti staður af ferðamönnum í Skotlandi og þekktastur af köstulum svæðisins. Hann er þó langt frá því sá eini. Fyrir þá sem hrífast af þessum mögnuðu miðaldarbyggingum, er óvíða jafn mikið sem gleður augað og hér. Hægt er að finna forna kastala í ýmsum stærðum og gerðum, standa á svölum þar, horfa yfir Hálendið og ímynda sér að maður sé staddur í Braveheart. “They may take away our lives, but they’ll never take our freedom!”

Lifandi borg sem býður upp á margt

Miðpunktur menningarlífsins í Edinborg er Edinborgarfestivalið, sem haldið er árlega í borginni og býður upp á endalaust magn af leiksýningum af ýmsu tagi, í stærstu leikhúsum og allt niður í minnsta kráarkjallara. Hátíðin er orðin heimsþekkt og dregur að sér hundruði  þúsunda gesta hvaðan æva að. Sem dæmi má nefna að árið 2015 seldust um 2.3 milljónir miða á þá 50.000 viðburði sem í boði voru. Edinborg skipar sér þannig í fararbrodd skoskrar menningar og Skotar afar stoltir af vinsældum hátíðarinnar.

Ein grænasta borg Evrópu

Í skosku borgunum Edinborg og Glasgow eru fleiri  græn svæði en í nokkurri annari  borg á Bretlandseyjum. Nýjar kannanir yfir græn svæði borga, sýna að Edinborg er á toppi listans, með 49% af grænum svæðum.

 

Sendu okkur fyrirspurn fyrir þinn hóp og við gerum ykkur tilboð!

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Kastalar Edinburgh
  • favorite
    Skemmtilegar götur
  • favorite
    Frábær matur
  • favorite
    Sekkjapípur

Innifalið í verði

  • Flug fram og tilbaka til Glasgow, með Icelandair
  • 3 nætur á hóteli í miðbæ Edinburgh
  • Rúta til og frá hóteli
  • 20kg innritaður farangur
  • Morgunverður

Ekki innifalið

  • Sekkjapípuhljómur

Skemmtileg staðreynd um Edinborg

Fyrsta slökkviliðið

Edinborg var fyrsta borgin til að stofna slökkvilið til að þjóna borginni. Eftir endurtekna eldsvoða árið 1703 sáu yfirvöld sig tilneydd til að gera eitthvað í málinu. Liðið var að fullu skipað sjálfboðaliðum.

Skotland

Land sem leynir á sér!

Stór himinn, einmana landslag, frábært sjávarfang og jarðbundnir skotar taka á móti þér með mikilli gestrisni. Þetta, ásamt skotapilsum og óþolandi sekkjapípum eru fyrstu hlutirnir sem þú átt eftir að taka eftir á fyrstu klukkutímum eftir að hafa stígið inn fyrir skosk landamæri.

Njóttu textans með skoskum “ljúfum tónum” á uppáhalds hljóðfæri okkar allra


https://tripical.is/wp-content/uploads/2017/11/Scotland-the-Brave-Bagpipes.mp3

Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi fólks: 5,404,700
  • Stærð að flatamáli: 77,933 km2
  • Opinbert Tungumál: Enska
  • Gjaldmiðill: Breskt Pund
  • Hitastig: Yfir sumar 9-16°C að meðaltali. Veturnir eru um 5-8°C að meðaltali
  • Tímabelti: 0 klukkutímum á undan Íslandi, 1 á undan yfir sumartímann

Úti er ævintýri

Skoska nátturan er sannkallað ævintýri. Skotland hefur að geyma nokkur af stærstu eyðimerkursvæðum sem eru eftir í Vestur-Evrópu. Svæði þar sem þú sérð gyllta örnin svífa yfir vötn og fjöll á norðursvæði landsins og Otra sulla og busla í ám. Ef þú ert svo heppinn þá gætirðu séð Loch Ness skrímslið, ef þú gerir það þá máttu endilega taka mynd af því þar sem allir sem hafa séð skrímslið hafa gleymt því…

Skotland er land með ríka sögu, stað þar sem litið er á landinu má finna einhverja sögu. Hvort sem það gerist á eyðirmerkueyjunum við strendur landsins, svæði sem eitt sinn var vígvöllur í Braveheart eða hellirinn sem faldi Bonnie Prince Charlie.

Ekki má síðan gleyma þeim hundruð kastala í Skotlandi, þú líklegast er ekkert að fara gleyma þeim þar sem þeir eru eitt mesta aðdráttaraflið.

Bragðaðu á Skotlandi

Líklegast færð þú ekki vatn í munninn þegar þú lest þessa undirfyrirsögn, það er hins vegar tímaskekkja! Stærri og stærri fjöldi túrista eru að átta sig á því að veitingastaðir í Skotlandi hafa hrist af sér gamalt og leiðinlegt orðspor í matargerð og þjónustulund. Segja má að Skotinn hafi öðlast nýja virðingu fyrir staðbundu hráefni og er nú hægt að bragða á ferskum sjávarafurðum, veiddum bara fyrr sama dag. Nauta- og hreindýrakjöt sem ræktað er á næsta bæ og grænmeti sem var ræktað af veitingastaðnum! Ekki er síðan verra að skola þessu niður með einföldu viskí. Punkturinn er kannski þessi, gefðu skoskri matargerð séns.

Edinborg

Edinborg er borg sem á skilað að vera uppgötvuð af þér. Kannski hægt að líkja henni við góða bók, eftir þú átt eftir að vilja stingja þér aftur og aftur inn í bókina kynnist henni meira og meira. Við getum, þau sem hafa farið, öll verðir sammála um að Edinborg er ein sú fallegasta í Evrópu. Umvafin og og byggð í kringum hæðir og vatn, þetta er borg í nánu sambandi við landslag sitt.

Ekki láta árstíðina stoppa þig, ef það er vetur þá geturðu bara komið þér vel fyrir á krúttlegum krám eða kaffihúsi og hlýjað þér yfir sekkjapípuspili og viskí. Sumar spyrðu, þá er góður möguleiki að mikið líf verði á götum borgarinnar og þessir fínu klúbbar eiga eftir að taka þér með opnum örmum.

Skíð (e. Isle of Skye)

Við erum að tala um næst stærstu eyju í Skotlands sem og þriðja vinsælasti ferðamannastaðurinn (á eftir Edinborg og Loch Ness vatninu) Hún er nyrsta eyja suðureyjanna í Skotlandi. Byggð hefur verið á henni frá miðsteinöld og stjórnuð í áratugina af fornnorrænum mönnum og í dag búa rúmlega 9 þúsund manns. Eyjan er gullfalleg en þetta er allt saman frekar gamalt, kalt og sérstakt.

Það sem gerir hana svona vinsæla fyrir utan þessa sögu hennar er töfrandi landslag, furðu líflega menning og dýrin sem má finna á svæðinu. Gullörn, krónhjörtur og lax eru meðal dýra sem bú á svæðinu.

Náttúran er mögnuð en þú mátt gera ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti eigi þokan eftir að hylja svæðið. Engar áhyggjur! Það er heill hellingur kastölum, söfnum notalegum krám og góðum veitingastöðum. Við mælum bara með því að þú komir eins og sannur Íslendingur, tilbúinn í miklar veðurbreytingar.

Aberdeen

Verandi norðarlega er Aberdeen orkuborg, eins og við íslendingar þekkjum vel. Ofan á það er Aberdeen þekkt undir nafninu Granítborgin en nafnið er viðeigandi að tvennu leiti, svæðið er mikið byggt með silfurgrænu graníti sem sem var grafið í nú yfirgefnu Rubislaw Quarry námunni sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Hin ástæðan fyrir nafninu er sú að fólkið og hugarfar þess er graníthart!

Á góðum sólardegi má sjá borgina glitra vegna endurkasts granítsins. Aftur á móti á lágskýjuðum gráum degi er erfitt að átta sig á því hvar byggingarnar enda og himininn byrjar.

Snilldar blanda af nýju og gömlu

Það sem svæðið hefur með sér að þarna er hrikalega flott einmanalegt landslag og sú staðreynd að Aberdeen er og hefur verið á mikilli uppsiglingu og er að orðin mikil orkuborg, drifinn af olíuiðnaði í Norðursjónum.

Olíupeningurinn hefur gert borgina eins dýra og London og Edinborg. Sem að gerir hana auðvitað á sama tíma að meiri lúxusborg en hún var hér áður fyrr. Hótel, veitingastaðir og klúbbar sem hafa verið byggð með miklum peningum og því virkilega flott og nýtt margt hvað á svæðinu. Nú þar sem það er ekki nóg að vera bera rík og dýr borg með nýjum klúbbum og hvað eina þá býður hún einnig upp á flott úrval af menningarlegum hlutum, lista og sögu söfnum. Stór moll þar sem hægt er að versla eins og brjálæðingur. Síðan má ekki gleyma heimsklassa veitingastöðunum sem elda ofan í þig frábært úrval sjávarfangs (og annað). Ekki má síðan gleyma gestrisninni á svæðinu og hvað þá hinu heilaga skoska viskíið (við bara getum ekki hætt að tala um viskí!!).

Nokkur af okkar eftirlætis hótelum - við finnum hvað hentar þínum hópi!

  • add Courtyard by Marriott Edinburgh 4 🌟

    Courtyard by Marriott Edinburgh ****

    Þetta hótel er á besta stað sem hægt er að velja sér, í gamla bænum. Alveg hjá göngugötunni Princes Street og rétt hjá Edinborgar kastalanum.

    Það er bar, veitingastaður og flott líkamsræktarstöð á hótelinu.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Hampton By Hilton Edinburgh West End 3 🌟

    Hampton By Hilton Edinburgh West End ***

    Nútímalegt 3-stjörnu hótel, staðsett í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá gamla bæ Edinborgar.

    Gamli bærinn er frábær staðsetning fyrir ferðamenn sem hafa áhuga á mat, veitingastöðum og sögu.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

  • add Haymarket Hub Hotel 3 🌟

    Haymarket Hub Hotel ***

    Haymarket Hub Hotel er staðsett við gamla bæinn og rétt hja Edinborgar kastalanum. Rétt hjá hótelinu er hinfræga verslunargata Princes Street, þar sem má finna úrval af hvers kyns búðum til að gera góð kaup.

    Á hótelinu má finna flottan bar og veitingastað.

    Sjáðu meira um hótelið hér.

Tilboð

Fyrirspurn um ferð

Tripical Ísland ehf

Fiskislóð 31d, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

+354 519 8900

hallo@tripical.is

Gott að vita

Skilmálar

Algengar spurningar

Hafa samband

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Bandaríkin
  • Búlgaría
  • Grikkland
  • Indland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Kúba
  • Kýpur
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Norður Makedónía
  • Pólland
  • Skotland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Srí Lanka
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT
  • Facebook
  • Twitter
  • LinkedIn
  • More Networks
Share via
Facebook
Twitter
LinkedIn
Mix
Email
Print
Copy Link
Powered by Social Snap
Copy link
CopyCopied
Powered by Social Snap