





Hópferð til Berlínar 🥨🍺 18.-21.maí 2023
Fjölskrúðuga Berlínarborg!
Borgin þar sem allir finna eitthvað sér til hæfis. Berlín er höfuðborg Þýskalands og þar búa tæplega fjórar milljónir manna. Borgin er suðupottur af menningu og listum og endalaust margt hægt að sjá og gera, hvort sem heillar þig frekar, nútímalist sem finna má í gallerýjum um alla borg, eða gömul klassísk list. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Borginni var skipti upp í austur- og vesturhluta á kaldastríðs árunum. Á nokkrum stöðum má sjá sjá leifar af Berlínarmúrnum, sem lá þvert í gegnum borgina, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.
Við eigum laus sæti dagana
- 20.-23. apríl 2023- UPPSELT
- 18.-21. maí 2023 – LAUST
Ef þú hefur áhuga á tilboði í ferð fyrir þinn hóp (stóran eða smáan) sendu okkur línu í gegnum fyrirspurnarformið hér til hægri á síðunni, með áætluðum fjölda og óskadagsetningu og við svörum um hæl.
Hæfileg blanda af hip og kúl og klassík
Í Berlín er nokkuð skýr hverfaskipting og hefur hvert svæði sinn sjarma. Úrval kaffihúsa, kráa og veitingastaða er óvíða jafn fjölbreitt, auk þess sem hægt er að finna ansi marga mjög sérstaka veitingastaði sem gera “út að borða” upplifunina ferska og óvenjulega. Þannig var Berlínarborg einna fyrst til að bjóða upp á veitingastaði í algjöru myrkri, þú getur farið á veitingastað þar sem grænmetið á diskinn vex inni á staðnum, eða skellt þér á einn fínan ítalskan sem er staðsettur í þv0ttahúsi. Þá geta þeir sem fíla gott kebab glaðst því þú færð hvergi betra kebab en hér!
Alltaf eitthvað
Eins og áður sagði er fjölbreytileikinn mikill í þessari stórbrotnu menningarborg og afar auðvelt að finna þar alls kyns afþreyingu. Hér má til dæmis finna vinsælasta dýragarð Evrópu. Áður eru nefnd hin óteljandi gallerý og fornar byggingar. Næturlífið er einstaklega fjölkrúðugt og skemmtilegt, og stendur alveg þar til sól rís á ný. Og mannlífið á götum borgarinnar er engu líkt.
Alþjóðlegasta borg Þýskalands
Eftir að Þjóðverjar slökuðu á innflytjendalögum flutti talsverður fólksfjöldi til borgarinnar. Nú búa þar um hálf milljón innflytjenda í því sem kallað hefur verið alþjóðlegasta borg Þýskalands. Þrátt fyrir þetta fjölþjóðlega menningarsamfélag er háþýska aðal tungumálið sem talað er. Sehr gut, ja!
20.-23.apríl – Flogið er í beinu flugi með Play Air – UPPSELT!
- Brottför frá Keflavík þann 20. apríl 2023, kl. 05:45
- Brottför frá Berlín þann 23.apríl kl. 12:10.
18.-21.maí – Flogið er í beinu flugi með Icelandair
- Brottför frá Keflavík þann 18. maí 2023, kl. 07:40
- Brottför frá Berlín þann 21.maí kl. 14:15
Ekki missa af vordögum í Berlín !
Hápunktar ferðar
- favoriteSpennandi saga
- favoriteFjölbreytt umhverfi
- favoriteFrábær matur
- favoriteSkemmtileg menning
Innifalið í verði
- Flug fram og tilbaka með Icelandair (18.-21 maí)
- Þriggja nátta gisting í miðbæ Berlín með morgunverði
- Rúta til og frá hóteli
- 20kg innritaður farangur
- Fararstjórn (sé þess óskað)
Ekki innifalið
- Áhyggjur yfir bjórverðinu – enda er það fáránlega lágt
- Gistináttaskattur á hóteli
- Annað sem ekki er talaið upp sem innifalið
Skemmtileg staðreynd um Berlín
Ich bin ein Berliner
Frægt er þegar John F. Kennedy lét þessa fleygu setningu falla í einni af frægustu ræðu sinni, sem hann flutti í Vestur-Berlín 1963. Lengi vel var því haldið fram að Kennedy hefði mismælt sig og borið setninguna fram á þann hátt að hún þýddi “Ég er Berlínarbolla” og að viðstaddir hefðu hlegið mikið af misskilningnum. Hið rétta er að Kennedy flutti þessa ræðu sína, og umrædda setningu, án nokkurs misskilnings og hlaut einróma lof og fagnaðarlæti fyrir, enda ein þekktasta ræða um mannúð og frið á milli þjóða, sem þjóðhöfðingi hefur haldið í sögunni.
Þýskaland
Almennar upplýsingar
- Fjöldi fólks: 83.166.711
- Stærð að flatamáli: 357.022 km²
- Opinbert Tungumál: Þýska
- Gjaldmiðill: Evra
- Hitastig: 5°-30°
- Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi
Hótelin okkar - Smellt er á plúsinn til að sjá nánari upplýsingar um hvert hótel fyrir sig
-
add Riu Plaza Berlin 4*
Riu Plaza Berlin ****
Um er að ræða nútímalega 17 hæða byggingu við Kurfurstendamm breiðgötuna – um 5 mínútna göngufjarlægð frá næstu neðanjarðarlestarstöð og frægu versluninni KaDeWe.
Herbergin eru fallega innréttuð, með flatskjá, öryggisskáp, kæli, loftkælingu og sérbaðherbergi. Allir gestir hafa frían aðgang að líkamsrækt hótelsins.
Úrval kræsinga má finna á veitingastað hótelsins.
Hótelið fær heildareinkunn 8.3 og 9.1 fyrir staðsetningu á booking.com