Tripical býður Íslendingum ferðir til Rússlands á HM 2018. Við ætlum að byrja á tveimur ferðum til Rússlands.
Ísland spilar til að byrja með þrjá leiki, og ætlum við að fara á þá alla. En við ætlum að slá tveimur þeirra saman í einn risapakka. Hver elskar ekki risapakka?
Ferðirnar okkar skiptast svona:
Tónlistarmennirnir, skemmtikraftarnir og bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór verða með okkur í Rússlandi allan tímann! Skoðunarferðir, kvöldvökur og margt fleira – ferðirnar okkar verða fullar af alls konar fjöri!
Sjáðu ferðirnar okkar hér fyrir neðan!
https://tripical.is/ferdir/island-argentina/
https://tripical.is/ferdir/island-nigeria-island-kroatia/
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Rússland og fyrirkomulagið á ferðunum, smelltu hér!
Það skiptir ekki máli á hvaða tíma, klukkan hvað eða hvernig veðrið er, Moskvu bregst aldrei bogalistin. Borgin er virkilega spennandi með alla sína sögu, byggingar, menningu og listir og tignarleika.
Mikilvægustu staðir borgarinnar (og að öllum líkindum landinu) eru Kremlin og Rauða torgið sem er enn hjarta Moskvu sögulega, landfræðilega og andlega fyrir heimamenn. Þegar þú labbar um þessa fornu vegi, virki og vígi áttu strax eftir að finna hvað borgin á sér mikla sögu. Þetta heldur áfram! Næst tekur á móti þér hin glæsilega St. Basil Dómkirkja sem er á Rauða torginu en kirkjan sem var reist á árunum 1555 til 1561 er nú safn.
Moskva mun heilla þig, andlega, líkamlega og allt þar á milli. Allt saman byrjar það hjá Kremlin og Rauða torginu.
Flestir ef ekki allir kannast við sögu Rússlands, fyrrum Sovétríkjanna, og stríðin sem háð voru milli þeirra og annarra ríkja. Í Moskvu færðu tækifæri til þess að grafa upp allan fróðleikinn úr sögutímunum frá unglingsárunum og skoða raunverulegar leifar Sovétríkjanna sem finnast um alla borg, minnisvarða fallinna hetja og sigurvegara og söfn sem sameina fortíðina og nútímann.
Hvernig væri að vera smá menningarlegur og skella sér á góða rússneska balletsýningu eða rafmagnaða rússneska óperu? Ef þú vilt upplifa klassíska leiklist er erfitt að finna betri stað en Moskvu. Þótt þú sért hvorki hrifinn af leiklist né tónlist, þá er þetta það magnað að þú átt eftir að verða heillaður.
Svo haldið sé áfram í listinni, þá er arkitektúr Moskvu magnaður. Í borginni kemstu varla hjá því að sjá kúlulöguðu þökin sem minna helst á lauk. Kirkjubjöllurnar hljóma nánast allan daginn en um 600 kirkjur eru á víð og dreif um Moskvu, margar hverjar glitrandi fallegar og nýlega endurbættar.
Borgin var stofnuð árið 1589 og á sér því langa sögu. Lengi vel var hún mikilvæg viðskipta- og herstöð vegna nálægðar sinnar við suður landamærin. Borgin hefur þrisvar sinnum skipt um nafn, Tsaritsyn – Stalíngrad – Volgograd. Fjöldi bardaga hefur átt sér stað í borginni og er Volgograd sú borg sem fólk með mikinn áhuga á seinni heimstyrjuöldinni dauðlangar til þess að heimsækja.
Minna áhugasamir geta ekki orðið annað en áhugasamir yfir sögu og mikilfengleika borgarinnar. Árið 1943 var orrusta sem stöðvaði framgang Nasista í seinni heimsstyrjöldinni háð í Stalíngrad. Borgin laskaðist mikið á þessum tíma þar sem milljón sprengjum var sleppt yfir borginni. En hún reis úr öskunni og þegar hún varð að svæði Sovétríkjanna, umbreyttist borgin talsvert.
Borginni var breytt í tákn um árangur þeirra og um leið reis Volgograd með allar sínar styttur, byggingar, tákn og annað sem átti að sýna hinn ótrúlega glæsileika Stalínleikans.
Í dag er Volgograd stjórnsýslumiðstöðin á svæðinu og mikilvægasta iðnaðar-, efnahags- og menningarmiðstöð í Rússlandi og eru íbúar hennar rúmlega milljón talsins. Í Volgograd er stærsta höfn Evrópu, við ánna Volga.
Volgograd er stór ferðamiðstöð, minnismerki fyrir landið allt og mikil hetjuborg og er borgin heimsótt af hundruðum þúsunda rússneskra og erlendra ferðamanna á ári hverju. Dragast ferðamenn að náttúrunni, hvíldarhúsum, byggingalistinni og ríkri og glæsilegri sögu borgarinnar.
Auðvelt er að komast leiðar sinnar í Rússlandi með rútum, vögnum, sporvögnum og leigubílum. Þar er má einnig finna eina neðanjarðar sporvagnakerfi Rússlands.
Hetjuborgin bíður eftir þér, í allri sinni dýrð!
Rostov on Don (einfaldlega Rostov hjá heimamönnum) var stofnuð árið 1749 og var á fyrri tímum mikilvæg hafnarborg fyrir viðskipti Rússlands og landanna við Svarta-Eyja og Miðjarðarhafið. Borgin á sér langa sögu og mikla og er ekki að ástæðulausu að hún er sögð vera hliðið að norður Kákasus svæðinu.
Stærsta borg í Suður-Rússlandi
Í dag er borgin sú stærsta og heimsborgaralegasta í suður Rússlandi. Áin Don flýtur í gegnum borgina og er landfræðilegt og menningarlegt kennileiti hennar. Ofan á það er Rostov on Don stórskemmtileg borg með græna garða og glæsileg torg. Auk þess er hún alveg við Svartahafið og hægt að kíkja í góða dagsferð um strendur hafsins.
Hvort sem þú vilt labba um miðbæinn, labba meðfram bökkum Don árinnar eða kíkja á fallega matarmarkaði á svæðinu, þá er þetta allt í boði. Nú eða bara fara á geggjaða veitingastaðinn New York.