Hausttilboð til Barcelona 3.-6. október 2025 🌞 - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað

Hausttilboð til Barcelona 3.-6. október 2025 🌞

Lengd ferðar:
4 dagar / 3 nætur
  • Flogið með Play til Barcelona
  • Brottför frá Keflavík kl. 15:20 – lending í Barcelona kl. 21:40
  • Heimflug kl. 22:40 – lending í Keflavík kl. 01:20 (+1 dag)
  • Flugtími: 4,5 klst.
  • Verð frá kr. 134.990– sjá hótellistann hér að neðan

Tilboðið gildir til 18. ágúst – Ekki missa af þessu!

Ertu með 9+ manns? Hafðu samband við hallo@tripical.is til að fá frábært hóptilboð!


Fjölbreyttur byggingarstíll frá fornu fari

Barcelóna er stærsta borg Katalóníu og næst stærsta borg Spánar. Hún var undir Rómaveldi og fjölda annara ríkja áður en að hún öðlaðist  sjálfstæði. Þetta hafði þau áhrif að borgin  hefur lotið  byggingarstíl fjölda mismunandi ríkja og hún er því mjög framandi hvað byggingastíl og arkitektúr snertir. Í Barcelóna má finna mikið af nútíma byggingalist en í borginni eru líka margar ævagamlar og mjög frægar byggingar.

Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí – Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla. Borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelóna býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.

 

Söguleg borg sem hægt er að skoða endalaust!

Arkitektúr Barcelóna spannar tvær þúsaldir aftur í tímann. Turnar úr  gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Það er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí. Það má því segja að borgin sé hlaðin sögu og menningu.

 

Skemmtilegar götur til að rölta um

Göngugötur Barcelóna eru vinsælar til að rölta um. Frægasta gatan er La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur svo til á hverju strái. Barcelóna er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa lifandi menningu. Kjarni borgarinnar er í kringum „Ciutat Vella“ sem þýðir gamla borgin.

Ströndin fræga

Berceloneta heitir frægasta ströndin í Barcelóna þar sem Miðjarðarhafssólin sleikir gullfallegar strendur og heiðblátt hafið.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Park Güell
  • favorite
    Dásamleg strönd
  • favorite
    Sagrada Família
  • favorite
    La Rambla & gotneski hverfið

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka með Play
  • Flogið út frá KEF kl. 15:20 og lent að staðartíma í Barcelona kl. 21:40
  • Flogið heim kl. 22:40 og lent að staðartíma kl. 01:20 +1
  • 3 nætur á hóteli miðsvæðis (Með morgunmat)
  • 20 kg innritaður farangur
  • Gott veður

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Farastjórn (óska má eftir gegn aukagjaldi sem er mismunandi eftir stærð hópsins)
  • City Tax er ekki innifalinn í verðinu og greiðist á hótelinu
  • Annað sem ekki er tekið fram sem innifalið

Tilboð 1 (Flug & Hótel)

Renaissance Barcelona Fira Hotel 4*

Renaissance Barcelona Fira Hotel er þægilega staðsett við Plaza Europa torgið, við hlið Fira Barcelona ráðstefnumiðstöðvarinnar.

Það býður upp á sundlaug á þakinu og veitingastað með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Hótelið samanstendur af tveimur byggingum sem tengdar eru með útsýnisveitingastaðnum sem býður upp á miðjarðarhafskrásir og státar af gróskumiklum hitabeltisgarði.

Þar er líkamsræktarstöð með grunnri innisundlaug með nuddstútum og veröndabar með útsýni til allra átta.

Hótelið fær 8,6 í einkunn á booking.com og 8,5 í einkunn fyrir staðsetningu

  • Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 134.990 kr
  • Verð í einbýli með morgunverði 174.990 kr

Athugið: Hótelgisting er bókuð með fyrirvara um framboð. Ef valið hótel reynist ekki laust við staðfestingu, munum við bjóða sambærilega gistingu í sama þjónustuflokki.

Tilboð 2 (Flug & Hótel)

NH Barcelona Eixample 3*

NH Barcelona Eixample er í 15 mínútna göngufjarlægð frá Passeig de Gràcia breiðgötunni og Plaza Catalunya torginu.

Barcelona Sants lestarstöðin er innan tveggja metróstöðva frá hótelinu og Sagrada Família kirkja Gaudís er í þriggja stöðva fjarlægð.

Hótelið fær 8,0 í einkunn á booking.com og 8,7 í einkunn fyrir staðsetningu

  • Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 139.990 kr
  • Verð í einbýli með morgunverði 184.990 kr

Athugið: Hótelgisting er bókuð með fyrirvara um framboð. Ef valið hótel reynist ekki laust við staðfestingu, munum við bjóða sambærilega gistingu í sama þjónustuflokki.

Tilboð 3 (Flug & Hótel)

NH Sants Barcelona 4*

NH Sants Barcelona er staðsett 400 metra frá Sants lestarstöðinni í Barcelona og býður upp á nútímalegt, loftkælt herbergi með ókeypis þráðlausu interneti, flatskjá og einkabaðherbergi.

Hótelið er með veitingastað sem býður upp á ferskan miðjarðarhafskost. Þar er einnig afslappandi kaffihús. Hótelið býður einnig upp á hollan morgunverð. Veitingastaðurinn er lokaður yfir sumarmánuðina.

Hótelið fær 8,5 í einkunn á booking.com og 8,7 í einkunn fyrir staðsetningu

  • Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 144.990 kr
  • Verð í einbýli með morgunverði 189.990 kr

Athugið: Hótelgisting er bókuð með fyrirvara um framboð. Ef valið hótel reynist ekki laust við staðfestingu, munum við bjóða sambærilega gistingu í sama þjónustuflokki.

Spánn

Y Viva España!

Spánn hefur um árabil verið eitt vinsælasta land Evrópu meðal ferðafólks og þangað drífur að mikill fjöldi gesta alls staðar úr heiminum allan ársins hring. Ástæðan er langt frá því að vera ,,af því bara“ – á Spáni er svo margt að sjá og upplifa, fjölbreytileiki landsins er gríðarlegur, auk þess sem þar er auðvitað nóg til af því sem allir elska og þrá, nefnilega sól og blíðu!

Konungsríkið Spánn telur um 46 milljónir íbúa. Það er um það bil 5 sinnum stærra en Ísland að flatarmáli og staðsett á Íberíuskaga (stundum nefndur Pýreneaskagi) syðst í Evrópu, með landamæri að Portúgal til vesturs og Frakklands og smáríkisins Andorra til norðurs. Löng austurströnd landsins snýr að Miðjarjarðahafi, og syðsti oddi Spánar er um leið syðsti oddi meginlands Evrópu.

sitges spánn

Æðislegar strendur, eldhresst næturlíf, sprúðlandi fjölmenning og borgir með afar áhugaverðan bakgrunn og sögu, og stórbrotnar byggingar því til sönnunar – allt þetta hefurðu á Spáni. En landið býr einnig yfir miklum fjölbreytileika í landfræðilegum skilningi, enda æði stórt og mikið. Þar hefurðu fjöll og snjó í norðri, risavaxin mýrlendi og sandflæmi í suðri. Sumrin eru vissulega háannatími í ferðaiðnaði landsins, en þeir sem heldur kjósa minna fjölmenni eða vetrarferðir hafa sannarlega úr mörgu að moða.

Á Spáni eru margar fallegar og spennandi borgir. Fyrst má nefna þær þekktustu, höfuðborgina Madrid með sínum heillandi arkitektúr, fjölbreyttu söfnum og sýningum, og hina mögnuðu Barcelona með sín fjölmörgu ólíku hverfi, stórbrotnu byggingar, blómstrandi menningarlíf, iðandi næturlíf og fyrirtaks sólbaðsstrendur. En þá er langt í frá allt upptalið, því hér höfum við líka borgir eins og Sevilla, Valencia, Granada og Bilbao og fleiri, allt staðir með sína einstöku sérstöðu sem fyllilega má mæla með. Þess utan eru svo minni bæir og þorp, við ströndina eða uppi á landi, sem með sjarma sínum og fegurð draga til sín sólþyrsta gesti í leit að afslöppun og ánægju.

Verð frá 134.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 2A, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT