
Við fórum í stórkostlega árshátíðarferð til Svartfjallalands með Tripical og vorum nú annað skiptið í röð í þeirra höndum, enda skipulagið og utanumhaldið frábært. Við höfum getað treyst öllum upplýsingum…Lesa umsögn frá Læknastöðin – Orkuhúsinu
Langar þig að lengja sumarið aðeins? ☀️ Svartfjallaland er frábær kostur í lok september með fallegri strandlengju, stórbrotnu landslagi, notalegum strandbæjum og afslappaðri Miðjarðarhafsstemningu.
Nú eru örfá sæti eftir í beinu flugi frá Keflavík 24.–28. september 2026, svo þetta er kjörið tækifæri til að skella sér í 5 daga haustferð og njóta sólar, góðs matar og fallegs umhverfis.
Hvort sem planið er að slaka á, skoða fallega bæi eða einfaldlega hafa það gott í sólinni, þá er Svartfjallaland frábær staður fyrir smá haustdekur.
Montenegro er lítið en ótrúlega fjölbreytt land á Balkanskaga við kristaltært Adríahafið. Hér mætast tignarleg fjöll, fallegir strandbæir, gamlir miðaldakjarnar og strendur sem eiga auðvelt með að koma manni í sumarstuð.
Landið liggur á milli Króatíu, Bosníu og Hersegóvínu, Serbíu, Kosovo og Albaníu og hefur á síðustu árum orðið sífellt vinsælli áfangastaður ferðamanna. Það er auðvelt að sjá hvers vegna Svartfjallaland nýtur sífellt meiri vinsælda – stuttar vegalengdir, fjölbreytt upplifun og ótrúlega margt að sjá og gera.


Svartfjallaland stendur sannarlega undir nafni. Fjöllin rísa nánast beint upp úr sjónum og útsýnið getur verið stórkostlegt hvert sem litið er.
Inni í landi má meðal annars finna Skadar-vatn, Durmitor-þjóðgarðinn, Tara-gljúfrið og Black Lake. Hér er því nóg að gera fyrir þá sem vilja blanda strandlífinu saman við bátsferðir, gönguferðir og smá ævintýri.

Lok september eru frábær tími til að heimsækja Svartfjallaland. Sumarið er ekki alveg búið, en mesti annatíminn liðinn hjá. Það er því tilvalið að pakka sundfötunum og sandölunum og skella sér í smá haustsól við Adríahafið.
Haustsól, kristaltær sjór, stórbrotið landslag, góður matur og afslöppuð Miðjarðarhafsstemning – Svartfjallaland kann þetta.
Maestral Resort & Casino er glæsilegt fimm stjörnu strandhótel í Przno á Svartfjallalandi, rétt hjá Sveti Stefan. Hótelið stendur við fallega einkaströnd og er með innisundlaug, útisundlaug, stóra heilsulind, nokkra veitingastaði, bari og glæsilegt spilavíti. Flest herbergin eru með svölum og mörg þeirra með stórkostlegu sjávarútsýni.
Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,2 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Tripical mat: Hér er farið alla leið – einkaströnd, sundlaugar, spa, góðir veitingastaðir og spilavíti undir sama þaki. Glæsilegt val fyrir þá sem vilja alvöru resort-stemningu með Adríahafið beint fyrir framan sig.
Tvíbýli með morgunverði 219.990 á mann – eða einbýli á 264.990 fyrir þá sem vilja aðeins meira pláss og næði!
Splendid Conference & Spa Resort er glæsilegt fimm stjörnu strandhótel í Becicxi, aðeins um 2 km frá gamla bænum í Budva. Hótelið stendur beint við ströndina og er með einkaströnd, fimm sundlaugar, stóra spa- og heilsulind, veitingastaði, bari og spilavíti.
Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Tripical mat: Hér er alvöru resort-stemning – ströndin við dyrnar, sundlaugar, spa og nóg að gera án þess að þurfa nokkurn tímann að yfirgefa hótelið. Glæsilegur kostur fyrir þá sem vilja slökun, smá lúxus og gott líf við Adríahafið.
Tvíbýli með morgunverði 224.990 á mann – eða einbýli á 274.990 fyrir þá sem vilja aðeins meira pláss og næði!

Við fórum í stórkostlega árshátíðarferð til Svartfjallalands með Tripical og vorum nú annað skiptið í röð í þeirra höndum, enda skipulagið og utanumhaldið frábært. Við höfum getað treyst öllum upplýsingum…Lesa umsögn frá Læknastöðin – Orkuhúsinu

Í September síðastliðnum forum við Eskju fólk með Tripical til Svartfjallalands í algjörlega stórkostlega ferð. Þetta var í annað sinn sem við nýttum okkur þjónustu Tripical í árshátíðarferð og aftur…Lesa umsögn frá Eskja

Frábær ferð hópsins okkar til Wroclaw, góð skipulagning varðandi flug og rútuferðir hjá Tripical, stóðst væntingar. Skemmtum okkur konunglega!Lesa umsögn frá Ísloft

Við hjá Sjúkraþjálfun Íslands fórum í árshátíðarferð til Prag á vegum Tripical og gætum ekki verið ánægðari með upplifunina! Skipulag alveg frá fyrsta degi var algjörlega til fyrirmyndar; allt gekk…Lesa umsögn frá Sjúkraþjálfun Íslands

Við fengum Tripical til að setja upp Árshátíðarferð til Gdansk fyrir okkur í okt 26. Það er skemmst frá því að segja að viðmót og þjónusta hjá þeim var alveg…Lesa umsögn frá Starfsmannafélag Mannvirkja og Umhverfissviðs Árborgar
Svartfjallaland býður upp á strandlíf, glæsilegt landslag og Budva sem spennandi áfangastað fyrir fyrirtækja- og hópferðir.
Skoða SvartfjallalandHafðu samband og við sendum þér sérsniðið tilboð fyrir þinn hóp.